Leita í fréttum mbl.is

Stjórnarmenn Evrópusamtakanna um RÚV og ESB-málið

Andrés PéturssonTveir stjórnarmenn í Evrópusamtökunum, Andrés Pétursson og Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifa grein í Fréttablaðið í dag um RÚV og ESB-málið. Í greininni velta þeir fyrir sér hlutverki RÚV sem "fjölmiðils í þágu almennings" varðandi þetta mikilvæga mál. Þeir benda á að RÚV hefur ákveðnar skyldur samkvæmt lögum að fjalla um mál sem snerta málefni lands og þjóðar, en segja svo: ´

 "Nú er hægt að slá því föstu að ESB-málið er mál sem snertir ,,málefni lands og þjóðar sérstaklega,“  og ásamt EES-samningnum árið 1995 og aðild Íslands að NATO árið 1949, er þetta eitt mikilvægasta málið sem er á ,,dagskrá“ hjá þjóðinni.

Gunnar Hólmsteinn ÁrsælssonVald fjölmiðla til að setja mál á dagskrá er óumdeilt. Almenningur talar um þau mál sem komast í fjölmiðla og eru þar til umfjöllunar.Þessvegna er hlutverk RÚV í ESB-málinu gríðarlega mikilvægt. Að upplýsa almenning um kosti og galla aðildar, framleiða efni um ESB og þess háttar hlýtur því að falla undir hlutverk RÚV sem almannafjölmiðils, fjölmiðils fyrir alla íslensku þjóðina.

Það er okkar von, sem ritum þessa grein að RÚV rækti skyldur sínar við landsmenn í þessu mikilvæga máli og geri það á þann hátt að almenningur geti myndað sér skoðun út frá bestu mögulegu forsendum.  Opin, málefnaleg, og hreinskilin umræða hlýtur að teljast vera eitt af helstu einkennum lýðræðisins.

ESB-málið verður svo að lokum lagt í dóm þjóðarinnar, þegar aðildarsamningur er tilbúinn. Á grundvelli þeirra upplýsinga sem þá liggja fyrir mun íslenska þjóðin í þjóðaratkvæðagreiðslu segja annaðhvort JÁ eða NEI.

Alla greinina má lesa hér.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Albert Rögnvaldsson

RÚV hefur engar forsendur né heimild til að fjalla um ESB málið og á að láta það algerlega ógert. "Hlutlaus umræða" um pólitík er ekki til og verður aldrei til: ESB málið er fyrst og fremst stórpólitík og ekkert annað en stórpólitík.
 
Ef RÚV tæki að sér að fjalla "hlutlaust" um stefnu og framkvæmd stjórnmála Sjálfstæðisflokksins, til þess að reyna að gera kjósendum ljóst hvað flokkurinn er og stendur fyrir, þá yrði það aldrei. Aldrei.
 
Þeir flokkar sem berjast fyrir ESB-aðild eiga að berjast fyrir sínum málum. Allt annað væri þvættingur sem heima á í ruslatunnum fáránleikans.
 
Það er bara einn flokkur sem berst fyrir ESB aðild; Samfylkingin og þess vegna á að draga umsóknina til baka, strax. Hún á ENGAN rétt á sér.  
 
RÚV ætti hinsvegar að vera gagnrýnið á ríkisstjórnina, umsóknina og ESB og horfa gagnrýnum augum á það sem þar erlendis er að gerast og hefur gerst, á frekar vofufleygan hátt, verð ég að segja.
 
RÚV á að segja okkur sannar fréttir úr raunveruleikanum. En það gerir RÚV ekki og er því eins konar ríkisstjórnar fréttastofa DDRÚV.
 
Kveðjur 

Gunnar Albert Rögnvaldsson, 17.5.2011 kl. 13:06

2 Smámynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Gunnar: Eins og við bendum á þá á RÚV samkvæmt lögum að fjalla um t.d. ESB og gera það með ákveðnum hætti, t.d. að bjóða talsmönnum Já og Nei hreyfinga til sín.

Þú ert hinsvegar fljótur að mála þig út í horn með frösum á borð við DDRÚV o.s.frv. Sumir fíla rosalega þennan húmor eins og sést í MBL og þar færðu inni, enda á sömu línu og ritstjórinn (DO).

Þið Nei-sinnar eruð að öllum líkindum logandi hræddir við að fólk kynni sér ESB og hvað það stendur fyrir. Þess vegna viljið þið draga þetta til baka.

Gaman verður svo að sjá hvort ég fæ svar sem inniheldur t.d. orðið heróín eða eitthvað þaðan af verra!

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, 17.5.2011 kl. 17:18

3 Smámynd: Gunnar Albert Rögnvaldsson

Sæll nafni og takk fyrir svar, þó barnalegt sé, sem fyrri daginn. 

Enginn stjórnmálaflokkur nema Samfylkingin hefur ESB-aðild á dagskrá sinni. Enginn. Eins og þú veist sækja þingmenn umboð sitt til kjósenda - en ekki öfugt.

Umsóknin inn í ESB er því án umboðs frá þjóðinni og VERÐUR skilyrðislaust að draga til baka. Hún er óþolandi smán við lýðræðislega stjórnarhætti og halda mætti að við værum nú þegar komin inn í Evrópusambandið, því þetta er svo hörmulega svæsið brot á lýðræðislegum hefðum og leikreglum.

RÚV getur ekki gengið einkaerinda Samfylkingarinnar og verið uppfyllingarefni undir mölbrotin og svikin kosningaloforð Vinstri grænna.

ESB-málið er algerlega og eingöngu flokkspólitískt mál. Það er einnig bæði stórpólitískt og hápólitískt sprengiefni. Það er og verður eingöngu gæluverkefni Samfylkingarinnar einnar. RÚV á ekki að sjá um að reka pólitísk mál fyrir einstaka flokka.

Framferði ríkisútvarps allra landsmanna - sem það segist vera en er ekki - og sem ég og aðrir landsmenn fjármagna, er fyrir neðan allar hellur. Því er í hæsta máta sanngjarnt að líkja því við Austur-Þýskan fjölmiðil sem er í vasa ákveðinna afla samfélagsins. Svo viðrist einmitt vera, marg ítrekað! RÚV er mölbrotin stofnun.

Gunnar Albert Rögnvaldsson, 17.5.2011 kl. 18:15

4 Smámynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Ég vill frekar vera barnalegur en uppfullur af hroka og almennum fúlheitum. Það eru fáir sem hafa hlutina jafn mikið á hornum sér og þú! Að vera orðljótur er engin kúnst.

Þú hefur engar sannanir fyrir því að RÚV sé að reka mál fyrir einstaka flokka og í raun mjög alvarleg ásökun.

Þið NEI-sinnar og hatursmenn ESB viljið bara einfaldlega taka af þjóðinni þann rétt að fá að kjósa um þetta mál. Af því það hentar ekki ykkar málstað, sem er veikur, úrræðalaus og íhaldssamur. Sömu "element" og héldu bændum í ánauð hér í gamla daga og komu í veg fyrir þróun atvinnuhátta hér á landi.

Eins og ég sagði áður, þá eruð þið sennilega með hjartað í buxunum yfir því að fólk verði upplýst um ESB og það sem full þáttaka í því hefur fram að færa fyrir fjölskyldur og atvinnulíf hér á þessu landi.

Svo eru sennilega fleiri sem eru mölbrotnir!

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, 17.5.2011 kl. 19:05

5 Smámynd: Páll Þorsteinsson

Af hverju var esb málið ekki lagt fyrir dóm þjóðarinnar til að byrja með fyrst þetta er svona mikilvægt mál?

Hefði ekki verið betra að fá breiða samstöðu um þetta miklvæga mál áður en það var farið út í aðildarviðræður?

Og af hverju er svona leynd yfir þessum aðildarviðræðum?

Af hverju upplýsir utanríkisráðherra og allir þeir sem koma að þessum aðildarviðræðum okkur ekki betur um hvað er í gangi?

Samfylkingunni tókst að kljúfa þjóðina algjörlega eftir að þau tóku við stjórn með kúgunarbrögðum sýnum. Það hefði verið gáfulegra hjá þeim að sýna fyrst að þau gætu stjórnað landinu áður en þau hugsuðu um það að fara sækja um esb aðild.

Það virkar frekar á mig einosg þið evrópusambandselskendur séuð með hjartað í buxunum yfir því að fólk sjái alltaf betur og betur að við eigum enga samleið með esb, esb regluverkinu og síðast en ekki síst þessu mjög svo stórfurðulega esb þingi!

Það er búið að eyða nóg af pening og tíma í þessar fáranlegu aðildarviðræður og núna viljið þið eyða meiri pening og tíma og láta rúv búa til einhverja spes esb-morfís þætti þar sem við getum horft á fólk rífast í sjónvarpinu um esb, frábær hugmynd hjá ykkur!!

Páll Þorsteinsson, 17.5.2011 kl. 22:06

6 Smámynd: Jón Baldur Lorange

Talandi um frasa (undirstrikun mín)!

Þið NEI-sinnar og hatursmenn ESB viljið bara einfaldlega taka af þjóðinni þann rétt að fá að kjósa um þetta mál. Af því það hentar ekki ykkar málstað, sem er veikur, úrræðalaus og íhaldssamur. Sömu "element" og héldu bændum í ánauð hér í gamla daga og komu í veg fyrir þróun atvinnuhátta hér á landi.

Ef þetta er ekki frasi, og það langur, þá veit ég ekki hvað frasi er.

Jón Baldur Lorange, 17.5.2011 kl. 23:22

7 Smámynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

PÞ: Já, og við viljum fá mann eins og þig í þættina!

JBL: Íhaldssemi er klassískt og gott orð. Rétt eins og það er til hér á landi fólk sem styður eindregið ESB, þá er til fólk hér líka sem leggur fæð á allt sem þaðan kemur, þeir sem ég kalla "hatursmenn" ESB.

Og þú Jón, starfandi í Bændahöllinni, hlýtur nú að þekkja til þeirrar staðreyndar að fólki var haldið í sveitum fyrr á öldum, vegna ótta bænda við samkeppni um vinnuafl frá sjávarútveginum.

Sennilega hluti skýringarinnar á því hversvegna atvinnuhættir hér á landi voru mjög einhæfir fram á síðari hluta 20.aldar 

 Eða vitið þið ekki af þessu?

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, 18.5.2011 kl. 09:16

8 Smámynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Smá viðbót: "Á Íslandi kemur andúð á verslun fram strax í Íslendingasögum, einkum verslun sem er stunduð í ábataskyni. Á sama tíma er líka tekið að takmarka leyfi fólks til að stofna heimili án þess að hafa jarðnæði og búfé til að lifa á, og hefur því banni einkum verið stefnt gegn því að hafa fiskveiðar að aðalatvinnu"

"Hins vegar gera sagnfræðingar nú jafnan ráð fyrir að það hafi ráðið miklu um afstöðu efnaðra bænda, þeirra á meðal flestra embættismanna landsins, að þeir hafi óttast að missa vinnuafl til sjávarsíðunnar og að þurfa að keppa við sjávarútveg um vinnufólk. Bak við umhyggju löggjafans fyrir óforsjálu fólki sem elti svipulan sjávarafla út úr öryggi sveitanna þykjast fræðimenn greina ágjarna tilhneigingu til að einoka vinnuafl landsmanna í þágu landbúnaðar."

Tekið af: http://www.visindavefur.is/svar.asp?id=1754

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, 18.5.2011 kl. 10:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband