Leita í fréttum mbl.is

Joscha Fischer mögulegur ESB-stjóri?

Joscha FischerNafn Joscha Fischer, fyrrum utanríkisráðherra Þýskalands hefur verið nefnt í sambandi við forsetastöðu framkvæmdastjórnar ESB. Fischer var þingmaður þýska Græningaflokksins (Die Grüne) og er bæði mikil umhverfis og Evrópusinni. Hann er einn af virtari stjórnmálamönnum í sögu Þýskalands nútímans.

Það er annar frægur maður, ,,rauði-Danni" sem stingur upp á Fischer. Sá heitir með réttu Daniel Cohn-Bendit og varð frægur í miklum óeirðum í París árið 1968. Hann varð síðar þingmaður á Evrópuþinginu og er enn þar.Rauði Danny

EuObserver birtir frétt um þetta í dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

"Creating a single European state bound by one European Constitution is the decisive task of our time." — German Foreign Minister Joschka Fischer, The Daily Telegraph, 27 December 1998

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.8.2009 kl. 07:22

2 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

“The top priority (is) to turn the EU into a single political state” — German Foreign Minister Joschka Fischer, The Times, 26 November 1998

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.8.2009 kl. 07:27

3 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Það er einföld skýring á að þú hafir ekki fundið þetta annars staðar. Gagnasafn Telegraph.co.uk á netinu nær ekki lengra aftur en til ársins 2000 og hliðstætt er upp á teningnum í tilfelli Timesonline.co.uk. Þeir einu sem hafa hag að því að rifja þetta upp eru þeir sem ekki eru spenntir fyrir Evrópusambandinu eðli málsins samkvæmt. Það er a.m.k. ljóst að Evrópusambandssinnar hafa engan áhuga á því eins og sést vel á svari þínu hér að ofan.

En við getum annars líka rifjað upp fleira áhugavert sem snýr að stuðningi við að breyta Evrópusambandinu í eitt sambandsríki. Evrópusamtökin eru þannig t.a.m. hluti af evrópsku samtökunum The European Movement sem hafa það að meginmarkmiði að breyta sambandinu í einmitt, eitt sambandsríki (united federal Europe) samkvæmt þeirra eigin heimasíðu.

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.8.2009 kl. 13:56

4 Smámynd: Hjörtur J. Guðmundsson

Þess utan Jón minn, ómálefnaleg framkoma þín allajafna í umræðum um þessi mál segir meira um þig en þá sem þú kýst að beita honum gegn. Þess utan gerir þú þínum eigin málstað engan greiða með slíkri framgöngu ;)

Hjörtur J. Guðmundsson, 6.8.2009 kl. 13:59

5 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Verið ekki taka þennan Hjört alvarlega.

Hann veit ekkert hvað fræðileg vinnubrögð eru.

Heldur að ef hann rekist á eitthvað á öfgasíðum á betlandi - þá sé það bara rétt og peistar því umsvifalaust inná líú bloggið sitt og gott ef að Heimasýn skrifar ekki greinarstúf í því tilefni.

Auðvitað leifa þeir ekki að bullið úr þeim sé leiðrétt og banna því að hægt sé að leiðrétta þvæluna.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 6.8.2009 kl. 14:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband