Leita í fréttum mbl.is

Gleðilegan þjóðhátíðardag!

Fáni ÍslandsÓskum landsmönnum til hamingju með þjóðhátíðardaginn.

Njótið dagsins!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Takk sömuleiðis, dúllurnar mínar!

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 11:27

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Að þið skulið taka ykkur í munn óskir um góðan þjóðhátíðadag er beinlínis aulalegt. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.6.2012 kl. 12:13

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ísland hefur verið SJÁLFSTÆTT og fullvalda ríki frá 1. desember 1918.

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 12:21

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Já þangað til og ef ykkur tekst að troða okkur inn í ESB. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 17.6.2012 kl. 12:35

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Danmörk, sem er í Evrópusambandinu, er sjálfstætt og fullvalda ríki og öll ríki sambandsins líta á sig sem sjálfstæð og fullvalda.

Færeyjar og Grænland eru hins vegar EKKI sjálfstæð og fullvalda ríki og heldur EKKI í Evrópusambandinu.

Danmörk tekur þátt í að semja lög og reglur Evrópusambandsins og getur hvenær sem er sagt sig úr sambandinu.

Íslenska ríkið tekur hins vegar upp megnið af lögum Evrópusambandsins, án þess að taka nokkurn þátt í að semja þau.

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 13:16

6 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Til hamningu með Íslenskan þjóðhátíðardag.ESB fær þá kveðju líka, með þeim skilaboðum að ESB fáninn blakti hvergi við hún á Íslandi, við hlið íslenska fánans og geri það ekki í Færeyjum, Grænlandi,Noregi eða Rússlandi, og muni ekki gera hvað sem kötturinn í Sörlaskjólinu BREIMAR hátt.

Sigurgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 13:46

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Eða BRÍMAR.

Sigurgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 13:47

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

FÆREYJAR.

"20% of Faroe Islands' national budget comes as economic aid from Denmark, which is about the same as 50% of Faroe Islands' total expense budget."

The Faroe Islands

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 14:20

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

GRÆNLAND.

"About HALF of public spending on Greenland is funded by block grants FROM DENMARK which in 2007 totalled over 3.2 billion kr.

Additional proceeds from the sale of fishing licences and the annual compensation FROM THE EU represents 280 million DKK per year."

Greenland

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 14:21

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

"FÆREYSKA KRÓNAN" ER BUNDIN GENGI EVRUNNAR

"Færeyska krónan er jafngild dönsku krónunni.

Gengisbinding dönsku krónunnar við evruna nær því einnig til Færeyja - OG GRÆNLANDS.
"

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 14:23

11 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Gleðilegan bankaræningja-þjóðhátíðardag? Eru það ekki skilaboð Evrópusamtakanna?

Á gömlu Moggahöllinni blaktir fáni með stjörnum, og hefur gert í nokkur misseri. Það er mikil hamingja fyrir seðlabankayfirvöld Evrópu, að fá að kúga almenning á Íslandi, með góðri aðstoð tindáta ESB á Íslandi. Þetta þykir fólki kannski eðlilegt, en ég sé ekkert annað en gegnsýrð svikaverk og kúgun ESB á lýðræði íslendinga.

Ég óska Evrópusamtökunum til hamingju með heiðurinn af að aðstoða við að útrýma lýðræðinu á Íslandi, sem er í raun eini varnarveggurinn sem á eftir að fella hér, fyrir ESB-elítuna.

Ég var svo reið út í stjórnsýsluna á Íslandi árið 1995, þegar ég flutti til Noregs, að ég þoldi ekki 17 júní í mörg ár. Það er þess vegna mjög mikil brenglun að kenna mig við þjóðrembing, eins og sumir gera. En ég er lýðræðissinni, og um það þarf ekki að deila. Það er mikill munur á þessu tvennu.

M.b.kv.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 17.6.2012 kl. 15:56

12 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Engin umræða er í Grænlandi um inngöngu í ESB.ESB hefur ekkert orðið ágegnt með Grænlendinga. Ekkert bendir til annars en að Grænland verði fullvalda ríki innan 20 ára, og verður þá auðugasta ríki heims hvað snertir náttúruauðlindir.Færeyingar bíða eftir því að íslendingar hafni inngöngu í ESB svo hægt sé að slá alla ESB umræðu út af borðinu í Færeyjum.ESB verður ekki hleypt að norðurheimskautinu.Íslendingar munu sjá um það í apríl á næsta ári. Það þýðir að Noregur, Grænland, Færeyjar, Rússland, Kanada og Bandaríkin munu ekki gera það heldur.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 16:32

13 Smámynd: Þorsteinn Briem

Stýrivextir Seðlabanka Íslands hafa verið miklu hærri en á evrusvæðinu og voru komnir í 13,3% í júní 2007, 15,5% í maí 2008 og 18% í október 2008.

Og verðbólgan var 18,6% í janúar 2009, þegar Davíð Oddsson var ennþá bankastjóri Seðlabankans.

Stýrivextir hérlendis og á evrusvæðinu 2002-2007


Seðlabanki Evrópu ákveður stýrivexti á öllu evrusvæðinu og þeir eru nú 1% en stýrivextir Seðlabanka Íslands 5,75%.

OG HÉR Á ÍSLANDI ERU GJALDEYRISHÖFT.

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 16:32

14 Smámynd: Þorsteinn Briem

15.5.2012:

"Á síðastliðnum 18 árum hafa stýrivextir Seðlabanka Íslands verið á bilinu 4,25% til 18%.

Bankinn hefur fjórum sinnum á tímabilinu hafið hækkunarferli sem staðið hefur frá 3 mánuðum upp í rúm 4 ár."

Óverðtryggð lán næm fyrir vaxtahækkunum

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 16:33

16 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

En það er að sjálfsögðu allt í lagi að græða á ESB. En það er ekki í lagi að vera þar innandyra.Þá verðurðu rændur og kemur út eins og breimaköttur sem hefur sett skottið á milli lappanna, ef það hefur þá ekki verið klippt af.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 17.6.2012 kl. 16:36

17 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 16:38

18 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Ísland varð SJÁLFSTÆTT og fullvalda ríki 1. desember 1918 og fékk þá í hendur æðsta vald Í ÖLLUM málum sínum, þar á meðal utanríkismálum. En samið var um að Danir færu með utanríkismálin í umboði íslensku ríkisstjórnarinnar."

Meðferð utanríkismála - Utanríkisráðuneytið

Ísland var ekki í konungsríkinu Danmörku frá 1. desember 1918 til 17. júní 1944, heldur var það konungsríkið Ísland sem fékk nýja stjórnarskrá árið 1920 til að endurspegla þær miklu breytingar sem höfðu orðið á stjórnskipun þess. Og sú stjórnarskrá var kölluð Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands.

Eina raunverulega breytingin
sem varð hér 17. júní 1944 var að þá kom forseti  í stað kóngs eða drottningar en íslenska þjóðin kaus þó ekki forseta fyrr en árið 1952, þegar Ásgeir Ásgeirsson varð forseti. Sveinn Björnsson varð fyrsti sendiherra Íslands árið 1920 og varð hér ríkisstjóri árið 1941.

Bók um sambandslögin frá 1918 eftir Matthías Bjarnason


"Í formála bókarinnar er það rifjað upp að Alþingi var kvatt saman tvívegis á árinu 1918 og var frumvarp dansk-íslensku samninganefndarinnar, sem nefndin undirritaði 18. júlí það sama ár og ráðuneyti Íslands féllst á þann sama dag, samþykkt óbreytt 9. september með atkvæðum 37 þingmanna, en tveir voru á móti.

Þjóðaratkvæðagreiðsla
fór fram 19. október og voru lögin samþykkt með 12.411 atkvæðum gegn 999. 43,8% kjósenda greiddu atkvæði. [...] Dagurinn 1. desember 1918 var lokadagur í þeim árangri að Ísland varð sjálfstætt og fullvalda ríki."

Þorsteinn Briem, 17.6.2012 kl. 17:00

19 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

ÁCÞ: Ja, ekki fékkstu kveðju frá þínum ástkæru Nei-samtökum! Eru þau ekki alltaf að tala um þjóðrækni?

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 18.6.2012 kl. 07:33

20 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Jú ég ætlaðist ekki til að fá kveðju frá þeim.  Ég tek hlutina ekki persónulega.  Mér finnst bara mínir ágætu að fólk sem vinnur að því öllum árum að koma þjóðinni inn í helsi ESB geti ekki haldið 17. júní hátíðlegan.  Þið eruð að mínu mati og það er mitt mat eingöngu ekki sannir íslendingar.  Fólk sem ekki berst fyrir sjálfstæði Íslands eru ekki íslendingar í eðli sínu.  Heldur alþjóðagemsar sem halda að allt erlent sé betra en íslenskt.  Það heitir á mínu máli minnimáttarkennt.  Takk samt fyrir svarið.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 18.6.2012 kl. 10:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband