Leita í fréttum mbl.is

Evrópuvaktin á "afturlappirnar"!!

Evrópuvaktin rís upp á "afturlappirnar" vegna fréttar kvöldsins um bandalagið á milli Heimssýnar og Bændasamtakanna.

Þar er "frétt" um að RÚV og Stöð tvö hafi gert atlögu að Heimssýn og Bændasamtökunum. Í inngangi fréttarinnar segir:

,,Samfylkingin og ESB-aðildarsinnar hafa blásið til sóknar með aðstoð fréttastofu RÚV og Stöðvar 2 sunnudaginn 31. október. Í kvöldfréttatímum beggja stöðva var flutt efni, unnið á þann veg, að greinilega átti að gefa hlustendum þá mynd, að óeðlilega væri staðið að málum af hálfu þeirra, sem eru andvígir aðild Íslands að ESB. Tilgangur fréttanna var að veitast að starfi Heimssýnar."

Var ekki bara sannleikurinn sagður? Voru ekki settar fram staðreyndir? Hvaða viðkvæmni er þetta?

,,Sannleikanum er hver sárreiðastur," segir máltækið.

Ps. Svo má Evrópuvaktin alveg geta myndheimilda endrum og sinnum. Myndin sem notuð er með fréttinni er því frá Evrópusamtökunum! Hún birtist fyrst hér á blogginu í þessum pistli.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Sendiboðar ESB rísa nú upp með skítkast til þeirra félagasamtaka sem hafna ESB boðskapnum.Nú ræðst ESB í felubúningi að Bændasamtökunum fyri að hafa styrkt Heimssýn um heilar 500.000 kr.Gefið er jafnvel í skyn að Bændasamtökin séu ekki fjárráða.En hvað með þann áróður sem ESB fær að stunda á rúv án þess að borga krónu fyrir.ESB hafði 11/2 kl.tíma í dag í "Silfri Egils" til að flytja áróður sinn endurgjaldslaust.Hvað skyldi ESB hafa þurft að borga ef tekið hefði verið venjulegt auglýsingagjald fyrir  áróðurinn.Væntanlega einhverjar milljónir.Kostulegast var að sjá og  heyra franskan útsendara ESB margéta það upp að nauðsynlegt væri að ESB kæmi að N-heimskautssvæðunum til að koma þar í veg fyrir rányrkju.Ekki var hærgt að skilja manninn á annan hátt ef þýðingin hefur verið rétt.Nú er það svo að óvíða er stunduð meiri rányrkja og arfavitlaus fiskveiðistjórnun en hjá ESB og hefur ESB óskað að eftir ráðgjöf frá Íslandi ,Noregi og Færeyjum við að reyna að laga til hjá sér.Fiskistofnar í Barentshafi eru í góðu lagi og er það fyrst og fremst því að þakka að hvorugt þessara landa er í ESB.Meðan franski ESB maðurinn flutti rugl sitt ,sat íslenski ESB maðurinn Egill Helgason obinminntur og starði á þann franska eins og hann væri guð.Nei við ESB. 

Sigurgeir Jónsson, 31.10.2010 kl. 21:37

2 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Hvorki Rússland né Noregur sem stjórna veiðum í Barentshafi eru í ESB.

Sigurgeir Jónsson, 31.10.2010 kl. 21:39

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Íslenski þorskurinn hefur verið að færa sig sífellt norðar síðan sjór byrjaði að hlína við ísland. Nú þegar berast sögur af þorski á miklu dýpi norður af landinu.Þorskurinn í íshafinu getur þess vegna orðið stór stofn sem þær þjóðir sem að því liggja þurfa að koma sér saman um veiðar úr, þar á meðal Ísland.Þetta veit ESB og ætlar sér sneið af kökunni með því að nauðga Íslandi inn í ESB.Án inngöngu Íslands í ESB hefur ESB ekkert með þetta svæði að gera og getur ekki gert neitt tilkall til þess.Nei við græðgi gömlu nýlenduveldanna.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 31.10.2010 kl. 21:50

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Últrabláa Eurovisonvaktin ALLTAF á útkíkkinu ásamt GAMLA KOMMANUM, Sigurgeiri Jónssyni!!!

Gamlir kallar sem leiðist á elliheimilinu. Nappa myndum í frístundum.

Gömlu dansarnir annað kveld. Bingó og Framsóknarvist.

Þorsteinn Briem, 31.10.2010 kl. 21:57

5 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Það kemur ekkert á óvart að þetta spillingarlið geri tilraun til þess að verja stöðu sína.

Það eiga fleiri svona pistlar eftir að koma fram á næstu dögum. Þar sem ráðist verður á alla þá fjölmiðla og áhrifamikla bloggara sem fjalla um þetta mál á gagnrýnin hátt.

Jón Frímann Jónsson, 1.11.2010 kl. 02:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband