Leita í fréttum mbl.is

Reynir Traustason um ESB, þjóðaratkvæði

Reynir TraustasonReynir Traustason, ritstjóri DV skrifar beinskeyttan leiðara í helgarblaðið um þjóðaratkvæðagreiðslur, ESB-málið og fleira. Reynir segir: "Sama fólkið og espaði forsetann með kjassi og blíðmælgi til að vísa málum tengdum Icesave til þjóðarinnar leggst nú af fullum þunga gegn því að sama þjóð fái að greiða atkvæði um þúsund sinnum stærra mál, aðild að Evrópusambandinu."

Síðar skrifar Reynir að nokkur brennandi mál bíði afgreiðslu þjóðarinnar og að meðal þeirra mála sé kvótamálið og ESB-málið: "Í báðum þessum tilvikum verða mál að fara til æðsta dómstólsins, fólksins í landinu. Það verður að kveða niður þá lýðskrumara sem vilja af geðþótta handmata Íslendinga eins og páfagauka á þeim málum sem hún má ráða. Þjóðinni er fullkomlega treystandi til þess að taka stórar ákvarðanir. " (Leturbreyting, ES-bloggið)

Merkilegur tvískinnungur, sem Reynir bendir réttilega á! 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

uhhh... ég skil þetta ekki - eruð þið ekki dauðhrædd um þjóðaratkvæði um esb?  með 64% á móti aðild og jafnvel á móti aðildarviðræðum?

Ég er allavega hlynntur þjóðaratkvæði um þetta og margt fleira.

Corbett fjallar um Icesave Nei – ESB hlægilegt

Gullvagninn (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 19:15

2 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

UKIP: Tekur einhver mark á þeim flokki? Eru þetta ekki trúðarnir á Evrópuþinginu?

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 15.4.2011 kl. 20:30

3 identicon

UKIP er með hollenskum flokki í þingflokki á evrópuþinginu.

Sami hollenski flokkur verð ríkisstjórn Hollands falli.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 15.4.2011 kl. 23:36

4 Smámynd: Jón Valur Jensson

Ertu kominn úr úníforminu, Stefán minn?

Bara orðinn borgaralegur? ? Til lukku með það!

En þetta er billegt hjá honum Reyni skipsfélaga mínum: "Þjóðinni er fullkomlega treystandi til þess að taka stórar ákvarðanir."

Við allar eðlilegar aðstæður er henni treystandi, já, en við vitum í 1. lagi, að hér er tæpur þriðjungur manna af einhverjum furðulegum ástæðum ýmist hlynntur því að afsala fullveldi landsins til evrópsks stórríkis eða hefur ginið við þeirri blekkingu, að "aðild að ESB" sé eitthvað sambærilegt við aðild að ýmsum alþjóðastofnunum eins og GATT, NATO eða SÞ, en því fer einmitt víðs fjarri, að þetta sé ekki alvarlegra en svo.

Í 2. lagi er vitað, að Esb. hefur dælt gríðarlegum fjármunum í kynningar- og uppmýkingarverkefni til að laða og lokka þjóðir inn í sig, t.d. Tékka, Svía og Norðmenn og oftast hefst þetta. 1570 sinnum fólksfleira ríkjasamband en okkar samfélag á auðvitað mjög auðvelt með þetta, nema skorður séu reistar við, en enginn vilji er til slíkra varúðarráðstafana, að mér sýnist, hjá stjórnvöldum hér (nema Jóni Bjarnasyni) né hjá þeim samtökum Esb-sinna, sem hér eru til og farið hefur fjölgandi, t.d. veit ég ekki til þess, að þau hafi ákveðið neitt þak á upphæð styrkja til sín; það á líka við um Evrópuvettvanginn nýstofnaða. Ég stakk þar sjálfur (meðan drög að lögum voru rædd og ekki búið að stofna félagið) upp á því, að þak á styrki til þess félags yrði 250.000 kr., en fekk ekki þá tillögu mína afgreidda.

Hvernig er þessu háttað hjá ykkur í Evrópusamtökunum? Eru einhverjar reglur um styrki til ykkar?

Það var sagt að fornu, að ekki væru til svo háir borgarmúrar, að asni klyfjaður gulli kæmist ekki yfir þá. Vonandi láta Íslendingar ekki heillast af gylliboðum Esb-manna. Ekki er reyndar allt gull sem glóir, og þar að auki höfum við ekkert leyfi til þess gagnvart foreldrum okkar og forfeðrum og heldur ekki gagnvart börnum okkar og afkomendum öðrum að glutra niður sjálfstæði þjóðríkis okkar.

Og þetta átti Reynir að vita. Hann á líka að vita hitt, að stjórnarmeirihlutinn neitaði að taka það í mál að gera þjóðaratkvæðagreiðsluna um aðildarsamning bindandi. Þar að auki voru það ekki fullveldissinnar, sem höfnuðu þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfa inngöngu-umsóknina árið 2009, heldur Esb-sinnar, þeir felldu slíka tillögu á Alþingi! Segið mér, kvartaði Reynir kunningi minn yfir því?

Jón Valur Jensson, 16.4.2011 kl. 02:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband