Leita í fréttum mbl.is

Stefán, Björg og Þorsteinn með grein í Morgunblaðinu um ESB-málið

ESB-ISL2Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands gagnvart ESB skrifar með þeim Björgu Thorarensen og Þorsteini Gunnarssyni, grein í Morgunblaðið í gær um ESB-málið. Þar segja þau:

 "Rýnivinna síðustu mánaða, þar sem öll löggjöf Íslands og ESB var borin saman eftir samningsköflum, staðfesti að Ísland hefur í gegnum aðild sína að EES-samningnum og Schengen-samkomulaginu tekið upp marga stærstu þætti í regluverki ESB. Ef það er lagt saman við margvíslegar aðrar alþjóðlegar skuldbindingar Íslands sem einnig samrýmast regluverki sambandsins kemur í ljós að það eru tiltölulega fá og afmörkuð svið sem eftir standa. Ísland er því sennilega eitt best undirbúna umsóknarríki í sögu Evrópusambandsins. Um leið hefur komið í ljós að á ákveðnum sviðum eru aðstæður og löggjöf talsvert frábrugðin og verður viðfangsefni að finna sameiginlegar lausnir á þeim sviðum. Sérstaka athygli hefur vakið meðal samstarfsríkja okkar í Evrópu hversu vel undirbúnir og faglega sterkir íslenskir sérfræðingar hafa reynst vera.

Ríkjaráðstefnan í dag

Samningaviðræður hefjast um fyrstu fjóra samningskaflana í dag undir forystu Ungverja. Þeir fjalla um opinber innkaup, upplýsingatækni og fjölmiðlun, vísindi og rannsóknir og menntun og menningu. Gert er ráð fyrir að samningaviðræðum um tvo síðasttöldu kaflana mun ljúka á sama fundi. Íslendingar hafa um árabil tekið þátt í vísinda-, rannsókna og menntasamstarfi Evrópuríkja. Það hófst fyrir daga EES-samningsins en styrktist til muna við gildistöku hans árið 1994. Óþarft er að geta þess hversu mikilvægt það er okkar vísindamönnum og unga menntafólki að hafa áfram greiðan og traustan aðgang að rannsóknaráætlunum og menntasamstarfi á meginlandi Evrópu. Áfram verður haldið í haust þegar samningaviðræður um fleiri kafla hefjast undir forystu Póllands í ESB. Það fer eftir framvindu undirbúnings á Íslandi og í ESB-ríkjunum 27 hvaða kaflar það verða. Í upphafi næsta árs taka Danir við keflinu í ESB til sex mánaða og þá er stefnt að því að hefja viðræður um lungann af þeim samningsköflum sem þá kunna að standa eftir. Engin fyrirfram ákveðin tímaáætlun er um lok viðræðna heldur ræður framgangur samningaviðræðna hraðanum.

Miklir hagsmunir í húfi

Aðild að samstarfi Evrópuríkja á vettvangi Evrópusambandsins er stórt mál fyrir sérhverja þjóð. Því er mikilvægt að undirbúa viðræðurnar af kostgæfni. Í samningaviðræðunum verðum við bæði í vörn og sókn. Við munum standa vörð um grundvallarhagsmuni Íslands svo sem í sjávarútvegs- og landbúnaðarmálum en um leið sækja fram til að nýta þá möguleika og sóknarfæri sem felast til að mynda í atvinnu- og byggðastefnu Evrópusambandsins, gjaldmiðilsmálum og afnámi tolla. Loks mun endanleg samningsniðurstaða liggja fyrir á öllum málefnasviðum. Þá getum við Íslendingar tekið upplýsta afstöðu til aðildar að ESB og metið kosti og galla hennar en lokaorðið um það á þjóðin."

Greinin er aðgengileg áskrifendum Morgunblaðsins á vefnum.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvar geta þeir sem ekki kaupa Morgunblaðið lesið greinina? Sá tími er löngu liðinn að mbl. sé umræðuvettvangur sem nær til þorra Íslendinga?

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 15:01

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Hægt að lesa dagblöðin ókeypis á bókasöfnum landsins, Hrafn minn.

Þorsteinn Briem, 28.6.2011 kl. 15:48

3 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Morgunblaðið er áreiðanlegasti frétta og umræðumiðill Íslands.Morgunblaðið birtir það sem skiptir máli og er hlutlaust í umfjöllun sinni.En í Baugsmiðlinum Fréttablaðinu var grein í gær eftir Össur Skarphéðinsson,gamlan og nýjan komma þar sem hann er að benda á að Ísland hafi gert fríverslunarsamning við Kína um tollfrían innflutning á sjávarafurðum og iðnvarningi til Hong Kong.Þennan samning hefði Ísland ekki fengið ef Ísland væri í ESB, heldur hefði ESB haft samningsforræðið.Össur er greinilega að búa sig undir það að ESB umræðurnar fari út um þúfur  eða að einhver samningsómynd verði felld og vill hafa eitthvað uppi í erminni þegar kemur að Alþingiskosningum og eftir þær.En þessi samningur við Kína sínir það að ekkert er því til fyrirstöðu að Ísland fari fram á samning um tollfríðindi við ESB,eftir að ESB ferlið verður út af borðinu.Ísland getur bent ESB á Kínasamningin sem fordæmi.

Sigurgeir Jónsson, 28.6.2011 kl. 16:18

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

VIÐSKIPTI EVRÓPUSAMBANDSLANDANNA OG KÍNA:

"EU-China trade has increased dramatically in recent years.


CHINA IS NOW THE EU'S 2ND TRADING PARTNER behind the USA AND THE BIGGEST SOURCE OF IMPORTS.


THE EU IS CHINA'S BIGGEST TRADING PARTNER
.

The EU's open market has been a large contributor to China's export-led growth.


The EU has also benefited from the growth of the Chinese market and the EU is committed to open trading relations with China.

However the EU wants to ensure that China  trades fairly, respects intellectual property rights and meet its WTO obligations."

"The EU-China High Level Economic and Trade Dialogue was launched in Beijing in April 2008."

"In 2006 the European Commission adopted a major policy strategy (Partnership and Competition) on China that pledged the EU to accepting tough Chinese competition while pushing China to trade fairly.

Part of this strategy is the ongoing negotiations on a comprehensive Partnership and Cooperation Agreement (PCA) that started in January 2007.

These will provide the opportunity to further improve the framework for bilateral trade and investment relations and also include the upgrading of the 1985 EC-China Trade and Economic Cooperation Agreement."

"THE EU WAS A STRONG SUPPORTER OF CHINA'S ACCESSION TO THE WTO, arguing that a WTO without China was not truly universal in scope.

For China, formal accession to the WTO in December 2001 symbolised an important step of its integration into the global economic order.


The commitments made by China in the context of accession to the WTO secured improved access for EU firms to China's market.

IMPORT TARIFFS AND OTHER NON-TARIFF BARRIERS WERE SHARPLY AND PERMANENTLY REDUCED.
"

Þorsteinn Briem, 28.6.2011 kl. 16:24

5 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Einn tiltekinn bloggari st.br., hefur reynt að draga úr trúverðugleika Morgunblaðsins, með því að ljúga því upp að hann hafi sjálfur verið blaðamaður þar.Honum hefur ekki tekist að koma með nein rök fyrir því, og trúverðug leiki Morgunblaðsins stendur því óhaggaður.

Sigurgeir Jónsson, 28.6.2011 kl. 16:26

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Árið 2009 komu 65% af innflutningi okkar Íslendinga frá Evrópska efnahagssvæðinu og þá fóru um 84% af útflutningi okkar þangað.

Árið 2009 fóru einungis 3,9% af vöruútflutningi okkar til Bandaríkjanna, 2,3% til Kína, 1,2% til Rússlands og 0,5% til Kanada en þá komu einungis 6,9% af vöruinnflutningi okkar frá Bandaríkjunum, 5% frá Kína, 1,9% frá Kanada og 0,7% frá Rússlandi.


Utanríkisverslun okkar Íslendinga með vörur árið 2009


Um 70% af erlendum ferðamönnum hér búa á
Evrópska efnahagssvæðinu en einungis um 10% í Bandaríkjunum, 2% í Kanada, 1% í Kína og enn færri í Rússlandi.

Þar að auki ferðumst við Íslendingar aðallega til Evrópska efnahagssvæðisins og Íslendingar í námi erlendis stunda langflestir nám á Evrópska efnahagssvæðinu.

Þorsteinn Briem, 28.6.2011 kl. 16:31

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Viðskipti ESB við Ísland eru ESB mikilvæg.Enginn hefur véfengt það og ekki ESB.Því er engin ástæða til að halda það að ekki sé hægt að ná fram hagstæðum fríverslunarsamningum við ESB.ESB mun ekki í framtíðinni stjórna heimsversluninni.Hlutfall ESB í heimsversluninni hefur verið að dragast saman.Innganga Íslands í ESB hefur í för með sér einangrun og afskiptaleysi.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 28.6.2011 kl. 17:08

8 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Klofningur Evrópuríkja í utanríkismálum á heimsvísu dregur úr áhrifum ESB á heimsmálin.Ef ESB beitir Ísland kúgun í verslun, þá hlýtur það óhjákvæmilega að hafa áhrif á afstöðu Íslands í utanríkismálum á alþjóðavísu.Engin ástæða er til að halda að ESB muni ekki verða þetta ljóst.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 28.6.2011 kl. 17:12

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Vegna aðildar Íslands að Evrópusambandinu falla hér niður tollar á vörum frá Evrópusambandslöndunum.

Árið 2009 komu 65% af innflutningi okkar Íslendinga frá Evrópska efnahagssvæðinu og þá fóru um 84% af útflutningi okkar þangað.


"The commitments made by China in the context of accession to the WTO secured improved access for EU firms to China's market.

IMPORT TARIFFS AND OTHER NON-TARIFF BARRIERS WERE SHARPLY AND PERMANENTLY REDUCED.
"

Þorsteinn Briem, 28.6.2011 kl. 17:43

10 identicon

@Steini Briem. Málið snýst ekki um aðgengi að bókasöfnum. Í mörgum sveitarfélögum eru engin dagblöð á bókasöfnum. Auk þess er opnunartími iðulega á vinnutíma. Hér er um samninganefnd Íslands að ræða. Nokkir nefndrmenn skrifa grein um stöðu mála. Innihald greinarinnar skiptirmáli fyrir alla þjóðina. Að minnsta kosti alla sem hafa kosningarrétt. Af þessu leiðir einfaldlega að MBL er ekki rétti vettvangurinn. Miklu nær væri að setja greinina á vef Utanríkisráðuneytis(síðu um Evrópumál) eða vef Forsætisráðuneytis.  Sem sagt: markhópur er öll þjóðin en ekki áskrifendur MBL.

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 18:45

11 identicon

Greinin ætti að birtast hér:http://esb.utn.is/vidraedur/

Hrafn Arnarson (IP-tala skráð) 28.6.2011 kl. 18:51

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sumir lesa eingöngu Moggann, Hrafn minn.

Þorsteinn Briem, 28.6.2011 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband