Leita í fréttum mbl.is

Forsprakki Nei-sinna stimplar fjármálaráðherra sem lygara - í framtíðinni líka!

Það er margt sem fer í taugarnar á helstu Nei-sinnum þessa lands nú um stundir. Eru límingarnar að gefa sig?

Aðallega er þetta vegna þeirrar staðreyndar að tveir af hverjum þremur Íslendingum vilja klára aðildarviðræðurnar við ESB og fá að kjósa um aðildarsamninginn, en þetta kom fram í könnun Fréttablaðsins fyrir skömmu.

Þetta er ósköp eðlileg og lýðræðisleg krafa.

Þetta er einnig skoðun fjármálaráðherra Íslands, Steingríms J. Sigfússonar, sem vill fá efnislega niðurstöðu í málið og leyfa landsmönnum svo að kjósa um málið í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Einn helsti talsmaður Nei-sinna bregst við þessu með hreint ótrúlegum hætti og segir á bloggi sínu:

"Formaður Vinstri grænna gekk ljúgandi til síðustu þingkosninga." Og í lokin segir í pistlinum um framhaldið í sambandi við stefnuna varðandi Evrópumálin innan VG:

"Steingrímur J. mun halda áfram að reyna að ljúga sig frá svikum við yfirlýsta stefnu Vinstri grænna. Næsta kjördag mun lygin hitta hann í andlitið þegar formaður Vinstri grænna verður spurður hvaða stefnumál flokksins ætlunin sé að svíkja strax eftir kosningar."

Sá sem skrifar vænir fjármálaráðherra landsins um lygar fyrirfram! Með ólíkindum!

llmælgið er takmarkalaust og fyrir nú utan það hvað þetta er hreinlega dónalegt!

Nei-sinnar þola ekki þá tilhugsun að ráðamenn Íslands vilji klára viðræðurnar og að einn daginn liggi fyrir aðildarsamningur.

Enn verr þola þeir þá staðreynd að kjósendum verði gefinn kostur á því að vega og meta málin á lýðræðislegan hátt, mynda sér skoðun og kjósa samkvæmt því!

Og bara svona í lokin: Er þetta orðbragðið sem við viljum hafa varðandi stjórnmál hér á landi?

(Feitletrun: ES-bloggið)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þessi drengur þarna er bara blogglúður sem enginn nennir að hlusta á.

Sleggjan og Hvellurinn, 15.12.2011 kl. 16:02

2 Smámynd: Eyjólfur G Svavarsson

Fjármálaráðherra ber litla virðingu fyrir sannleikanum, það er langt síðan það var ljóst!!

Eyjólfur G Svavarsson, 15.12.2011 kl. 19:49

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

"Landsfundur Vinstri grænna tók ekki afstöðu til þess hvort leiða ætti málið til lykta í einni eða tveimur þjóðaratkvæðagreiðslum, heldur var einungis lögð á það þung áhersla að þjóðin hefði úrslitavald."

Þorsteinn Briem, 15.12.2011 kl. 20:25

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Steingrímur J. Sigfússon þegar Alþingi samþykkti 16. júlí 2009 þingsályktun um aðildarumsókn að Evrópusambandinu:

"Við greiðum atkvæði um það hér á eftir hvort rétt sé eftir sem áður að láta reyna á í viðræðum hvers konar samningi sé hægt að ná til þess að þjóðin geti að því loknu hafnað honum eða samþykkt hann komi til niðurstöðu," sagði Steingrímur.

Hann sagði að þingmenn Vinstri grænna væri bundnir af engu öðru en sannfæringu sinni í atkvæðagreiðslunni og bætti við: "Hvorutveggja afstaðan: að vera með því eða á móti, er vel samrýmanleg stefnu flokksins."

Ríkisstjórninni falið að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu

Þorsteinn Briem, 15.12.2011 kl. 20:28

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

"48. gr. Alþingismenn eru eingöngu bundnir við sannfæringu sína og eigi við neinar reglur frá kjósendum sínum."

Stjórnarskrá Íslands

Þorsteinn Briem, 15.12.2011 kl. 20:38

6 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvað er átt við með orðinu Nei sinni. Það er fólk sem býr í þessu landi og hefir alltaf gert en svo kemur áa yfirborðið smá hópur að fólki sem vill gangast undir lög og reglur ESB. Til þess að geta gert það voru gerða ólöglegar aðgerðir s.s. landráð og stjórnarskrár brot ásamt nokkrum tugum annarra brota.  Ég spyr hverjir eru þessi nei sinnar. Það mætti kannski búa til hóp en við erum bara þeir sem búa í þessu landi og viljum fá að búa hér í Íslensku samfélagi en ekki erlendu. Nú getið þin ESB sinnar kallað mig rasista. En þið hafið svo mikið vit. 

Valdimar Samúelsson, 15.12.2011 kl. 21:18

7 Smámynd: Þorsteinn Briem

Valdimar Samúelsson,

Við Íslendingar göngumst NÚ ÞEGAR undir alls kyns lög og reglur Evrópusambandsins vegna aðildar Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu.

Það eru AÐ SJÁLFSÖGÐU EKKI landráð að hér verði kosið um aðild Íslands að Evrópusambandinu í ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU þegar samningur um aðildina liggur fyrir.

FJÖLMARGIR
taka ekki afstöðu til aðildarinnar fyrr en þá og jafnvel ekki fyrr en í kjörklefanum.

Þorsteinn Briem, 15.12.2011 kl. 21:46

8 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Steini. Hver segir það EES samningurinn hafi ekki verið landráð. Hann var það. Fólk vissi ekkert hvað var að ske þá.Í dag vitum við betur og þingið veit betur en ennþá hala þeir að fólkið viti ekkert. Það er líka rangt. Ef þú hefir lesið hegningalaga kafla X 86,87,88 þá sérð þú hvað er um að vera og hvaða lög voru brotin vegna EES samningsins. það er líka stjórnarskráinn sem er brotin í þessu tilfelli og margt annað. Ég vildi að einhver gæti sagt að ég færi með rangt mál.

Valdimar Samúelsson, 15.12.2011 kl. 22:37

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Valdimar Samúelsson,

Það er
EKKI meirihluti á Alþingi fyrir því að segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu og Schengen-samstarfinu.

Hins vegar er MEIRIHLUTI á Alþingi fyrir því að Ísland sæki um aðild að Evrópusambandinu og hér verði greidd atkvæði um aðildarsamninginn Í
ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU.

Þorsteinn Briem, 15.12.2011 kl. 22:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband