Leita í fréttum mbl.is

Serbía: Viljum fljótt inn í ESB

Vuk JeremicSerbía sótti um aðild að ESB í lok desember. Í fréttum dagsins hefur komið fram að Serbía vilji komast sem hraðast inn í ESB. Vuk Jeremic, utanríkisráðherra Serbíu lét hafa þetta eftir sér:

,,In several years, Serbia will join the EU. That is a promise we make and which we intend to keep, Jeremic said."

Þeir ætla sér s.s. nokkur (several) ár í þetta og er talað um 2014 sem fyrsta möguleika.

Þeir hafa einnig gert upp við sig hvaða fjórar meginstoðir (pillars) verða í utanríkisstefnu landsins: Moskva, Peking, Washington og BRUSSEL.

Svo virðist sem Serbía sé þjóð sem sé búin að marka sér skýra stefnu í samskiptum sínum við erlend ríki.

Á meðan er hvað í gangi hér?


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pétur Harðarson

Er ekki einhvers konar kreppa hér?  Eru ekki heimilin í landinu í bágri stöðu?  Skuldastaða heimilanna hefur aukist og aukist.  Samt hafði þessi ríkisstjórn það sem algjört forgangsatriði að eyða miklum fjármunum, mannafla og tíma í fylla út umsókn um ESB aðild.   Hún hefur síðan verið iðin við að tala máli Breta og Hollendinga í alvarlegustu milliríkjadeilu sem Ísland hefur staðið í til að eiga meiri möguleika á þessari blessuðu ESB aðild.

Er það ekki nokkurn veginn það sem er í gangi hér?

Pétur Harðarson, 8.1.2010 kl. 00:09

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Við Íslendingar viljum ekki sjá það að fara inn í þetta bandalag, þetta sambandsríki, þetta evrópska stórveldi.

Hefu Snorri Sturluson, Ásbirningar og Oddaverjar lifað á tölvuöld, þá hefðu þeir mátt horfa upp á það á blogginu, að norska ríkismerkið birtist þar alltaf öðru hverju með áróðri og gyllingu þess að sameina Ísland norska ríkinu.

Hliðstæðan er alger við þennan Evrópubandalagsfána ykkar, sem mælið með því, að lýðveldið verði lagt niður í sinni eiginlegu mynd.

Jón Valur Jensson, 8.1.2010 kl. 00:42

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Já þið ESB strangtrúar-liðið þyrftuð svo sannarlega að vakna upp og skoða og skilgreina hlutlaust hvað er raunverulega í gangi hér.

Málið er að hér er algerlega búið að sundra þjóðinni og það á versta tíma í sögu hennar, til þess eins að keyra á þessu trúaratriði Samfylkingarinnar að það skuli koma landi og þjóð undir yfirráð ESB Stórríkisins.

Við þessa iðju er einskis svifist og sannast það best á vinnubrögðunum og stöðugum undanslættinum við ICESAVE samningunum, sem líka og enn og aftur hafa nú sundrað þjóðinn og var nú ekki á bætandi. 

Nú undanfarna mánuði og áfram vinna meira en 200 sérfræðingar og hálaunafólk innan stjórnsýslunnar við það eitt að að fylla út skrifræðisskýrslur fyrir þetta Yfirríkja-bandalag, til að reyna að koma okkur þarna inn sama hvað það kostar og það á mettíma.

Á sama tíma vinna 18 manns hjá Sérstökum Saksóknara við að rannsaka bankahrunið og allt það svínarí.

Svona eru nú áheresluatriðin hjá þessu liði og þetta er gert í algjörri andstöðu við mikinn og vaxandi meirhluta þjóðarinnar !

Svo eruð þið bara alveg hissa !

Jú ég veit svo sem að þið eruð svo upptendraðir af þessari ESB trú ykkar að þið munuð aldrei skilja afhverju stærstur hluti Íslendinga vill ekkert með þetta Bandalag hafa að gera yfir höfuð. 

Þegar svo þjóðin verður búinn að kolfella og hafna algerlega aðild að þessu Sameinaða Stórríki Evrópu, hverjum á þá að senda himin háan reikninginn sem þjóðin verður þá búinn að eyða í þetta fánýta bull !

YKKUR OG SAMFYLKINGUNNI KANSKI ?

Getiði kanski sótt um styrk í þetta í eitthvert af þessum  fjárhagslegu ginnungargöpum ESB apparatsins ! 

Kæmi mér ekki á óvart !

Gunnlaugur I., 8.1.2010 kl. 16:14

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Já, svo sagði Össur að minnsta kosti – þ.e.a.s. að Brusselvaldið borgi, ef við göngum í stórríkið! Þau er ljóst á öllu, að herrarnir þar líta á þetta sem góða fjárfestingu í þessum útverði Evrópu,

1) með allt að 2/7 af allri fiskveiði Evrópu,

2) með hernaðarlegt mikilvægi vegna legu sinnar, ekki aðeins milli Rússlands og Ameríku, heldur Evrópu og Austur-Asíu, þegar norðurleiðirnar opnast um Íshafið,

3) með aðgang að Norðurskautsráðinu,

4) með lykillegu til að þjóna sem uppskipunar- og þjónustustöð fyrir jafnvel stærstu flutningaskip yfir Norðurskautið til Kína, Japans og Kóreu, eftir að pólsvæðið verður næstum íslaust,

5) sennilega með ýmsar olíulindir innan efnahagslögsögunnar,

6) þar að auki er Ísland það lykilríki sem þeir telja, að falla þurfi fyrir ginningu þeirra, svo að þeir komist yfir Noreg líka.

Jón Valur Jensson, 8.1.2010 kl. 19:35

5 Smámynd: Pétur Harðarson

Ég vil fá að sjá hvað er verið að eyða miklu í þessa ESB umsókn.  Er enn svona mikill fjöldi embættismanna að vinna við þessa vitleysu? Ég vil fá að vita hver heildarkostnaður er, með launum og öllu!  Ég vil líka vita hversu miklum tíma hefur verið varið í þetta í stjórnsýslunni.  Það hlýtur að vera hægt að nálgast þessar upplýsingar hjá ríkisstjórn sem stendur fyrir auknu gagnsæi (hahaha) í stjórnmálum.

 Ég vil að þetta verði borið saman við hversu mikill tími og mannfjöldi er settur í t.d. vinnu hjá félagsmálaráðuneytinu.  Er verið að vinna að einhverju marktæku þar?

Að vera að spá í ESB inngöngu núna er svona alíka gáfulegt og að moka peningum í KSÍ til að stefna að gullinu í fótbolta á næstu ólympíuleikum.   Það er ekkert að fara að gerast.

Pétur Harðarson, 9.1.2010 kl. 01:42

6 Smámynd: Jón Valur Jensson

Stjórnvöld hér héldu því fram í upphafi, Pétur, að þetta yrði rétt innan við 1000 milljónir (920 eða 980M?), þó að Jón Bjarnason ráðherra mótmælti strax þeirri upphæð sem óraunhæfri, út frá þekkingu sinni í ráðuneytinu, því að ekki væri gert ráð fyrir meira en 50M til hvers ráðuneytis. En menn í stjórnarandstöðunni spáðu 2 milljörðum, jafnvel þremur. Seinna kom svo Össur fram með það mat, að þetta yrði 1,5 milljarðar, og það var einmitt þá sem hann bætti þessu við um að EB myndi borga þetta að meira eða minna leyti, ef við færum inn!

Jón Valur Jensson, 9.1.2010 kl. 02:50

7 Smámynd: Pétur Harðarson

Þannig að planið hjá þeim hefur þá verið að þegar kæmi að kosningu um ESB þá fylgdi loforð um aðstoð við Icesave byrðarnar og endurborgun á þessari peningasóun af umsóknin yrði samþykkt.

Ég verð æ sannfærðari um að þessi stjórn hafi ætlað sér að nýta sér Icesaveskuldina til að styrkja sína stöðu og draga okkur inn í ESB.  Þau vilja gera okkur að píslarvottum frjálshyggjurnar.  Nú er þetta allt að fjúka í andlitið á þeim.  Þó að stjórnir Sjálfstæðisflokksins hafi komið okkur í mjög vond mál þá var það út af gáleysi.  Þessi ríkisstjórn hefur sýnt af sér sterkan brotavilja og ég er sannfærður um að sagan muni dæma að þessi stjórn hefur unnið okkur mun meiri skaða á einu ári en Sjálfstæðisflokkurinn gerði alla sína stjórnartíð.

Pétur Harðarson, 9.1.2010 kl. 03:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband