Leita í fréttum mbl.is

Hvar er hagnaðurinn af krónunni?

Ein krónaAndstæðingar ESB fara mikinn þessa dagan í kjölfar atburða á Írlandi. Og skella skuldinni á Evruna og segja hana rót allra vandræða Íra.

En vandi Íra er skuldavandi, ekki gjaldmiðilsvandi. Og væri kenningu Nei-sinna beitt á Bandaríkin er hægt að draga þá ályktun að dollarinn sé einnig algerlega handónýtur gjaldmiðill. Hversvegna? Jú, skuldir Bandaríkjamanna nema meira en 13 trilljónum dollara (samkvæmt ameríska kerfinu). Kalifornía, sem er talið vera áttunda stærsta hagkerfi heims, er nánast gjaldþrota og hefur verið það lengi. Notar dollar!

Vandi Íslendinga er hinsvegar tvöfaldur: Skuldavandi og gjaldmiðilskreppa (sem ekkert útlit er fyrir að taki enda).

Sumir segja að krónan gagnist útflutningsfyrirtækjum landsins svo vel. En hvað með almenning? Það eru tvö ár síðan krónan hrundi. Hvernig sést þessi þessi frábæri "árangur" krónunnar hjá almenningi? Sést hann í seðlaveskjum almennings? 

Samkvæmt nýrri spá Hagstofunnar er spáð samdrætti á þessu ári í landsframleiðslu. Ekki virðist krónan koma að gagni í því samhengi. Fæ ríkið auknar tekjur í kassann vegna krónunnar? Af hverju er þá endalaust verið að skera niður út um allt?

Hvar er hinn raunverulegi hagnaður íslensks samfélags af krónunni? Getur einhver svarað því?

Gjaldeyrishöftin þýða að erlendir fjárfestar munu forðast Ísland eins og heitann eldinn - þau þýða líka að Ísland er LOKAÐ hagkerfi. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

heyr heyr

Óskar Þorkelsson, 26.11.2010 kl. 08:21

2 identicon

Einn af kostunum við upptöku evru er að viðskiptakostnaður lækkar. Krónan er okkur dýr.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 26.11.2010 kl. 08:23

3 Smámynd: Gunnlaugur I.

Minni á að Dr. Jón Daníelsson hagfræðiprófessor við The London School of Economy, sagði nú nýlega að´Ísland og íslendingar myndu koma miklu betur á öllum sviðum útúr þessari fjámálakreppu heldur en nokkurn tímann Írar.

Yfir Írlandi mun hvíla svartnætti og skuldaklafi næstu árin ef ekki næsta áratuginn.

Ástandið á Írlandi er miklu alvarlegra á öllum sviðum.

1. Atvinnuleysi er helmingi meira.

2. Fólksflótti frá landinu er 5 sinnum meiri. 

3. Ríkisskuldir verða 2falt til 3 falt meiri þegar bújið verður að hengja alla skuldaklafana af AGS og ESB á þeirra galtóma og skuldum vafna ríkissjóð.

4. Bankarnir eru gjaldþrota og ónýtir þrátt fyrir ESB og þrát fyrir Evru.

5. Kaupmáttur launa og þjóðarframleiðsla hefur dregist mun meira saman heldur en hérlendis.

6. Skera þarf helmingi hraðar niður í velferðarmálum en hérlendis.

Athugið þetta áður ne þið dásamið Evru og ESB. 

Gunnlaugur I., 26.11.2010 kl. 08:51

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

held að Gunnlaugur hafi ekki skilið greinina til fulls.. hún fjallaði ekki um Evru.. heldur að vandinn er þvert á gjaldmiðla hvort sem það er evra dollar eða kínverskt juan.. 

Óskar Þorkelsson, 26.11.2010 kl. 08:57

5 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þenna er náttúrulega tóm þvæla hjá honum Gaunnlaugi og ég hvet hann að koma með heimildir fyrir þessu (sem hann mun líklega ekki gera vegna þess að þetta er lýgi).

Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2010 kl. 09:51

6 Smámynd: Guðmundur Jónsson

 ""Kalifornía, sem er talið vera áttunda stærsta hagkerfi heims, er nánast gjaldþrota og hefur verið það lengi. Notar dollar!""

það er tvennt ólíkt að skulda í gjaldmiðli sem maður getur gefið út sjálfur eða gjaldmiðli eins og evruni sem eingin virðist hafa vald yfir.  

 Þú (Evrópusamtökin) opinberar mjög takmarkaðan skilning á málefninu í þesseri færslu.  Íhugaðu af hverju  það er kreppa og landflótti á Írlandi en ekki í Kaliforníu og reyndu að finna og rökstiðja aðra skýringu en að það sé Evran sem veldur. 

Guðmundur Jónsson, 26.11.2010 kl. 09:55

7 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

@GJ: Bandaríkjamenn geta prentað peninga eins og þeim sýnist, en það mun að öllum líkindum ekki leysa vanda Kaliforníu, heldur veikja dollarann.

Er ekki kreppa í Kaliforníu eða USA? Fólk þar flytur sig milli fylkja í atvinnuleit, Írar fara úr landi, rétt eins og þeir Íslendingar sem geta. Flestir Íslendingar leita til Norðurlandanna og Evrópu.

Og eins og einhver sagði í vikunni: ,,Allir geta komið sér á hausinn með góðum vilja." 

Markmið færslunnar var þó það helst að benda á (og spyrja eftir) þessum "miklu kostum" krónunnar, sem sumir vilja meina að séu til staðar. Hvernig sjást þeir? Sérð þú þá? Eykur hún hagvöxtinn núna?

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 26.11.2010 kl. 10:56

8 Smámynd: Gunnlaugur I.

Sleggjan og Co.

Þið berið á mig lygi. Ykkur ferst illa að kasta grjóthnullungum úr Glerhúsi ESB elítunnar.

Það sem ég sagði hér í 6 liðum að ofan um muninn á aðstæðum íslensku þjóðarinnar með sína eigin krón og utan ESB og á hörmulegri stöðu Írlands með Evru og í ESB er sannleikur, sem ykkur í ESB trúboðinu svíður undan.

Því fyrir ári síðan eða svo sögðuð þið um Ísland.

"ÞETTA HEFÐI ALDREI GETAÐ KOMIÐ FYRIR HEFÐUM VIÐ VERIÐ Í ESB OG MEÐ EVRU"

Þessi lygi hefur öll hrunið yfir ykkur og rúmlega það !

Til þess að bera þetta saman er hægt að skoða ýmsar staðreyndir um atvinnuleysistölur hérlendis og á Írlandi. Einnig má lesa um það í alheimspressunni hversu hrikalegur fólksflóttinn er á Írlandi. Talið er að ef heldur sem horfir hafi 6% þjóðarinnar eða 250.000 Írar flúið föðurland sitt í lok næsta árs. Einnig er hægt að sjá hagtölur yfir Írland og Ísland hjá OECD og á ýmsum vefjum ESB sjálfs. Bendi einnig á vefinn "economicprincipals.com. 

Ég nenni ekki að týna þetta allt ofan í ykkur þetta eru bara staðreyndir sem liggja fyrir og eru alls staðar í umræðunni og þetta á eftir að koma betur og betur í ljós hversu ESB og Evran hafa verið Írum og Írsku þjóðinni vita gagnslaus og falskt og handónytt bakland.

Þið viljið bara ekki trúa þessu og berjið því hausnum við steininn, allt skal vera verst á Íslandi alla vega miðað við ESB af því að annað passar bara ekki "ykkar stóra sannleik" um ESB apparatið. 

Gunnlaugur I., 26.11.2010 kl. 12:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband