Leita í fréttum mbl.is

Krónan braggast, sennilega tímabundið. Leiðir það til lægra vöruverðs?

Ein krónaGjörgæslugjaldmiðillin okkar, Krónan, hefur verið að braggast að undanförnu, enda landið fullt af túristum. Einnig hefur verið bent á að Seðlabanki Íslands hafi hert á gjaldeyrishöftunum.

Vonir hafa vaknað um að þessi (sennilega tímabundna) styrking geti haft áhrif á verð vöru og þjónustu fyrir landsmenn, sem væri óneitanlega skemmtilegt. Þannig segir í MBL.is í gær: "Eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær hefur krónan styrkst um nærri 8% á þremur mánuðum og um rúm 4% síðustu tvær vikur. Gengisvísitala krónunnar hélt áfram að lækka í gær.

Í umfjöllun um þetta mál í Morgunblaðinu í dag segir Sigurður Markússon, framkvæmdastjóri innkaupasviðs hjá Krónunni, sterkari krónu vera að koma fram í verðlaginu og muni gera það í meira mæli á næstunni. Bendir hann á að um 65% af því sem Krónan selji sé íslensk vara. Þar hafi gengið einnig sín áhrif en annar kostnaður þó fyrirferðarmeiri."

Það verður því virkilega spennandi að fylgjast með þessu á næstunni og eru Neytendasamtökin á vaktinni. Morgunblaðið fullyrðir hreinlega í fyrirsögn með fréttinni að þetta muni skila sér út í verðlagið!

Um þetta er fjallað í leiðara FRBL í dag og þar segir Óli Kr. Ármannsson meðal annars:

..."hafandi reynsluna af sveiflum í gengi krónunnar þá hverfur gleðin yfir styrkingu hennar nú næstum alveg þegar upp rennur fyrir manni það ljós að vitanlega dragi úr gjaldeyrisinnstreyminu þegar líður á haustið og líklega verði þeir sem þannig eru þenkjandi ekki lengi að finna nýjar glufur í varnarmúr Seðlabankans til að stelast með peninga úr landi. Þá segir reynslan manni að tímabundin gengisstyrking hafi að mjög litlu leyti skilað sér í lægra vöruverði og líklegast sé að þeir sem selja okkur hinum innfluttar vörur noti næstu veikingu krónunnar sem fyrirslátt til að auka enn á dýrtíð í landinu.

Meirihluti landsmanna virðist hins vegar kunna ágætlega við þetta ástand og er það miður. Í öllu falli virðist ekki nema tiltölulega litlum hluta landsmanna hugnast að leita raunhæfra leiða úr úr þessari hringavitleysu gengissveiflna. Raunhæfu leiðinni fylgir nefnilega aðild að Evrópusambandinu, stuðningur við gjaldmiðilinn frá Seðlabanka Evrópu og upptaka evru þegar fram líða stundir."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband