Leita í fréttum mbl.is

Myndagallerí ungbænda!

Skriðdreki Í ljósi umræðunnar um "her-auglýsingu" Samtaka ungra bænda er fróðlegt að skoða myndagallerí heimasíðu ungra bænda.

Þar sést hvað þetta "uppátæki" er gjörsamlega út úr kortinu!

Hér er krækjan:Smellið á hana og kíkið á myndagalleríið til samanburðar.

Og enn stendur eftir spurningin: Eru auglýsingarnar borgaðar af almannafé í gegnum styrki frá Bændasamtökunum? Fróðlegt væri að fá svar frá ungbændum!

Þetta gefur ef til vill tilefni til þess að fjárveitingarvaldið, sem styrkir íslenska bændur um 10 milljarða á á ári og lætur Bændasamtökunum í té um 500 milljonir á ári, skoði betur hvernig þessum peningum sé varið?

Er það virkilega svo að bændur, sem margoft hafa lýst því yfir að þeir vilji ekki ræða ESB-málið, noti svo opinbert fé í vitleysu eins og þessa? 

En þetta er á hreinu: Ungir bændur hafa keyrt illilega útaf, líkt og skriðdrekinn á myndinni sem fylgir þessari færslu. 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég hvet Evrópusamtökin til að senda formanni Samtaka ungra bænda fyrirspurn um þetta mál.

Helgi Haukur Hauksson
, bóndi í Straumi í Hróarstungu, 701 Egilsstöðum, formaður samtakanna, er með netfangið helgi@isbu.is og símanúmerið  865 1717.

Föðuramma mín bjó í Hróarstungu og henni hefði nú mislíkað það stórlega að bændur væru að ljúga í þjóðina, hvað þá á kostnað íslenskra skattgreiðenda.

Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 13:35

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þið farið mikinn gegn bændum og ekki í fyrsta og síðasta sinn væntanlega.

Það mætti halda að þið væruð haldnir bændafóbíu. 

Að ykkar áliti mega bændur eða samtök þeirra víst ekki hafa sterkar skoðanir, alla vegana alls ekki gegn ESB, af því að atvinnugreinin þeirra í heild, er að hluta til háður ríkisstyrkjum um afkomu sína. 

Sama á reyndar við alls staðar innan Evrópusambandsins. Landbúnaður ESB er líka verulega háður ríkisstyrkjum og niðurgreiðslum frá sjálfu Sambandinu.

Samt held ég nú að þeir eða einstök bændasamtök innan ESB sem víða eru mjög sterk hafi ekki verið svipt tjáninga frelsinu eða öðrum mannréttindum með þessum rökum.

Íslenskir bændur eru sem betur fer frjálsir menn og samtök þeirra líka.

Þeir eða samtök þeirra eru ekki réttlausir leiguliðar ríkisins eða ESB, eða eins eða neins.

Viljiði ekki líka með sömu rökum svipta þá kosningaréttinum og kanski fleiri mannréttindum líka bara af því að atvinnugreinin þeirra nýtur verndar og fyrirgreiðslu frá hinu opinbera, sem bundinn er í lög landsins okkar.

Fjárframlög til atvinnugreinarinnar eru bundinn í lög og lúta ákveðnum reglum og lögmálum og þeir verða síðan að haga útgjöldum sínum í samræmi við þessar greiðslur og aðrar tekjur af búvörum sínum.  

Það eru því samtök bænda sem ákveða hvernig þeir telja best að berjast fyrir hagsmunum atvinnugreinarinnar og félagsmanna sinna.

Þeir og samtök þeirra hafa algerlega hafnað ESB aðild og hafa nú mjög eftirminnilega varað við því að með hugsanlegri inngöngu í ESB og með tilliti til orða og gerða margra forystumanna sambandsins þá sé hugsanlegt að stofnaður verði sérstakur ESB- her og það myndi þeim ekki huggnast.

Að segja að bændur megi ekki eyða fjármunum sínum með þessum hætti eða öðrum eða hafa þessar skoðanir á málum er fáránlegt og beinlínis andlýðræðislegt.

En reyndar er þessi yfirgangur og hroki gegn bændum alveg í takt við annað hjá þessu ofstækisfulla ESB trúboði hér á landi og reyndar alveg í anda ESB valdsins sem stöðugt skerðir bein lýðréttindi almennings.

Gunnlaugur I., 29.5.2010 kl. 15:07

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég hef ekkert á móti HEIÐARLEGUM bændum, Gunnlaugur fyrsti.

Og ég bjó sjálfur í sveit í áratug.

Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 15:16

4 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlaugur I, staða bænda á Íslandi er þannig að annaðhvort eru bændur að fara á hausinn eða farnir á hausinn. Staðan er mjög slæm og illa gengur að halda uppi bóndabæjum svo vel sé. Engu að síður er landbúnaður styrktur um 10 milljarða á ári hérna á Íslandi.

Það gildir einu þó svo að sérhagsmunasamtök Bænda hafi hafnað ESB aðild. Það er nefnilega ekki þeirra að ákveða stefnur í þessum málum á komandi árum.

Það er ennfremur ljóst að Bændasamtökin hafa tvo kosti í stöðunni, að taka þátt í samningaviðræðunum um ESB eða gera það ekki. Ef þau gera það ekki, þá verður samið um málið og hugsanlega komast þá ekki atriði að sem Bændasamtökunum hugnast. Eins og staðan er í dag, þá eru Bændasamtökin að skrifa sig útúr samningsferlinu við ESB á komandi mánuðum. Slík er frekjan og yfirgangurinn hjá þeim.

Bændur innan ESB hafa það mun betra, þó svo að vandamálin þar séu næg eins og annarstaðar.

Ég frábið mér að heyra svona bull um íslenska bændur eins og það sem þú kemur með hérna Gunnlaugur I.

Jón Frímann Jónsson, 29.5.2010 kl. 15:22

5 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Gunnlaugur: Bændur NEITA opinberlega að ræða ESB-málið, þetta er svolítið "skondið" í því ljósi.

Verður þetta nálgun bænda á ESB-umræðuna, hlutir eins og þetta rugl?

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 29.5.2010 kl. 15:26

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það er nú ansi skondið að Gunnlaugur fyrsti skuli vera alfarið á móti Evrópusambandinu og VALIÐ að búa á Spáni.

Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 15:32

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

11.5.1994: Finnland og Svíþjóð undirrita samning við NATO um friðarsamstarf

"NATO’s relations with Ireland are conducted through the Partnership for Peace framework, which Ireland joined in 1999. NATO and Ireland actively cooperate on humanitarian, rescue, peacekeeping and crisis management and have developed practical cooperation in a range of other areas, as provided for in Ireland’s Individual Partnership Programme (IPP).

NATO highly values its relations with Ireland. The Allies view Ireland as an effective and pro-active partner and contributor to international security, which shares key values such as the promotion of international security, democracy and human rights. Irish cooperation with NATO is based on a longstanding policy of military neutrality. From this basis Ireland selects areas of cooperation with NATO that match joint objectives.

An important area of cooperation is Ireland's support for NATO-led operations. Ireland is currently contributing to the peacekeeping operations in Kosovo and Afghanistan. In the past, it supported the NATO-led operation in Bosnia and Herzegovina."

13.2.2009: NATO's relations with Ireland

Þorsteinn Briem, 29.5.2010 kl. 16:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband