Leita í fréttum mbl.is

Þjóðhátíðarkveðja: Framkvæmdastjóri Nei-sinna kallar Steingrím J. vanvita og lygara!

Nei-sinnar þessa lands lúta framkvæmdastjórn manns sem er með þeim orðljótari á blogginu.

Ósjálfrátt leiðist hugurinn að orðinu "jafnvægi."

Í færslu á þjóðhátíðardaginn, sjálfan 17.júní, segir framkvæmdastjórinn:

"Fyrir nokkrum dögum gerði Steingrímur J. sig að valkvæðum vanvita sem veit ekkert um starfsemi Evrópustofu. Í dag þykist hann tala fyrir endurmati á ESB-umsókninni undir formerkjum ábyrgðar.

Síljúgandi Steingrímur J. er ásamt Jóhnnu Sig. helsta auglýsingin fyrir siðlausa stjórnmálamenn."

Þá má lesa á opinberu bloggi Nei-samtakanna:

"Vinstrihreyfingin grænt framboð sveik kjósendur sína og studdi þingsálylktun Össurar Skarphéðinssonar 16. júlí 2009 um að Ísland skyldi sækja um aðild að Evrópusambandinu. Fremstur í flokki svikaranna er Steingrímur J. Sigfússon formaður VG."

Kannski ekki nema von að málflutningur og rökræðuhefð Nei-sinna sé jafn slæm og raun ber vitni!

(Leturbreyting: ES-bloggið)

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þið INNLIMUNARSINNAR eigið bágt.................. 

Jóhann Elíasson, 18.6.2012 kl. 15:32

2 Smámynd: Jón Valur Jensson

Sá, sem svíkur eigin stefnumál og eigin flokksmenn og þá kjósendur, sem kusu flokk hans vegna stefnumálanna, er hann EKKI svikari í ykkar augum?

Og það er alveg rétt hjá framkvæmdastjóranum (sem er ekki frkvstj. allra fullveldissinna), að Steingrímur þóttist ekki vita neitt af óeðlilegri og ólöglegri starfsemi "Evrópustofu" (Evrópusambands-áróðursstofu), og hafa margir um þann fláttskap hans fjallað, hvernig hann svaraði fyrirspurn Ásmundar Einars Daðasonar um málið GERSAMLEGA ÚT Í HÖTT.

En þetta hugnast Össuri og Jóhönnu -- og ykkur vitaskuld.

Greinilega sést þó af samhengi texta framkvæmdastjórans, að hann notaði ekki orðið "vanviti" í venjulegri merkingu, enda með forskeytið "valkvæður" á undan = að viljandi þykist hann ekki vita neitt; því að enginn frýr refnum vitsmuna.

Ekki sást orðið "lygari" í orðum framkvæmdastjórans hér ofar nema í fyrirsögn ykkar. En hver var það, sem laug því að þingi og þjóð úr ræðustól Alþingis, að Icesave-samningur væri ekkert að verða til og að hann myndi að sjáfsögðu fara þá fyrst í gegnum utanríkismálanefnd?! Steingrímur sjálfur, sem stóð ekki við orð sín, heldur skellti undirrituðum saningi á borið innan tveggja sólarhringa og ætlaðist til að þingmenn samþykktu hann jafnvel ólesinn og án þess að utanríkismálanefnd fengi neitt að dæma um hann áður!

Enn verri eru svo stjórnarskrárbrotin (dæmi verða tilfærð, ef þess verður óskað!).

Jón Valur Jensson, 18.6.2012 kl. 19:34

3 Smámynd: Jón Valur Jensson

... skellti undirrituðum samningi á borðið ...

Jón Valur Jensson, 18.6.2012 kl. 19:36

4 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Valur Jensson,

"... þóttist ekki vita neitt af óeðlilegri og ólöglegri starfsemi "Evrópustofu ..."

Hvað sagði sýslumaður um kröfu ykkar fáráðlinganna um lögbann á starfsemi Evrópustofunnar FYRIR MARGT LÖNGU?!

Þorsteinn Briem, 18.6.2012 kl. 20:17

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jóhann Elíasson,

"Þið INNLIMUNARSINNAR ..."

Danmörk
, sem er í Evrópusambandinu, er sjálfstætt og fullvalda ríki og öll ríki sambandsins líta á sig sem sjálfstæð og fullvalda.

Færeyjar og Grænland
eru hins vegar EKKI sjálfstæð og fullvalda ríki og heldur EKKI í Evrópusambandinu.

Danmörk tekur þátt í að semja lög og reglur Evrópusambandsins og getur hvenær sem er sagt sig úr sambandinu.

Íslenska ríkið tekur hins vegar upp megnið af lögum Evrópusambandsins, án þess að taka nokkurn þátt í að semja þau.

Þorsteinn Briem, 18.6.2012 kl. 20:24

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Jón Valur Jensson,

"Sá, sem svíkur eigin stefnumál og eigin flokksmenn og þá kjósendur, sem kusu flokk hans vegna stefnumálanna ..."

Það er ennþá stefna Vinstri grænna sem stjórnmálaflokks að Ísland eigi ekki aðild að Evrópusambandinu.

Hins vegar samþykktu Vinstri grænir einnig sem stjórnmálaflokkur að Ísland sækti um aðild að Evrópusambandinu og þjóðaratkvæðagreiðsla yrði haldin hér um aðildarsamninginn.

Þar að auki vilja margir vinstri grænir að Ísland fái aðild að Evrópusambandinu, svo og fólk í öllum öðrum stjórnmálaflokkum sem sæti eiga á Alþingi.

Þorsteinn Briem, 18.6.2012 kl. 20:42

7 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

Ísland er ekki í ESB og ekkert bendir til að það verði það nokkurntíma.Þessu "samningsrugli" við ESB lýkur sjálfkrafa innan árs þar sem þrír stjórnmálaflokkar með 80% þjóðarinnar innan sinna raða hafna aðild og kosningar til Alþingis eru á næsta leiti.Nei við ESB. Sjaldan lýgur almannarómur.Það á við um Jóhönnu,Steingrím og ESB.Það sem sagt er um þau, er síst of sagt.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 18.6.2012 kl. 21:42

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sigurgeir Jónsson,

Ísland er 70% í Evrópusambandinu, án þess að hafa þar nokkur áhrif!!!


HVAÐA
íslenskir stjórnmálaflokkar vilja að Ísland segi upp aðild að Evrópska efnahagssvæðinu?!

NEFNDU NÚ ÞÁ STJÓRNMÁLAFLOKKA!!!


Og ÁRUM SAMAN spáir þú hinu og þessu en EKKERT af því rætist!!!

Þorsteinn Briem, 18.6.2012 kl. 22:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband