Leita í fréttum mbl.is

Hafa Bændasamtökin breyst?

KúBúnaðarþing stendur nú um þessar mundir. Það eru Bændasamtök Íslands sem halda það. Bændasamstök Íslands fá sitt árlega rekstrarfé (500 milljónir) frá íslenska ríkinu (=skattborgurum). Má því segja að íslenskir skattgreiðendur séu að halda búnaðarþing?

Hvað um það, þetta var bara hugleiðing. 

Á Búnaðarþingi heldur leiðtogi íslenskra bænda ræðu. Sá er Haraldur Benediktsson. Hann skrifar líka stundum leiðarana í Bændablaðið, sem Bændasamtökin gefa út. 

Í ræðu sinni á þingi búnaðar kom Haraldur inn á ESB-málið, en bændur sjá rautt, eins og naut í flagi, þegar minnst er á ESB! Í ræðu sinni sagði Haraldur:

"Eitt er það mál sem kannski fyrst og fremst heldur íslenskum landbúnaði í höftum og það er umsókn um aðild að ESB. Nú þekkir nánast hvert mannsbarn á Íslandi afstöðu bænda til aðildar. Við höfum með lýðræðislegri umræðu mótað afstöðu okkar. Við höfum með öflugu rannsóknar- og fræðslustarfi gert miklu meira en stjórnvöld hafa gert á eigin spýtur til að mynda þekkingu á málefninu. Þau hafa reyndar kallað hingað Evrópusambandið sjálft til að hlutast til fræðslu.
En hvernig sem stjórnvöld vilja halda á ESB-málunum þá hafa bændur lagt fram sínar áherslur í svokölluðum varnarlínum. Þar tökum við skýra afstöðu og útskýrum kröfur okkar varðandi fjölmörg atriði sem hafa verður í huga í ESB-vegferð ríkisstjórnarinnar. Margt bendir nú til að á vettvangi stjórnvalda sé þegar undirbúið að stíga yfir fjórar varnarlínur okkar af sjö.
Bændur segja því aðeins eitt við þig háttvirtur sjávarútvegs og landbúnaðarráðherra; leiktu þér ekki að eldinum. Þú átt á hættu að aðild verði samþykkt. Gerðu allt sem þú getur til að gæta hagsmuna Íslands. Ekki fyrir bændur heldur fyrir framtíð þjóðarinnar. Ef það er svo að íslenskir samningamenn þora ekki að ganga fram með sterka kröfugerð eigum við sitja heima og viðurkenna að klúbburinn hentar okkur ekki og það er tímabært núna.
Heimurinn hefur breyst."


1) Hafa Bændasamtökin breyst?

2) Hvað hafa Bændasamtökin gert "miklu meira en stjórnvöld" til að mynda þekkingu á málinu? Jú, kannski skrifað í Bændablaðið, en það er nánast allt með neikvæðum formerkjum. Bændasamtökin hafa lagt mikla vinnu í það að finna neikvæða hluti um ESB, til að setja í Bændablaðið, sem stundum er dreift með Morgunblaðinu. Það er eins og að leita að nál í heystakki að finna jákvæð skrif um ESB í Bændablaðinu!

3) Eru bændur með hótanir í garð Steingríms J? "Þú átt á hættu að aðild verði samþykkt." Hvað gerist þá - ef aðild verður samþykkt? Hverskonar stíll er þetta? Eða eru bændur bara hræddir um og við að aðild verði samþykkt?

4) Er það virkilega ekki á tæru að samningamenn Íslands hafi sett sér það markmið að ná hagstæðum samningi fyrir Íslands hönd? Hvaða fréttir lesa menn eiginlega? Það hefur ávallt verið markmið að landa góðum samningi fyrir Íslands hönd! Og er enn!!

5) Bændasamtökin ættu að einbeita sér að því að hjálpa til við að ná slíkum samningi, í stað þess að vera í fýlu úti í horni! 

6) Og hvernig í ósköpunum heldur ESB-málið íslenskum landbúnaði í höftum? Hvernig væri að útskýra þessa fullyrðingu? Hvað með okurvexti, verbólgu, hruninn gjaldmiðil? Eru þetta ekki þættir sem frekar halda íslenskum landbúnaði í höftum? Á hvaða plánetu eru menn?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þeir sem hafa mesta þekkingu á íslenskum landbúnaði eru að sjálfsögðu íslenskir bændur.Þótt einhverjir aðrir telji sig vita betur hvað er íslenskum bændum  fyrir bestu, þá er það að sjálfsögðu ekkert annað en forræðishyggja.Það er ekkert nýtt fyrir landsbyggðafólki, að fólk sem sér ekkert annað en ESB telji að það eigi að hafa vit fyrir íslenskum bændum og viti betur en þeir hvernig eigi að reka landbúnað á Íslandi.Sem betur fer eru íslenskar landbúnaðarvörur í hágæðaklassa og það þrátt fyrir allan þann niðurrifsáróður sem stöðugt dynur á landsmönnum og hefur gert í yfir 50 ár.Þar fer fremst í flokki krataliðið og aftaníossar þess sem nú sjá ekkert annað en ESB og telja að best sé að leggja íslenskan landbúnað niður og ganga í ESB.Áfram íslenskir bændur.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 27.2.2012 kl. 21:30

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Nú er ESB ríkisstjórnin búin að tala um "samning " sem verið er að gera við ESB í tæp 3 ár "samning" sem átti að gera á einu og hálfu ári í það lengsta að sögn ESB ríkisstjórnarinnar íslensku þegar sótt var um .Það getur ekki þurft meira en hálft ár í það lengsta til  að klára viðræður um landbúnaðinn ef ætlunin er á annað borð að ræða hann.Ef  ESB er ekki tilbúið til að ræða lanbúnaðarmálin og sjávarútvegsmálin og fá niðurstöðu í þau næsta hálfa árið þá ber að sjálfsögðu að fara með það í þjóðaratkvæði hvort halda skuli viðræðunum áfram eða draga aðildarumsóknina til baka.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 27.2.2012 kl. 21:39

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Kosningabaráttan fyrir næstu Alþingiskosningar er byrjuð.Sem betrur fer þá eru augu VG að opnast fyrir því að VG getur ekki logið sig aftur inn á Alþingi.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 27.2.2012 kl. 21:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband