Leita í fréttum mbl.is

Að sitja í súpunni!

SúpaMár Guðmundsson, seðlabankastjóri, segir að EKKI sé hægt að létta gjaldeyrishöftunum á næstu mánuðum. Enginn veit nefnilega hvernig króna bregst við, verði henni sleppt lausri.

Krónan verður því áfram í öndunarvélinni. Þetta eru ekki skemmtileg tíðindi fyrir ríki sem vill vera hluti af opnu, alþjóðlegu hagkerfi. Það er nefnilega Ísland ekki um þessar mundir - við sitjum í súpunni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

4 identicon

Þetta er vond súpa fyrir okkur ESB-sinna.  Miðað við rökin hans Más Guðmundssonar, þá er hægt að segja að það sé aldrei tími til að aflétta gjaldeyrishöftunum.  Það er alltaf eitthvað sem þarf að gera áður.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 19:19

5 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Ef íslendingar ganga ekki í ESB á næstu árum. Þá verða 30 til 50 ár þangað til að gjaldeyrishöftunum verður aflétt á Íslandi. Það er þó eingöngu eftir að innflutningshöft verða sett á íslenskt efnahagslíf.

Það verður auðvitað hægt að gleyma EES aðild og EFTA aðild við slíkar aðstæður. Þar sem slíkar aðgerðir eru andstæðar aðild að EFTA og EES.

Jón Frímann Jónsson, 25.11.2010 kl. 20:18

6 Smámynd: Gunnlaugur I.

Jón Frímann:

Common 30 til 50 ár, þú ert og hefur ekki verið með réttu ráði lengi drengur. 

Það er verið að tala um kannski 1 til 3 ár í viðbót og að draga úr þessum höftum í áföngum á þeim tíma og svo sannarlega megum við þakka fyrir að hafa þann möguleika og rétt sem sjálfstæð og fullvalda þjóð að hafa getað sett þessi takmörkuðu gjaldeyrishöft.

Það er samt ekki eins og öll okkar viðskipti hafi stöðvast við slíkt. Þvert á móti þá eigum við auðveldara en t.d. Írar með að feta okkur útúr alþjóða kreppunni.

Írland með Evru og ESB aðild er í rjúkandi rústum í boði ESB og AGS. Bankakerfið hrunið ofan á skattgreiðendur landsins í boði ESB elítunnar sem heimtar nú að skuldsetja Írsku þjóðina upp fyrir rjáfur til þess að greiða ECB og stærstu bönkum stórríkja Sambandsins sem samt ramba á barmi gjaldþrots sökum ónýts regluverks beint í boði ESB Elítunnar.

Gunnlaugur I., 26.11.2010 kl. 20:06

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Afnám gjaldeyrishaftanna hér Í EINU VETFANGI NÚNA hefur eftirfarandi afleiðingar:

Gengi íslensku krónunnar FÉLLI VERULEGA
.

Verð á innfluttum vörum, þjónustu og aðföngum hækkar því VERULEGA.

VERÐBÓLGAN
HÉRLENDIS EYKST ÞVÍ VERULEGA.

Þar af leiðandi HÆKKA VERÐTRYGGÐ LÁN tekin í íslenskum krónum VERULEGA
.

Íslensk fyrirtæki og heimili eru NÚ ÞEGAR STÓRSKULDUG OG VEXTIR HAFA VERIÐ MJÖG HÁIR HÉRLENDIS.

Vegna aukinnar verðbólgu þyrfti að HÆKKA HÉR STÝRIVEXTI Á NÝ en þá hefur verið hægt að lækka mikið undanfarið vegna minnkandi verðbólgu.

Og hærri vextir valda því að LÆKKA VERÐUR LAUN HÉRLENDIS enn meira en gert hefur verið undanfarið og íslensk fyrirtæki þurfa að segja upp enn fleira starfsfólki.

Verð á erlendum
AÐFÖNGUM HÆKKAR VERULEGA, bæði til fyrirtækja hér og landbúnaðar, til að mynda verð á dráttarvélum, olíu og tilbúnum áburði, þannig að verð á innlendum vörum myndi einnig hækka.

Íslenskir bændur þurfa eins og aðrir Íslendingar að kaupa íslenskar matvörur og greiða af VERÐTRYGGÐUM lánum í íslenskum krónum.

LÍTIL VERÐBÓLGA HÉRLENDIS OG LÁGIR STÝRIVEXTIR ERU HINS VEGAR SKILYRÐI FYRIR ÞVÍ AÐ ÍSLAND GETI TEKIÐ UPP EVRU.

Þorsteinn Briem, 26.11.2010 kl. 21:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband