Leita í fréttum mbl.is

Oj bara, evrópskir peningar!

Oj bara!Ekki láta viðbrögðin á sér standa þegar fréttir berast af því að Ísland geti nýtt sér, takið eftir, GETI NÝTT SÉR, fjármagn sem kallað er IPA-framlag og sagt er frá í fjölmiðlum dagsins. Það er enginn sem neyðir Ísland til þess að nota þetta, okkur stendur þetta til boða, m.a. vegna þess að ESB mismunar ekki ríkjum!

Stefán Haukur Stefánsson, aðalsamningamaður Íslands lætur hafa eftir sér: "Evrópusambandið hefur stutt önnur ríki með þessum hætti sem hafa farið þessa leið og lítur á það sem skyldu sína að koma til móts við ríki sem standa í þessu ferli, enda gerir ESB sér grein fyrir því að aðildarviðræður eru flókið og umfangsmikið ferli sem getur reynt á stjórnsýslu ríkja,“ segir Stefán."

Um er að ræða (mögulega!) fjóra milljarða, sem dreifast yfir fjögur ár = 1 milljarður per ár. Þjóðarframleiðsla Íslands er um 1500 milljarðar. Þetta er því 0.000667% af þjóðarframleiðslunni per ár!

Og þetta kalla sumir ógeðfellt, mútufé og annað slíkt. Ef hægt er að múta landi með ekki meira fé en þetta, er það þá ekki frekar "léttkeypt"eða ódýrt?

Segir mikið um á hvaða plani umræðan er!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þetta eru ekkert annað en mútur og reyndar aðeins byrjunin á fjáraustrinum sem nú verður ausið úr fjárhyrslum áróðurs- og útbreiðslustofnunar ESB elítunnar. 

Nú verður í boði alls kyns styrkir og fjárframlög fyrir félagasamtök og einstaklinga sem tilbúnir eru að ganga erinda ESB elítunnar við að útbreiða fagnaðarerindi ESB elítunnar og véla land og þjóð undir ESB valdaapparatið !  ESB eyddi milljörðum Evra í auglýsingar og áróður til þess að reyna að fá Íra til að kjósa "rétt" öðru sinni. Það tókst með milljörðum Evra. 

Við Íslendingar verðum í heildina ekki auðveldlega keyptir af svona óforskömmuðu valdaapparati eins og ESB, þó svo að búast megi við að einhverjir veiklundaðir föðurlandssvikarar teigi sig eftir silfurpeningunum til að svíkja land sitt og þjóð !

Við skulum vera vel á verði ! 

Gunnlaugur I., 29.6.2010 kl. 14:21

2 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlaugur I, Þetta er ekkert nema lygi og þvæla í þér. Þetta eru styrkir sem hafa það markmið að styrkja umsóknarríkin og gera þau tilbúinn til þess að takast á við ESB aðild sína ef að henni verður.

Allt tal um annað eins það sem þú setur hérna fram er bara tóm þvæla.

Jón Frímann Jónsson, 29.6.2010 kl. 18:38

3 identicon

Sæll Gunnlaugur ! Þetta eru styrkir og ísland getur að sjálfsögðu hafnað þeim. Það eru einkum illa sett lönd sem hafa fengið styrkina. T.d. lönd í A- Evrópu. það er merkilegt að þú skulir tala um mútur. Hingað til hefur þetta orð ekki verið til í orðaforða ykkar sjálfstæðismanna. Tugir milljóna í styrki til flokksins eru ekki mútur. Styrkir stórfyrirtækja til Guðlaugs Þórs uppá 25 milljónir eru eðlilegir styrkir og hefur ekki hvarlað að neinum að kalla þá mútur.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 30.6.2010 kl. 09:27

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Herra Hrafn Arnarsson.

Sem betur fer eru alls ekki allir andstæðingar ESB aðilda innmúraðir Sjálfstæðismenn annars væri fylgið gegn ESB aðil alls ekki svona yfirgnæfandi  mikið og alls ekki u.þ.b. 70% af þjóðinni eins og það í raun er.

Ég er alls ekki einn af þeim sem tel mig til stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins eða hef stutt hann í kosningum þó hann sé með ýmis góð mál á stefnuskrá sinni.

En þjóðin er þjóðin og fólkið sem þar lifir þrátt fyrir alla stjórnmálaflokka og meira að segja þrátt fyrir Samfylkinguna og hennar óþjóðlegu stenfnu sem telur sig auk þess hafa einkarétt á takamarkalausum  ÉSB- rétttrúnaðinum !

           ÁFRAM ÍSLAND - EKKERT ESB !

Gunnlaugur I., 30.6.2010 kl. 13:13

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Til að ítreka það þá kalla ég líka styrki til Guðlaugs Þórs, Steinunnar Valdísar og Gísla Marteins og reyndar margra fleiri frambjóðenda Samfylkingar- og Sjálfstæðisflokks ekkert annað en MÚTUR og beina peningafyrirgreiðslu fyrir hagsmunagæslu af versu sort.

En ESB apparatið er sko ekki skárra, jafnvel sýnu verra og stórtækara og umsvifameira !

Hversu margir stjórnmála- og embættismenn munu standast  mútugreiðslur og silfurpeninga ESB Elítunnar !

Stöndumst við það ? 

Gunnlaugur I., 30.6.2010 kl. 13:25

6 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Gunnlagur I, Ertu fluttur frá ESB ?

Jón Frímann Jónsson, 30.6.2010 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband