Leita í fréttum mbl.is

Valur Ingimundarson í Krossgötum

CrossroadsKrossgötur Hjálmars Sveinssonar er yfirleitt með afar athyglisvert efni og á síðasta laugardag var fyrsti gestur þáttarins Dr. Valur Ingimundarson, sagnfræðingur. Hann og Hjálmar ræddu m.a ,,sannleiksnefndir", alþjóðamál, viðbrögð við hruni, stöðu íslands í samfélagi þjóðanna o.s.frv. Óhætt er að mæla með þessu spjalli þeirra félaga, en það er að finna hér

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þór Helgason

Þetta er athyglisvert viðtal.  Pólítíkusar eru hugmyndafræðilega gjaldþrota og þjóðinn með.  Stórþjóðir nota aflsmuni og neyða þannig minni þjóðir til hlýðni. 

 Síðan hrunið átti sér stað er bara búið að losna við hluta af þeim þingmönum sem sátu á þingi og bjuggu til vandræðinn. þeir eru væntanlega þeir sem Dr. valur á við. Við þurfum sem sagt að losna við hinn hlutan. 

Og betri rök fyrir því að ganga ekki í ESB hef ég ekki heyrt.  Stórþjóðir hika ekki við að beita stærð sinni til að ná sýnu fram.  Enda flæða peningar frá Norðurlöndum og Þýskalandi til austurevrópu og Suðurevrópu.  Sennilega af hræðslu þjóðverja við sjálfan sig sætta þjóðverjar sig við þetta skipulag.

Það gleymist alltaf í umræðunni að bandamenn sem komu vestanmeginn að Berlín voru ekki síður að misnota konur en Rússarnir. 

Finnst Evrópublogginu virkilega rétt að beita ofríki til að ná sýnu fram? 

ég hef ekki heyrt neinn af mínum félögum tala um icesave þannig að við séum fórnarlömb.  ég hef bara heyrt það af mönnum sem eru að semja um icesave eða ESB-sleikjur. 

Flestir vilja fá sanngjarna meðferð þannig að við getum gegnið frá borði sátt.  Það er ekki ásættanlegt að við séum að greiða fyrir ákvarðanir Breta og Hollendinga. Það er ekki sanngjarnt að nota hryðjuverkalög. Það er ekki sanngjarnt að nota stórar opinberar stofnanir til að beita okkar þrýstinginn.

Ef ég fer í að vorkenna mér, þá er það að ég vorkenni mér að hafa við stórnvölinn fólk sem hefur fyrst og fremst að markmiði að fá starf í ESB og hafa ekki manndóm til að verja þjóð sína.

Getið þið annars sagt hvert ég að snúa mér hjá Evrópusambandinu til að fá styrk fyrir félagasamtök til að berjast á móti aðild Íslands að ESB?

Jón Þór Helgason, 23.11.2009 kl. 23:43

2 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Heyrði þetta með öðru eyranu.

Jú jú margt athyglisvert í viðtalinu - en...

Eg geri athugasemd við eitt aðtriði sérstaklega.

Valur talar eitthvað á þá leið að Nojarar myndu aldrei koma íslendingum til hjálpar og taka þar með afstöðu með íslendingum "í öllum þessum deilumálum" við aðrar þjóðir.  Myndu taka samstarf við breta framyfir etc.

"Deilumálum" ?  What "deilumálum" ??

Það eru engin deilumál.  Jú eitt atriði þarna snýst um að Ísland standi við alþjóðlegar skuldbindingar sínar - sem 2-3 sjallabjálfar telja að ekki eigi að gera. 

Allt og sumt.  Öll ósköpin.  Öll hin voðalegu "deilumál"

Hvaða tal er þetta ?

Nojarar mundu örugglega lána íslendingum ef eftir yrði leitað - en að sjálfsögðu með því skilyrði að stjórnvöld höguðu sér eins og siðaðir einstaklingar - ekki bara eins og 2-3 sjallabjálfar !

Þetta snýst ekkert um Noreg-Bretland.

Eh fokking EES samningurinn ?  Einhver ?? 

Nojarar eru aðilar að sömu skuldbindingum varðandi innstæðutryggingar á EES svæðinu.  Halló !

Kveikja nú á perunni íslendingar.  Dísus !

Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.11.2009 kl. 13:23

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Heyrðu Ómar Bjarki þú ert nú ekki alveg í lagi samanber rugl þitt hér að framan.

Jón Þór Helgason sem skrifaði hér ágætan pistil á undan þér var ekkert bara að tala um 2 til 3 Sjalla sem hefðu komið þjóðinni í þessi ICESAVE vandræði en samt í samhengislausri rökleysu þinni talarðu um að við verðum að standa við skuldbindingar þjóðarinnar en í hinu orðinu talarðu um þessa 2 til 3 Sjalla og svo um að Ísland þurfi að standa við alþjóðlegar skuldbindingar. Ekkert í alþjóðlegum skuldbindingum hvorki EES né ESB segir að heil þjóð þurfi að skuldbinda þjóðina fyrir einkabanka 2ja til 3ja "Sjalla" eða hvaðan þeir annars komu. Þvert á móti er það bannað að heil þjóð gangi í slíka skylirðislausa ábyrgð og að það stríði beinlínis gegn samkeppnislögum.

Samhengislaus rökleysa þín og ykkar ESB Aftaníossa er með þvílíkum endemum "Dísús" og það er í raun enginn bloggsíða sem er betri en þessi til þess að lesa og fara í gegnum til að sjá að málflutningur ykkar og samhengislaus rökleysa ykkar halda ekki vatni í einu eða neinu !

Ykkur er í raun vorkunn að vera Íslendingar og reyna að verja þennan vonlausa og arfavitlausa ESB málstað og það gegn ykkar eigin þjóð ! Svei ykkur !

Gunnlaugur I., 24.11.2009 kl. 18:55

4 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Nei nei þetta er alveg kristalskýr pistill hjá mér.  Kristaltær og hreinn.

Sko, sjáðu til, fyrst: Skuldbindingarnar urðu til er fyrsta pundið kom inná reikning landsbankans í London.  Alveg á sömu stundu.  Liggur alltfyrir og er óumdeilt - NEMA hjá, og þá kemur að:

second, "2-3 sjallabjálfar" er líking eða súmmering á því fyrirbrigði sem hefir borðið á meðal íslendinga að Ísland eigi ekki að standa við skuldbindingar sínar - afþvíbara !  Og hafa 2-3 sjallafræðimenn verið framalega í flokki því viðvíkjandi - og þangað er líkingin sótt.

Þetta er nú eigi flókið.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 24.11.2009 kl. 22:33

5 identicon

Gott og vel, en gallinn er sá að engir fræðimenn yfir höfuð hafa haldið því fram að Íslendingar hafi nokkurn tíman gengist undir þessar skuldbindingar.

Aðeins „nokkrir samspillingarbjálfar“, þ.e.a.s. allir þeirra og enginn þeirra telst fræðimaður.

Svo er það grundvallarsiðferðið að menn geti ekki borið ábyrgð á því sem þeir hafa enga stjórn á, eða jafnvel vitneskju.

Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 24.11.2009 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband