Leita í fréttum mbl.is

Heillandi framtíðarsýn!

drakma2Þann 29.maí birtist frétt á RÚV sem hefst svona: "Þjóðarbankinn, stærsti banki Grikklands, varaði í dag við hugmyndum um að snúa baki við evrusamstarfinu og sagði að það myndi hafa hörmulegar afleiðingar.

Í yfirlýsingu frá bankanum sagði að lífskjör myndu versna til muna. Meðaltekjur myndu minnka um meira en helming og nafnvirði nýs gjaldmiðils lækka um 65 prósent. Þá myndi verðbólga fara yfir 30 prósent og atvinnuleysi fara úr 21 prósenti í 34 prósent. Auk þess sem Grikkir gætu ekki staðið við skuldbindingar sínar gagnvart lánardrottnum."

Heillandi framtíðarsýn!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Örn Ægir Reynisson

Æji það er ekki laust við að maður sé farinn að vorkenna ykkur krötum þá þið eigið það ekki skilið.

Paste/

Bretland: Æðstu menn ræða viðbrögð við vanda evru­svæðisins

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, kallaði nokkra æðstu stjórnendur brezka ríkisins saman til fundar í gær til þess að ræða viðbrögð við hugsanlegu falli evru­svæðisins í kjölfar frétta frá Spáni um vanda banka þar. Á fundinum voru nokkrir helztu ráðherrar ríkis­stjórnar­innar, Sir Mervyn King, banka­stjóri Englandsbanka og Turner, lávarður, stjórnar­formaður FSA, brezka fjármála­eftirlitsins.

Örn Ægir Reynisson, 30.5.2012 kl. 00:54

2 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Er nú þjóðarbanki Grikklands farinn að tala mannamál, svona alveg án hjálpar? Hættur að vera steindauð og samviskulaust steinsteypu-stofnun?

Ja, ennþá gerast kraftaverkin, það verður ekki annað sagt.

Ætli elítubankasvikinn almenningur í Grikklandi sé þá búinn að missa málfrelsið í samræmi við þessi umskipti á steinsteypunni samvisku og sálarlausu?

Getur jafnvel verið að almenningur í Grikklandi vilji losna við allt stjórnmálelítu-steinsteypu-bankaráns-evru-batteríið "talandi"? 

Ætli það sé eina raunhæfa lausnin fyrir almenning í Grikklandi með mannréttindi, sál og mannamál, að losna við afætu-ESB-elítu-evru-himnaríkið "heilaga og friðsamlega"?

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.5.2012 kl. 09:01

3 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Eins manns dauð er annars brauð.

Vissulega hjálpar gengisfall einhverjum. En mitt mat er að þegar öllu er á botni hvolft þá mun almenningur í Grikklandi blæða mest við úrsögn úr evrunni.

Þó að NEI sinnar á Íslandi segja eitthvað annað.

Sleggjan og Hvellurinn, 30.5.2012 kl. 11:04

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

þessar fréttir frá styrmi&birni síðustu vikur um einhverja neyðarfundi eða viðbragðafundi í bretlandi viðvíkjadi evru - þetta er bara bull. Maður skilur ekki hvernig annar þessar manna fór að vera ritstjóri öll þessi ár og hinn ráðherra.

þessi fundur sem þeir ræða um núna síðast var bara venjulegur fundur, löngu skipulagður, og ekkert boðað til hans í tilefni einhverrar Evru útí heimi.

það kom ma. til umræðu á fundinum hvort væri einhver áætlun varðandi breska ferðamenn ef hraðbankar í Grikkl. hættu að virka. oþh.

það vareinhver önnur svona frett um daginn - eitthvað neyðarplan varðandi fjöldaflutninga frá grikklandi. Bara bullfrétt. M.a. mogginn kokgleypti þetta.

Sú frétt var bara útlegging Tele og túlkun eftir að þeir þvældu einhverjum ráðherra inní að jánka því að það væri til áhættumt um allar mögulegar uppákomur sem hægt væri að hugsa sér. Aðalfréttin var um að að UK ætlaði að taka hart á ólöglegum innflytjendum. Síðan tókst tele að þvæla einhverjum fjöldaflótta frá grikklandi inní það. Bara bullfrétt.

En það sem er þó athyglisvert er - ef það er svona vont að hætta með evru. Manni hefur skilist á andsinnum að það væri svo gott! Nei nei, þá er það orðið svo vont að hætta með evru.

Soldið dæmigert fyrir andsinna. það er þessi both-ways hugsanatenging hjá þeim. Ekkert röklegt samhengi í orðræðu þeirra og á stundum líkast því að bandóðir vitleysingar séu að tala og skrifa.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 30.5.2012 kl. 11:51

5 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Það má lesa sig til um, og horfa á fréttir um ESB annarsstaðar en hjá Styrmi, enda er hann ekki hátt skrifaður hjá mér á mannúðar og heiðarleika-mælikvarðanum.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 31.5.2012 kl. 00:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband