Leita í fréttum mbl.is

Mikil ESB-umræða á Smugunni

VGGreinilegt er að ESB-málið hefur hleypt miklu lífi í umræðuna innan VG um málið - á Smugunni.

Hugtakið "Blámenn" hefur blandast inn í það vegna ummæla Bjarna Harðarson, hins nýja upplýsingafulltrúa Jóns Bjarnasonar, á málþinginu. Menn hafa deilt um það hvað Bjarni sagði og hvað ekki og hvernig. Það væri fróðlegt að heyra hljóðupptöku af því - myndband væri enn betra!

Um "Blámenn" ræðir Agnar Kr. Þortsteinsson hér 

Pétur Óli Jónsson tjáir sig einnig um ESB málið hér 

Þetta er málið VG - ræða málið! Ekki gera eins og flutningsmenn "Heimssýnar-tillögunnar" vonuðust til, þ.e. að leggja fram tillögu, í þeirri von að hún yrði samþykkt og ESB-málið þar með dregið til baka.

Íslenska þjóðina á að fá tækifæri til þess að útkljá þetta mál - með því að greiða atkvæði um aðildarsamning. 

Það er hið sanna lýðræði í málinu! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Bjarni elskar bláa menn,
Bíbí, Styrmi og þá alla,
strumpagengi stal í den,
stofnar flokkinn ljótra kalla.

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 17:22

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Rætinn lýginn fæst við rím,

Raupar,þetta undrabarn,

Segist heita steini Briem

sæmir honum betur skarn,

Mogga aldrei vann hann á,

ESB, hann trúa kann,

Ranglar ræfill til og frá,

rugludallur heitir hann.

Sigurgeir Jónsson, 28.10.2010 kl. 18:01

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ísland fékk aðild að Evrópska efnahagssvæðinu í ársbyrjun 1994.

Formaður Vinnuveitendasambands Íslands í árslok 1997:


"SÍÐUSTU þrjú árin hafa lífskjör landsmanna batnað til muna og kaupmáttur launa farið ört vaxandi.

Skattframtöl fyrir árið 1996 sýna að kaupmáttur atvinnutekna í heild hafi aukist um rúm 6% og verður að fara áratug aftur í tímann til að finna sambærilega hækkun.


Nýjustu upplýsingar Kjararannsóknarnefndar benda til þess að kaupmáttaraukinn verði enn meiri á þessu ári.

Á þremur árum hefur því kaupmáttur tekna landverkafólks hækkað um 15-20%.


Þetta eru miklu meiri breytingar launa og kaupmáttar en í öðrum Evrópuríkjum. Þar eru tekjubreytingar um þessar mundir 3,5-4% að jafnaði og árleg kaupmáttaraukning um 2%.

Kaupmáttaraukningin er mun meiri en búist var við fyrirfram.


Laun hafa hækkað nokkuð umfram samninga en miklar kostnaðarhækkanir hafa ekki leitt til samsvarandi hækkunar á verði vöru og þjónustu.

Verðbólgan hefur með öðrum orðum verið mun minni en vænta mátti.

Skýringin liggur í aukinni framleiðni sem orsakast meðal annars af harðri samkeppni, svo og miklu betri nýtingu afkastagetu í atvinnurekstri samfara mikilli veltuaukningu.

Fyrirtækin hafa þannig brugðist við af mikilli snerpu og staðið undir miklu meiri vexti en vænst var."

Evrópska efnahagssvæðið
- Wikipedia

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 18:20

4 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Það er ljóst að ESB mun ekki leggja fram eitthvað sem heitir hjá þeim "samningur" á kjörtímabili þessarar ríkisstjórnar.Það liggur fyrir að ESB krefst þess að áður en skrifað verður undir,verður Ísland að vera búið að innleiða þau lög sem ESB þóknast að leggja fram áður en "samningaferli" hefst." samningaferlið" er ekki hafið og enginn veit hvenær það hefst.Tvö og hálft ár eru eftir af kjörtímabili núvarandi ríkisstjórnar.Þannig að ESB málið verður kosningamál næstu þingkosninga.Það er ljóst.En VG ber fyrst og fremst ábyrgð á því ef ESB hefur Íslendinga að fíflum.Sem það er nú þegar að komast upp með.Nei við ESB og tímamörk strax.

Sigurgeir Jónsson, 28.10.2010 kl. 18:24

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ólafur Ragnar Grímsson í London 3. maí 2005 - "How to succeed in modern business":

"NO ONE IS AFRAID TO WORK WITH US; people even see us as FASCINATING ECCENTRICS WHO CAN DO NO HARM and therefore all doors are thrown wide open when we arrive."

"I have mentioned this morning only some of the lessons which the Icelandic voyage offers, but I HOPE THAT MY ANALYSIS HAS HELPED TO CLARIFY WHAT HAS BEEN A BIG MYSTERY TO MANY.

Let me leave you with A PROMISE THAT I GAVE at the recent opening of the Avion Group headquarters in Crawley.

I formulated it with a little help from Hollywood movies:

"YOU AIN'T SEEN NOTHING YET!""

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 18:28

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Geispaði næstum þar golunni,
grafinn í vestfirskri holunni,
vitnaði í bók þar um veginn,
vestfirski forsetinn hinsegin.

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 18:30

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

ÍSLENSK SVEITARFÉLÖG Í EVRÓPUSAMBANDINU.

RÚMLEGA ÞRIÐJUNGI af fjárlögum Evrópusambandsins, um 347 milljörðum evra, verður varið til BYGGÐAMÁLA á tímabilinu 2007-2013.

Byggðaþróunarsjóður.

Sjóðnum er ætlað að jafna stöðu einstakra svæða. Áhersla er til dæmis lögð á nýsköpun í þekkingariðnaði og rannsóknum, umhverfismál og samgöngur en sérstök áhersla er lögð á dreifbyggð svæði og erfið.

Samstöðusjóður.

Sjóðnum er ætlað að styrkja ríki sem verða fyrir verulegu tjóni af völdum náttúruhamfara, til dæmis veðurs.

Aðlögunarsjóður.

Sjóðnum er ætlað að styrkja væntanleg aðildarríki og veita þeim aðstoð við að undirbúa og uppfylla ýmis nauðsynleg skilyrði fyrir inngöngu í Evrópusambandið.

Félagsmálasjóður.

Sjóðnum er ætlað að jafna félags- og fjárhagslega stöðu íbúa í álfunni. Áhersla er lögð á ýmiss konar menntun og að styrkja stöðu hópa sem eiga undir högg að sækja, til dæmis innflytjenda, fatlaðra, ungs og gamals fólks á vinnumarkaði.

Landbúnaðarsjóður.

Sjóðurinn skiptist í tvennt, annars vegar er um að ræða styrki til bænda og hins vegar styrki til dreifðra byggða.

Styrkir til sjávarbyggða.

Evrópusambandið veitir styrki til sjávarbyggða úr sjóði sem heitir European Fisheries Fund og stuðningurinn byggir á fjórum stoðum:

• Aðlögun flotans.

• Fiskeldi, vistvænar veiðar, vöruþróun og markaðssetning.

• Veiðistjórnun og öryggismál.

• Stuðningur við byggðir sem eru að verulegu leyti háðar fiskveiðum og til að stuðla þar að fjölbreyttari atvinnuvegum.


Íslensk sveitarfélög í Evrópusambandinu

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 18:31

9 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Auminginn ekkert betra kann,

en yrkja níð um forsetann,

í því  steini friðinn fann,

fari hann bara til andskotans.

Sigurgeir Jónsson, 28.10.2010 kl. 20:04

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Racism is the belief that the genetic factors which constitute are a raceprimary determinant of human traits and capacities and that racial differences produce an inherent superiority of a particular race."

Racism
- Wikipedia

Þorsteinn Briem, 28.10.2010 kl. 20:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband