Leita í fréttum mbl.is

Ólafur Arnarson: ESB mikilvægt fyrir framtíðina

Ólafur ArnarsonPressupenninn Ólafur Arnarson fjallar um mál Alex Jurshevski, sem birtist í Silfri Egils um helgina og olli nokkru umtali. Það er þó líklegt að sá náungi skilji lítið eftir sig hér á landi. Í þessum nýjasta pistli sínum fer Ólafur yfir sviðið og kemur m.a. inn á Evrópumálin. Um þau segir hann:

,,ESB mikilvægt fyrir framtíðina
 Við verðum að komast út úr verðtryggingunni. Verðtrygging letur fjármagn. Það er betra að liggja með peninga á verð- og ríkistryggðum hávaxtareikningum en að verja þeim í áhættufjárfestingar. Leiðin út úr verðtryggingunni liggur í gegnum upptöku evru. Evru tökum við ekki upp nema að ganga fyrst í Evrópusambandið. Þess vegna er innganga í ESB einhver mikilvægasta efnahagsaðgerð, sem íslensk stjórnvöld geta beitt sér fyrir.

Það er ekki nóg að huga að bráðavandanum. Það verður að horfa fram á veginn og innganga í ESB og upptaka evru eru órjúfanlegur hluti af efnahagslegri velsæld okkar, þegar litið er fram á veginn. Í Evrópumálum hefur Samfylkingin sýnt staðfestu og á hrós skilið fyrir. En vinstri stjórn mun hvorki leysa bráðavandann né leiða okkur til hagsældar í framtíð. Vitað er að í þingliði Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks eru margir þingmenn, sem styðja aðildarumsókn Íslands að ESB.

Sjálfstæðisflokkurinn á krossgötum
 Línur þurfa að skerpast í Evrópumálum og ef það hefur í för með sér formlegan klofning Sjálfstæðisflokksins verður bara svo að vera. Í sjö áratugi var Sjálfstæðisflokkurinn afl framfara á Íslandi. Síðasta áratuginn hefur flokkurinn verið í gíslingu þjóðernisöfgamanna og nýjum formanni hefur því miður ekki tekist að frelsa hann. Frjálslyndir og evrópusinnaðir sjálfstæðismenn geta ekki setið hjá og horft á flokk sinn standa í vegi fyrir mikilvægasta framfaramáli samtímans.

Samtökin Sjálfstæðir Evrópumenn eru mikilvægt skref í þá átt að ljá Evrópusinnum innan Sjálfstæðisflokksins rödd. Það er hins vegar ekki víst að við höfum tíma til að bíða eftir því að stuðningsmenn og andstæðingar ESB aðildar í Sjálfstæðisflokknum útkljái sín mál eftir hefðbundnum ferlum í flokknum. Slíkt getur tekið ár eða áratugi. Uppgjörið verður að eiga sér stað og hagsmunirnir eru miklu stærri en svo, að einhverju máli skipti hvort Sjálfstæðisflokkurinn í núverandi mynd kemst óskaddaður frá þeim leik."

Allur pistill Ólafs

(Mynd: Pressan)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það koma engin rök fram í þessum pistli Ólafs, um inngöngu í ESB. Þetta er hanns skoðun og allt gott með það, en ég sé ekki hverjum komi það svo sem við.

Ólafur Arnarson er ekkert merkilegri en aðrir Íslendingar, hann er bara eins og hver annar krati og skrifar samkvæmt því.

Gunnar Heiðarsson, 17.3.2010 kl. 08:08

2 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Rökin eru að komast útur verðtryggingunni því hún letur fjármagn.

Ágætis rök hjá Ólafi Sjálfstæðismanni.

Sleggjan og Hvellurinn, 17.3.2010 kl. 19:24

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Það þarf ekki að ganga í ESB til þess "að komast útúr verðtryggingunni"

Það væri mun fljótlegra og skilvirkara að við ákveddum þetta bara sjálf og kæmum okkur útúr verðtryggingunni í áföngum á 2 til 3 árum.

Fyrir því væri alveg örugglega mikill vilji meirihluti þjóðarinnar. 

Þó við gengjum í ESB á morgun þá væri ekki möguleiki á að taka hér upp Evru fyrr en eftir lágmark 10 til 12 ár og samkvæmt áliti margra færustu sérfræðinga á sviði  efnahags- og peningamála þá er alls óvíst að Evran sem slík verði til þá. 

En auk þess er alls enginn vilji fyrir því hjá miklum meirihluta þjóðarinnar að ganga inní þetta ESB apparat, þannig að það er um tómt mál að tala. 

Hvað svo sem þessi hlaupatík útrásarvíkinganna hann Ólafur Arnarson þenur sig og sperrir stél !

Gunnlaugur I., 18.3.2010 kl. 09:17

4 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Við getum losnað við verðtrygginguna með lögum rétt er það.

En af hverju er verðtrygging í gangi?

Jú vegna þess að hagstjórnin á Íslandi hefur verið í bullinu seinustu 50ár. Svo lengi sem við búum við lélega hagstjórn þá neyðumst við að hafa verðtryggingu.

Aðal ástæðan fyrir verðbólgunni núna er vegna falls krónunnar. Sú verðbólga væri ekki ef við höfðum Evru.

Það er barnalegt að halda að bara með því að klippa á verðtryggingu þá verður bara allt í gúddí. Það er verðbólgan sem er rót vandans.

Þó við uppfyllum ekki Maastrich skilirðin strax þá getum við farið í ERM-2 program fljótlega.

Sleggjan og Hvellurinn, 18.3.2010 kl. 13:46

5 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Tökum undir þetta með SogÞ. Óhamin verbólga er eins og krabbamein í hverju hagkerfi. Henni verður að stjórna. Það hefur ekki tekist hérlendis.

Gunnlaugur: Minnum þig á að nota ásættanlegt tungumál! Þó þú sért ósammála.

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 18.3.2010 kl. 15:39

6 Smámynd: Jóhann Már Sigurbjörnsson

Þetta er alveg týpiskt, vegna þess að íslenskir ráðmenn hafa rekið hér ónýta peningastefnu síðan eftir stríðsár, sem hefur alltaf endað með ósköpum, þ.e. Ísland hefur alla tíð tapað eða eitt peningunum sem það hefur fenið í vitleysu og þá sérstaklega fasteignir. Svo þegar allt í komið er graut er skipt um gjaldmiðil, nýja krónan á móti gömlu osfrv.

Ég sé ekki ástæðu til þess að ganga inn í Evrópusambandið eingöngu í þeim tilgangi að fá nýjan gjaldmiðil. Þetta er tóm þvæla. Við erum með ónýtan gjaldmiðil og verðum að reyna að hressa upp á hann áður en til skiptana kemur hvort eðer.  En þurfum við endilega að taka upp evru, það eru margir aðrir gjaldmiðlar í boði og evrópusinnar nýta sér tækifærið núna til að boða trúnna við ESB.  Við erum með allt það besta frá ESB núþegar og sé ekki hversvegna við þurfum að taka upp evru þegar pundið, DSK, dollarinn og fleiri gjaldmiðlar gætu hugsanlega komið til greina. Einnig var einver gjaldmiðill ræddur í sambandi við orkusöluna til Bretlands og Hollands. Gamblarar: Látið Ísland í friði og hættiði að halda að það séu einhverjar töfralausnir í ESB. Það er það bara ekki, og það mætti eyða tímanum í að finna annan gjalmiðil heldur en Evru heldur en að reyna að troða sér inn í ESB.

Jóhann Már Sigurbjörnsson, 19.3.2010 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband