Leita í fréttum mbl.is

Ómar Valdimarsson: Góðar fréttir af aðlögun

Einu sinni var Mogginn í Austurstræti og þá sáu menn þar rautt, þegar þeir litu til austurs. Það var í þá daga er Sovétríkin voru og hétu. 

Nú sjá mennirnir í Hádegismóum ennþá rautt þegar þeir horfa í austur, en nú er það Evrópa og ESB sem er orsök roðans.

Morgunblaðið í dag gerir sér (mikinn) mat úr ætlaðri AÐLÖGUN Íslands að ESB og finnst þetta hið versta mál. 

Ómar ValdimarssonÓmar Valdimarsson, blaðamaður, bloggar um þetta, finnst áðurnefnd aðlögun af hinu góða og skrifar:

,,Það voru góðar fréttir sem Mogginn flutti í gær af umsóknar/aðlögunarferlinu að ESB. Sambandið ætlast til þess að Íslendingar taki upp Evru, geri umbætur á dóms- og stjórnkerfi og aðlagi atvinnuvegina að þeim búskaparháttum sem tíðkast meðal menningarþjóða Evrópu. 

Mér finnst þetta góðar fréttir því þær gefa til kynna að um síðir megi vænta þess að vit verði haft fyrir okkur um ýmis þau mál sem hafa reynst okkur ofviða. Gleymum því ekki að helstu umbætur á t.d. dómskerfinu hér hafa verið gerðar til samræmis við góða siði í Evrópu. Aðskilnaður lögreglu- og dómsvalds, sem ekki hafðist í gegn fyrr en eldri maður á Akureyri neyddist til að fara með mál sitt fyrir Mannréttindadómstól Evrópu, er bara eitt dæmi um það. Og þótt ýmislegt umbótastarf sé verið að vinna hér í stjórnkerfinu þessi misserin (eins og þeir vita sem vilja vita), þá þarf vafalaust utanaðkomandi aðstoð til að stíga skrefin til fulls."

Allur pistill Ómars 

Í þessu samhengi má minna á að Ísland hefur farið í gegnum mikla aðlögun að ESB í gegnum EES samninginn, en um 70% af allri löggjöf hér á landi kemur frá ESB. M.a. sagði Geir Haarde á sínum tíma að EES-samningurinn hafi reynst okkur vel. Var sú aðlögun þá slæm?

Og kannski kemur meiri evrópsk aðlögun í veg fyrir handahófskenndar aðgerðir, eins og t.d. þegar Þjóðhagsstofnun var lögð niður, vegna þess að þáverandi forsætisráðherra var ekki sammála stofnuninni!

Sá fyrrum forsætisráðherra ritstýrir nú Mogganum og heitir Davíð Oddsson

Svo má í þessu samhengi vitna í skýrslu þingmanna um Rannsóknarskýrslu Alþingis, en þar semg m.a.: ,, Það er mat þingmannanefndarinnar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir íslenskri stjórnsýslu, verklagi hennar og skorti á formfestu jafnt í ráðuneytum sem sjálfstæðum stofnunum sem undir ráðuneytin heyra. Svo virðist sem aðilar innan stjórnsýslunnar telji sig ekki þurfa að standa skil á ákvörðunum sínum og axla ábyrgð, eins og fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar. Vegna smæðar samfélagsins skiptir formfesta, skráning upplýsinga, verkferlar, tímamörk og skýr ábyrgðarsvið enn meira máli en í stærri samfélögum. Í ljós kemur að upplýsingaskylda ráðuneyta og stofnana, innbyrðis og út á við, virðist ekki hafa verið virk né heldur frumkvæðisskylda, gagnsæi og rekjanleiki."

Gæt evrópsk "aðlögun" verið lausn á þessu? 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Valur Jensson

Þú ættir að lesa ESB-stórfréttir Mbl. í dag, bls. 1, 9 og 12.

Þær eru sízt til framdráttar málefnastöðu ESB-manna.

Jón Valur Jensson, 29.10.2010 kl. 18:31

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Britney spíran stígur brókarlaus út úr bíl.

Myndasería í Mogganum á bls. 1, 9 og 12.

Þorsteinn Briem, 29.10.2010 kl. 19:43

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Föðuramma mín talaði mikið um að margir hafi trúlega fengið krabbamein af því að skeina sig á dagblöðum.

Það gerði prentsvertan. Mogginn lagði marga í gröfina.

Þess vegna hætti ég á Mogganum. Axlaði ábyrgð.

Þorsteinn Briem, 29.10.2010 kl. 20:17

4 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Ég þekki mun fleiri sem notuðu Þjóðviljan og Alþýðublaðið sem skeinipappír, blaðsíðurnar voru nefnilega þynnri og minni prentssverta  sökum andleysis á þeirra fréttastjórn en á Mogganum  og betur til brúks þess sem þú nefndir en Mogginn!

Þetta er mér nefnilega mjög minnistætt sem blaðbera þessara tvegga fyrrnefndra blaðsneplaa um áraraðir á yngri árum, og ég hef borið þess merki æ síðan!

Guðmundur Júlíusson, 29.10.2010 kl. 20:35

5 Smámynd: Guðmundur Júlíusson

Erum við  loks búinn að drepa í Steina "blaðamanni" eða Frímanni gæludýrinu hans ? það er óhuggnanlega hljótt hér !!!!!!!!

Guðmundur Júlíusson, 29.10.2010 kl. 22:51

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvaða aðlögun er verið að tala um. Ekki vissi ég að hér væri ætti að vera aðlögunarferill að ESB. 16 Júlí 2009 var samþykkt að byrja á umræðum vegna mögulegrar inngöngu í ESB en einhverra hluta vegna var send umsókn án tafar sem nú er komin í aðlögunar feril. Ég spyr hvað er að ske. Hefir engin lesið Nefndarálit Utanríkismálanefndar sem var efnið sem kosningar snérust um að ræða feril vegna væntanlegrar inngöngu í ESB.  Er Ómar á spena hjá ESB.

Valdimar Samúelsson, 29.10.2010 kl. 23:45

7 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Ég spyr eru þetta ESB sinnar sem skrifa um skeinispappírinn hér að ofan

Valdimar Samúelsson, 29.10.2010 kl. 23:48

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Þeir sem horfa til austurs eru fyrst og frems þeir sakleysingjar sem vilja draga Ísland inn í ESB.Þeirra sýn nær ekki nema í eina átt, SA átt.Það sem þar er, telur ESB fólkið að sé nafli Alheimsins.Svo er auðvitað alls ekki.Þar eru ekki nema 8% íbúa jarðar, auk þess sem þessi % eru á leiðinni á elliheimili.Ísland á að hafa alla burði til að eiga viðskipti við allan heimin án afskipta gömlu nýlenduveldanna sem munu í framtíðinni gleypa öll smáríki sem í sakleysi sínu afhenda þeim forræði sitt.Morgunblaðið hefur alla tíð horft bæði til austurs og vesturs, norður og suðurs og svo er en í dag.Nei við ESB. 

5

Sigurgeir Jónsson, 29.10.2010 kl. 23:52

9 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Skírðu þetta Ómar ef þú lest þetta. Hefir einhver þjóð ráðið aðra þjóð til þess að hafa vit. Er þetta ekki heimskulegt að segja.

Ómar segir: Mér finnst þetta góðar fréttir því þær gefa til kynna að um síðir megi vænta þess að vit verði haft fyrir okkur um ýmis þau mál sem hafa reynst okkur ofviða.

Menn eru langt leiddir.

Valdimar Samúelsson, 29.10.2010 kl. 23:58

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Meiri skeinipappír sendur til ykkar úr Hádegismóum í fyrramálið!

Þorsteinn Briem, 30.10.2010 kl. 00:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband