Leita í fréttum mbl.is

Aðsetur öfganna - upphrópunarstíllinn "blívur" !

bunnies_do_scream_by_misteringo.jpgÍ Morgunblaðinu í dag eru þrjár greinar sem tengjast ESB-málinu, beint og óbeint. Það sem þær eiga sameiginlegt eru öfgar, ýkjur og skortur á lausnum fyrir íslenska þjóð. Sem er t.a.m. með gjalmiðil á gjörgæslu!

Þær eru innblásnar af þjóðernishyggju og það er stutt í hrokann. Greinarnar eru eftir, Ólaf Hannesson, Loft Altice Þorsteinsson og Vigdísi Hauksdóttur.

Kíkjum á nokkur brot úr greinunum:

ESB gerir ráð fyrir því að þeir sem eru nógu vitlausir til að sækja um aðild að sambandinu vilji afdráttarlaust ganga inn

Hversu lengi eiga þessar ástsjúku smástelpur innan Samfylkingarinnar og VG, sem eigi halda vatni yfir ESB, að draga okkur öll á asnaeyrunum? Þeir dirfast að koma fram og ljúga að þjóðinni um að ekkert aðlögunarferli sé í gangi, reyndar ekki einu lygarnar sem hafa farið um þeirra varir.

Hvar er ást á íslensku þjóðinni, á fullveldi okkar og því sem við getum áorkað saman sem þjóð? Hvað er það sem þetta lið telur sig fá í staðinn fyrir sölu á fullveldinu?

Ég er viss um að þið getið vel keypt flugmiða aðra leiðina í útópíu ESB, ef þið hafið ekki trú á íslenskri þjóð þá eigið þið lítið erindi að tala fyrir hana á opinberum vettvangi.

Höfundur: Ólafur Hannesson, háskólanemi.

Í þrákelkni sinni að innlima Ísland í Evrópuríkið hafa fulltrúar Samfylkingar tekið upp á því að villuleiða umræðuna og tala um „deilt fullveldi“.

Annar fulltrúi erlends valds og alræmd málpípa Samfylkingar er Kristrún Heimisdóttir.

Sossarnir, fulltrúar erlends valds og framandi hugmyndafræði, skulu ekki láta sér detta til hugar, að fullveldið verði falið þeim á hendur.

Það vekur efasemdir um fræðimennsku Eiríks (Bergmanns, innskot, ES-blogg) og heiðarleika, að í upphafi ritgerðarinnar lýsir hann staðreyndum, en hverfur síðan algerlega í draumaheim ESB-sinnans.

Auðvitað eiga þessir fulltrúar erlends valds og framandi hugmyndafræði skjól hjá ríkisstjórn Íslands.

Höfundur: Loftur Altice Þorsteinsson, kennari.

Samandregið má segja að Evrópusambandið sé á allt annarri blaðsíðu en norðurslóðaþjóðir og skilji ekki auðlindanýtingu og mikilvægi svæðisins fyrir þær þjóðir sem eiga réttinn – nema á þann hátt að beita gömlu evrópsku yfirráðastefnunni fyrir eigin hagsmuni sama hvað það kostar.

Höfundur: Vigdís Hauksdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

 

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

"Aðsetur öfganna" segið þið í hneikslunartón um þetta mæta fólk sem þarna skrifar af sannfæringu sinni og hugsjónum gegn ESB innlimun lands okkar og þjóðar. 

Mér finnst einmitt að hörðustu öfgamenn landsins komi allir úr röðum ofstopafyllstu ESB sinnana.

Sem oft hafa farið hamförum meðal annars hér hér á bloggsíðu ykkar Evrópusamtakanna og kallað okkur ESB andstæðinga og meðlimi Heimssýnar öllum illum nöfnum, s.s. "hálfvita, fífl, fábjána, fasista og nasista" og mörgum jafnljótum eða verri orðum.

Þetta hafa þeir ítrekað gert hér á þessari síðu ykkar, málstað ykkar ESB sinna til hinnar mestu háðungar og skammar !

Gunnlaugur I., 25.1.2011 kl. 15:12

2 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Æ Æ Æ - alltaf sama DELLAN

Hólmfríður Bjarnadóttir, 25.1.2011 kl. 16:23

3 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

GI: Hart er tekið á því á vondu orðfæri manna, sam hvort þeir eru með eða á móti aðild.

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 25.1.2011 kl. 19:10

4 identicon

Alltaf eru menn að misskilja ESB. Enn og aftur. Ég hef verið að ræða við vini mína í Berlín um ESB. Þeir skilja ekki umræðuna á Íslandi.

Var á kynningarfundi um "nímenningana" í Berlin og þar hélt Grikki fyrirlestur. Hann var mjög vinstrisinnaður. Hann skyldi ekki af hverju það væri verið að kenna ESB um allt illt í Grikklandi.

Umræðan er allt öðruvísi á meginlandinu. En hvað vitum við um það;)

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 25.1.2011 kl. 21:53

5 Smámynd: Jón Valur Jensson

Það ætlið kannski að láta eins og það séu einhver ofurmæli hjá hinum skarpa lögfræðingi Vigdísi Hauksdóttur að tala um "evrópska yfirráðastefnu" í tengslum við ESB. En við verðum að viðurkenna, samkvæmt opinberum samþykktum og skjölum ESB sjálfs, að markmið útþenslustefnu ESB er ÖLL Evrópa. Þetta er dagljóst af samþykktum ESB. Í 'Joint Declaration: One Europe', sem er partur af FINAL ACT TO THE TREATY OF ACCESSION TO THE EUROPEAN UNION 2003 (vegna tíu nýrra meðlimaríkja*), segir m.a. (ýmislegt snakk og fagurmæli eru þar, en takið sérstaklega eftir þeim kjarnaatriðum sem ég hef feitletrað):

• "Today is a great moment for Europe. We have today concluded accession negotiations between the European Union and Cyprus, the Czech Republic, Estonia, Hungary, Latvia, Lithuania, Malta, Poland, Slovakia and Slovenia. 75 million people will be welcomed as new citizens of the European Union.

• We, the current and acceding Member States, declare our full support for the continuous, inclusive and irreversible enlargement process. [Takið eftir: Það stækkunarferli ESB er "irreversible", óviðsnúanlegt, það verður ekki til baka snúið! Innsk. JVJ.] The accession negotiations with Bulgaria and Romania will continue on the basis of the same principles that have guided the negotiations so far. The results already achieved in these negotiations will not be brought into question. Depending on further progress in complying with the membership criteria, the objective is to welcome Bulgaria and Romania as new members of the European Union in 2007. We also welcome the important decisions taken today concerning the next stage of Turkey's candidature for membership of the European Union. [Þeir líta án alls vafa sömu augum á stefnu sína að innlima Ísland, eins og þeir gerðu þarna varðandi Búlgaríu og Rúmeníu, þ.e. að niðurstaðan sé óumbreytanleg. Innsk. JVJ.]

• Our common wish is to make Europe a continent of democracy, freedom, peace and progress. The Union will remain determined to avoid new dividing lines in Europe and to promote stability and prosperity within and beyond the new borders of the Union. We are looking forward to working together in our joint endeavour to accomplish these goals. [Hugsið síður um fagurmælin en það markmið, sem í þessu felst raunverulega og kristallast í lokasetningunni hér á eftir. Innsk. JVJ.]

• Our aim is One Europe."

– Já, góðir lesendur, þarna sést markmiðið svart á hvítu. Það er að innlima öll lönd álfunnar í Evrópubandalagið, Rússland ekki undanskilið. Þetta er markmið leiðtoga allra meðlimaríkjanna samkvæmt nefndu skjali.

* Þ.e. í aðildarsamningi Tékklands, Eistlands, Kýpur, Lettlands, Litháens, Ungverjalands, Möltu, Póllands, Slóveníu og Slóvakíu), í ACT þess samnings.

Jón Valur Jensson, 26.1.2011 kl. 12:14

Jón Valur Jensson, 26.1.2011 kl. 12:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband