Leita í fréttum mbl.is

Frakkland og Þýskaland náðu samkomulagi um Grikkland

Frá GrikklandiReuters skýrði frá því nú síðdegis að Frakkar og Þjóðverjar hefðu náð samkomulagi um aðstoð við Grikki. Talað er um að Evrópulöndin og IMF/AGS muni leggja fram fé með það að markmiði að aðstoða Grikki. Samkvæmt frönskum embættismanni sem Reuters vitnar í er meiningin að nota þessa áætlun aðeins þegar og ef önnur úrræði þrýtur. Frétt Reuters hér.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það er sagt að Portúgal sé næst.

Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2010 kl. 09:13

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Samkomulagið er vægast sagt mjög loðið og reyndar allt í skötulíki og ekki má segja neitt í hverju það felst. Svona vopnaður friður milli Frakklands og Þýskalands sem ein virðast ráða þessu.  

Nema jú það kom fram líka það á alls ekki að gera neitt fyrren AGS er formlega komið að málinu og tekið við stjórninni.

Yfir þessum fréttum varð bankastjóri ESB bankans æfur og sagði þetta hræðileg mistök og til skammar fyrir sambandið.

Svo á heldur ekki að gera neitt fyrren alveg sé augljóst að allt sé farið til helvítis.

Þetta er svona álíka og að slökkviliðið eigi að horfa á húsið brenna en ekkert að byrja að aðhafast fyrr en öruggt sé að húsið sé að mestu alveg brunnið.

Ljóta naglasúpan sem útúr þessu kom og ljótu hræsnararnir þarna á ferð.

Það var svo sem aldrei búist við miklu. 

En sannast nú enn og aftur að það er enginn vörn fyrir smærri þjóðir í þessu Yfirríkjabandalagi þar sem allt snýst fyrst og síðast um að gæta sérhagsmuna Þýskalands og Frakklands.

Gunnlaugur I., 26.3.2010 kl. 09:37

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta með slökkvuliðið er léleg líking og ekki í samræmi við fréttina.

Ef það er hlaupið til og hjálpað ríkjum einsog ekkert sé þrátt fyrir sukk og svínarí... hvaða skilaboð er verið að senda.

Eru NEI sinnar á því að þrátt fyrir að einstaklingur spilar rassinn úr buxunum þá á bara að hjápa honum á skilirða?

Þó er enginn hvati til að gæta aðhalds því ef allt klikkar þá fær maður peningabunu frá ESB.

Þetta er dálítið undarlegur málflutningur.

Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2010 kl. 11:50

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Ekki er ég að mæla því bót að menn fái bara peningabunu ef þeir haga sér óskynsamlega. 

En skilaboðin sem þessa marghöfða þurs, þessa apparats sem heitir ESB hafa verið öll út og suður og ákaflega misvísandi.

Framkvæmdastjórnin og bankastjórn ESB bankans hafa margsinnis og ítrekað talað fyrir því að ekki kæmi annað til greina en senda björgunarlið á vetvang og bjarga Grikkjum. ESB ríkin og Evru ríkin yrðu að standa þétt saman og sýna hvers þau væru megnug. 

Það væri skömm og svívirða útá við að ætla að kalla til AGS. 

Þeir hafa löngum talað svona eins og þeir væru ein allsherjar "MAMMA" og því hafa mörg veikburða fyrrum Austur Evrópu ríkin þyrpst inní bandalagið og líka fátæk ríki Suður Evrópu, vegna þess að þeim var talin trú um að það leynt og ljóst að það væri svo mikil vörn fyrir þá efnahagslega og félagslega að vera innlimaðir í þetta fullkomna Bandalag ESB.

Á þá hafa nú marga runnið tvær grímur síðan og t.d. Klaus forseta Tékklands var nóg boðið yfirgangurinn og hrokinn í embættisaðli þessa yfirríkjabandalags og sagði "að svona hótanir hafi ráðamenn þessa lands ekki heyrt síðan á tímum Sovétríkjanna"

Þessi "mömmu" hugsun sem beitt hefur líka verið hérlendis miskunnarlaust af ESB- innlimunarsinnum sýnir sig nú í að vera bábilja ein og enn ein ESB-lygin. 

Þessi hugsunarháttur hefur einnig reynst þessum ríkjum sem hafa látið plata sig til að trúa þessu, beinlínis stórhættuleg því ábyrgðarleysið hefur bólgnað út í samræmi við dýrðarljómann og fullkomnun kerfisins sem reynt hefur verið að slá um ESB apparatið af því sjálfu og agentum þess.

Þetta ESB apparat er sem hönd dauðans ! 

Gunnlaugur I., 26.3.2010 kl. 12:58

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það væri gaman að vita hvar skjól Íslands hefur verið.

Vogunarsjóðir geta auðvellega fellt krónuna, Seðlabankinn getur ekki verið bakhjarl. 

Ísland er einfaldlega berskjaldað. 

Jú alveg rétt það er tímabundið skjól í galdeyrishöfum og AGS.

Þannig er ástandi á Íslandi í dag. 

Samt er Ísland alveg laus við "hönd dauðans"

Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2010 kl. 14:07

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Grikkland, Portúgal, Spánn og Írland standa berskjölduð en hafa búið við falskt öryggi vegna ESB aðildar og Evran er þessum rikjum mikill fjötur um fót.

Íslenska krónan er samt eins og Tígur sem vinnur af fullum þunga við að koma landinu útúr kreppunni.

ESB apparatið er einmitt hin gráa hönd dauðans og hún sló okkur svo sannarlega leifturhratt í í höfuðið í bankahruninu 2008, með þessu handónýta og hripleka ESB- regluverki fyrir banka og fjármálafyrirtæki og fjórfrelsinu svokallaða. Þetta kerfi og regluverk sem átti að vera Turbó pottþétt en reyndist svo handónýtt. Allt það reggluverk og tilskipanafargan var einmitt smíiðað af reglumeisturunum óskeikulu og bjúrókrati þessa ESB apparats og skrifað í Brussel, með þessari gráu HÖND DAUÐANS !

Gunnlaugur I., 26.3.2010 kl. 14:49

7 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Í fyrsta lagi þá standa þessi lönd ekki berskjöldið.

Evran hefur hjálpað meira en skaðað. 

Krónan var ein ástæðan fyrir að við komum okkur í þessa kreppu.

Viltu að Ísland segir sig úr EES og EFTA eða?

Ég hef oft langað að vita hver er framtíðarsýn Heimssýnar. Eru það AGS, gjaldeyrishfötin og krónan til framtíðar?

Sleggjan og Hvellurinn, 26.3.2010 kl. 18:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband