Leita í fréttum mbl.is

Einn áhrifamesti stjórnmálafrćđingur í heiminum í dag međ fyrirlestur í HÍ

Í tilkynningu segir:

"Föstudaginn 8. mars, kl. 12:00-13:15 í Öskju 132:

Skuldakreppan: Stórveldi og smáríki innan Evrópusambandsins

Fundurinn er hluti af fundaröđ Alţjóđamálastofnunar Evrópusamrćđur 2012-2013

Skuldakreppan í Evrópu hefur ekki einungis haft áhrif á efnahagsmál heldur einnig hiđ pólitíska sviđ. Smáríki álfunnar hafa brugđist viđ međ ţví ađ leggja áherslu á nána samvinnu stofnana og byggja viđbrögđ sín á siđferđilegum sjónarmiđum međ ţađ ađ markmiđi ađ verja ţá verst settu í samfélögunum. Stćrri ríkin reyna hins vegar ađ bćta stöđu sína međ ţví ađ vinna saman í stofnunum sem eru í raun gjaldţrota og hjálpa ţannig ţeim sterku. Í náinni framtíđ munu ţessar gjörólíku nálganir hafa veruleg áhrif á evrópsk stjórnmál og samskipti ríkja í heiminum.

Peter J. Katzenstein er einn áhrifamesti stjórnmálafrćđingur í heiminum í dag og helsti kenningarsmiđur í smáríkjafrćđum. Hann fćddist í Ţýskalandi en flutti til Bandaríkjanna og lauk doktorsgráđu viđ Harvard. Í dag er hann Walter S. Carpenter Jr. prófessor í alţjóđafrćđum viđ Cornell háskóla. Hann er jafnframt gestafrćđimađur viđ Princeton Institute of Advanced Study og Stanford Centre for Advanced Study in the Behavioral Sciences og var forseti the American Political  Science Association 2008-2009.  

Ţátttakandi í umrćđum og fundarstjóri er dr. Ólafur Ţ. Harđarson, forseti Félagsvísindasviđs Háskóla Íslands.

Alţjóđamálastofnun Háskóla Íslands heldur tíu málstofur um Evrópusamrunann og Ísland í vetur. Stofnunin hlaut styrki frá Evrópustofu og úr Jean Monnet sjóđi ESB til ađ stuđla ađ upplýstri umrćđu um Evrópumál á Íslandi."  

 


« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurgeir Jónsson

ESB heldur áfram áróđri sínum fyrir inngöngu Íslands í ESB.Nú skal dreginn fram mađur sem fer um og dregur í efa tilveru smáríkja.Öllu skal til tjaldađ í áróđri ESB.Nú er ţađ ţýskur kani.Nei viđ ESB.

Sigurgeir Jónsson, 1.3.2013 kl. 17:47

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband