Leita í fréttum mbl.is

Ippon og rothögg

dv-logo

DV.is skrifar: "„Höfundar fara auðvitað með löndum og draga ekki dul á að það væri óráð að taka upp evruna núna, enda er það bæði ómögulegt og stendur ekki til. Þeir leggja áherslu á rétta tímasetningu, og að henni uppfylltri þá er ekki hægt að lesa annað úr skýrslunni en að fyrir Íslendinga sé evran langbesti kosturinn. Hún sé miklu betri en krónan sem skýrslan segir að sé beinlínis skaðleg því hún bæði valdi sveiflum og magni þær upp í efnahagslífinu án þess að sannað sé að hún hafi gagnast til að létta kreppuna einsog haldið hefur verið fram. Að þessu leyti er skýrslan rothögg fyrir krónusinna,” segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra um skýrslu Seðlabankans varðandi þá kosti sem Íslendingar eiga í gjaldeyrismálum.

„Það þarf að tímasetja upptöku evrunnar rétt út frá stöðunni á evrusvæðinu. Það á að verða auðvelt gegnum þátttöku í forsamstarfi, svokölluðu ERM II myntsamstarfi, sem fyrsta kastið mun halda krónunni innan ákveðinna vikmarka og stuðla þannig strax að jafnvægi krónunnar með virkri þátttöku Evrópska Seðlabankans. Þegar evran verður svo tekin upp, eftir að hún hefur komist í gegnum núverandi erfiðleika, þá mun hún í senn stuðla að mjög lágri, og jafnri verðbólgu, lágum vöxtum, afnámi verðtryggingar, og þar með miklum stöðugleika. Þá eru ótaldar auknar fjárfestingar frá evruríkjunum sem aðrar rannsóknir hafa sýnt að geta fast að tvöfaldast í smáum inngönguríkjum,“ segir ráðherra.

Össur segir athyglisvert að skýrslan dragi vel fram hversu vel evran hefur haldið verðgildi sínu, sem í ágúst hafi verið ríflega sex prósent yfir dollar, og 4 prósent að meðaltali frá því hún varð til sem mynt. „Þeir benda sérstaklega á hversu vel evran hafi dugað til að halda niðri verðbólgu og vöxtum, og þannig að skapa stöðugleika fyrir fyrirtækin og heimilin sem hennar njóta.“

Síðar segir í fréttinni:"Auk þess eru færð rök að því að upptaka evru leiði til aukningar á útflutningi á evrusvæðið í þeim mæli að landsframleiðsla muni aukast varanlega um 20 milljarða hið minnsta en 160 milljarðar hið mesta. Ef við leyfum okkur þann munað að nota meðaltalið má segja að þátttaka íslenska myntsvæðisins í evrunni geti aukið landframleiðslu um 90 milljarða. Þess utan mun evran draga úr viðskiptakostnaði sem svarar til annarra 5-15 milljarða á ári. Þá þarf engan gjaldeyrisvarasjóð og við það sparast margir milljarðar í viðbót á ári hverju. Þetta eru geysilega háar tölur sem hægt er að lesa úr skýrslu Seðlabankans að verði hreinn ávinningur Íslands ef þess er gætt að inngangan í myntbandalagið verði við réttar aðstæður.“

Össur bendir svo á að skýrslan slái endanlega út af borðinu þá „vitlausu hugmynd“ forvígismanna bæði úr Framsókn og Sjálfstæðisflokki að skipta út ónýtri krónu fyrir kanadískan dollar.

„Höfundarnir segja hreinlega að einhliða upptaka einsog Framsóknarflokkurinn hélt heila ráðstefnu um sé beinlínis hættuleg. Engin dæmi finnist heldur um að nokkur þjóð hafi farið þá leið sem hagfræðiséní Sjálfstæðisflokksins, Illugi Gunnarsson, hljóp upp með í Alþingi, þegar hann heimtaði að ég færi til Kanada og semdi við þá um tvíhliða samstarf við upptöku á Kanadadollar. Það er einfaldlega sagt í skýrslunni að sú aðferð sé arfavitlaus því hún leiði til miklu meira valdaframsals en ef við gengjum í ESB og tækjum upp evruna.“

Össur segist túlka skýrsluna sem ippon fyrir aðildarsinna. 

„Hún sannar það sem Illugi og Bjarni Ben sögðu áður en Davíð beygði þá, að evran væri álitlegur kostur sem þjóðin ætti að fá að kjósa um.“ 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

ESB-Össur heldur áfram að ljúga.Hann veit vel að Ísland á ekki kost á evru næstu 10-20 árin en reynir samt að ljúga því upp að hægt sé að taka upp evru strax í dag.Nei við ESB.

Sigurgeir Jónsson, 18.9.2012 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband