Leita í fréttum mbl.is

Góður penni!

Einar Helgason, bílstjóri, skrifar frábæran pistil á Eyjunni. Við höfum áður bent á þennan pistlahöfund en þessi pistill slær hinum fyrri við. Hann beinir orðum sínum gegn L-lista og Þórhalli Heimissyni (mynd) og segir m.a.:

Þóhallur Heimisson,,Hvernig í veröldinni getur Þórhallur Heimisson haldið því fram að hinn venjulegi Íslendingur geti tapað bæði frelsi sínu og fullveldi með því að ganga í ESB. Er hann þá kannski að hugsa um þessar þúsundir sem eru búnir að missa bæði atvinnuna og íbúðina og eru í örvæntingafullri leit að vinnu erlendis til þess að bjarga fjölskyldu sinni eða sinni eigin mannlegu reisn. Eigum við ekki frekar að þakka fyrir það að þetta fólk hefur frelsi til þess að leita sér að atvinnu í Evrópu.

Hefur maðurinn aldrei heyrt um að Evrópusambandið sé samansett af frjálsum og fullvalda ríkjum sem hafa ákveðið að vinna saman að friði í álfunni og sameiginlegum hagsmunum? Eða finnst honum að Svíþjóð og Danmörk vera dæmi um lönd sem séu bæði búin að tapa fullveldi sínu og frelsi þegar miðað er við Ísland?

Ef svo er þá vil ég minna hann á að um þessar mundir stöndum við Íslendingar úti á berangri með allt niðrum okkur vegna þess að við kunnum ekki fótum okkar forráð í fjármálum. Kannski eru það einhverjir sem telja frelsið og fullveldið vera fólgið í því að hlaupa um bæði blankir og berrassaðir það er auðvitað vel hugsanlegt."

Þennan stórfína pistil má finna á: http://lugan.eyjan.is/2009/03/23/ad-glata-slaturkeppnum/#comment-408

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Andri Geir Arinbjarnarson

Ég hef búið hálfa mína ævi í EB löndum (Danmörku og Bretlandi) og ekki get ég sagt að ég hafi kynnst þar kúguðum og ófrjálsum landsmönnum.  Nei því miður þeir sem tala hæst gegn EB gera svo án staðreynda og reynslu.  Er AGS gæsla betri en EB aðild?  Ekkert EB land þarf að sækja um AGS hjálp því EB mun hjálpa sínum aðildarríkjum. Samband sjálfstæðra ríkja sem standa saman.  Írskir banka fóru ekki á hausinn af því Írland var í EB og hafði evru annars hefði Írland farið sömu leið og Ísland.  Meir um þetta á blogginu mínu. 

Andri Geir Arinbjarnarson, 23.3.2009 kl. 19:03

2 Smámynd: Haraldur Hansson

Ég held að engum detti í hug að fólk upplifi sig sem "kúgað og ófrjálst" við það að ganga í ESB. En þó að ástandið verði sem betur fer aldrei svo slæmt réttlætir það ekki framsal á valdi yfir eigin velferð. Það verður alltaf til tjóns á endanum.

Hvað svo sem gott má segja um ESB þá passar fámenn þjóð sem byggir hag sinn á fiskveiðum ekki vel inn í þann ramma sem þar er sniðinn. Í það minnsta á ekki að nota kreppuna til að koma okkur þarna inn.

Haraldur Hansson, 23.3.2009 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband