Leita í fréttum mbl.is

Ingólfur Sverrisson í FRBL: Lćrum af reynslunni

Ingólfur SverrissonÍ Fréttablađinu í dag er ađ finna áhugaverđ grein um ESB-máliđ, eftir Ingólf Sverrisson, forstöđumann málm- og véltćknisviđs hjá Samtökum Iđnađarins. Fyrisögnin er "Lćrum af reynslunni." 

Hann skrifar til ađ byrja međ: ,,Fyrir eitt hundrađ árum voru flestar ţjóđir Evrópu mjög uppteknar af ţví ađ blása upp taumlausa ţjóđernishyggju innan sinna landamćra. Hún byggđist á ţví ađ viđkomandi ţjóđ vćri sérstakari, klárari og merkilegri á alla lund en ađrar ţjóđir á meginlandinu og ţess vegna flest leyfilegt.

Ţetta kemur vel fram í ţeirri merku bók „Veröld sem var" eftir Stefan Zweig sem lýsir ţví hvernig skólarnir voru nýttir til ađ innrćta nemendum sínum dýrkun á öllu ţví sem ţýskt var og um leiđ fyrirlitningu á nágrönnum sínum. Ţetta vođalega fólk vćru einlćgt ađ trođa illsakir viđ ţá og ţví vćri fátt göfugra en ađ lemja á ţegnum ţessara ţjóđa međ vel heppnuđu stríđi til ađ leysa ţar međ öll ţessi leiđindi."

Svo segir Ingólfur: ,,Nú gerast hins vegar ţau undur ađ hiđ virtasta fólk hér á landi telur engum vafa undirorpiđ ađ Evrópubúar vilji fá okkur í ESB til ţess eins ađ svipta okkur auđlindunum, komast yfir allt sem fémćtt getur talist og skilja okkur svo eftir í eymd og volćđi. Ţessu til sönnunar eru útfćrđar hinar ótrúlegustu hvatir stjórnenda ESB gagnvart Íslandi og sagđar tröllasögur sem viđ nánari skođun eiga sér enga stođ í raunveruleikanum.

Allur ţessi málflutningur minnir á frásagnir kennara Stefans Zweig í bókinni, sem áđur er nefnd, ţegar hann ţrumađi yfir nemendum sínum um yfirburđi Ţjóđverja og öll ţau ósköp sem ađrar ţjóđir vildu gera á hlut ţeirra. Ţví vćri fátt göfugra fyrir unga menn en ađ falla í stríđi fyrir keisarann og fjölskyldu hans, eins og góđi dátinn Svejk orđađi ţađ.

Svipuđ viđhorf virđast ţví miđur vera enn landlćg hér á landi og ekki batnađi ţađ eftir ađ kreppan skall á. Ţá svall mönnum móđur yfir ţví ađ viđ gátum ekki fariđ okkar fram í einu og öllu gagnvart Evrópubúum, sem ekki skyldu yfirburđi okkar og snilld á fjármálasviđinu ţrátt fyrir ítarlegar útskýringar! Ţar var innrćti ţessa Evrópufólks vel lýst og ţví hljótum viđ ađ vera tilbúnir ađ fara nýja för til Sviđinsstađa ađ hćtti áđurnefndra fóstbrćđra og láta finna fyrir okkur. Viđ getum líka refsađ ESB-ţjóđum međ ţví ađ einangra okkur hér viđ ysta haf, gefiđ ţeim langt nef og treyst á eigin ágćti í anda sjálfbćrrar ţróunar. Ţá munu Evrópubúar komast ađ ţví fullkeyptu, leggja niđur skottiđ og hćtta öllum áformum um ađ rćna Ísland!"


Öll grein Ingólfs 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ţetta er frábćr grein.  Ţetta er nákvćmlega ţađ sem ég finn ţegar ég er hér á landinu.  Furđuleg ţjóđernishyggja.  Hún er einnig mjög sterk í Samfylkingunni sem kemur fram í ţví hvernig hún hagar sér gagnvart einstaklingum sem notfćrđu sér EES samninginn.  En einstaklingar missu öll réttindi í október 2008. 

Ţar á bć segja menn ađ nú verđi menn ađ fórna sér.  Hćtta í samböndum erlendis og flytja til Íslands.

Sorglegt, sorglegt, sorglegt.  

Algerlega veruleika fyrrt liđ.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráđ) 15.12.2010 kl. 13:10

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband