Leita í fréttum mbl.is

Nei-sinnar fá nýja formann

asmundur-dadasonHeimssýn, samtök Nei-sinna, á Íslandi fengu nýjan formann í dag. Óhætt er að segja að samtökin hafi yngt upp hjá sér, af störfum lét Ragnar Arnalds (fæddur 1938), en við tók ungur bóndi, Ásmundur E. Daðason, þingmaður VG (fæddur 1982). MBL birti fréttum þetta í dag.

Nei-sinnar vörpuðu síðan fram þeirri fáránlegu hugmynd að draga umsóknina að ESB til baka. Malta lenti í þeirri ógæfu á sínum tíma og þeir sem til þekkja þar segja að það hafi verið hrein og klár hörmungarákvörðun. Halda mætti að Nei-sinnar séu ekki með fullu ráði!

Nokkrir bloggarar tengdu blogg sín við frétt MBL og "kommentin" tala sínu máli:

Haraldur Bjarnason segir: ,,Mjög táknrænt að fundur þessa fólks skuli hafa verið haldinn í Þjóminjasafninu. Þarna er hópur fólks sem vill halda í gömul gildi. Hópurinn vill ekki samningaviðræður um aðild að ESB og um leið að þjóðin fái ekki að vita hvað er í boði þar og fái því ekki að greiða atkvæði um aðild."

Róbert Björnsson segir: ,,Öfgasinnaðir einangrunarsinnar af hægri og vinstri jaðarsvæðum íslenskra stjórnmála sameinast nú undir merkjum Heimssýnar í þeim tilgangi að reyna að koma í veg fyrir að Íslenska þjóðin fái að kjósa um Evrópusambands-aðild.  Heimssýn ályktar að kjósa skuli um að draga umsókn Íslands að Evrópusambandinu til baka áður en aðildarviðræður fara af stað og áður en þjóðin fær að vita hvers konar samning okkur stendur til boða að þeim loknum.

 Heimssýnar-menn þykjast vera svo vissir um að þjóðin felli aðild, þegar þar að kemur, að það taki því ekki einu sinni að eyða peningum í viðræður.  Við hvað eru þeir svona hræddir?  Af hverju treysta þeir ekki dómgreind Íslendinga í þjóðaratkvæðagreiðslu?... Er hættulegt að leyfa fólkinu að ráða?"

Hægt er að taka heilshugar undir orð Róberts, sem, nota bene, á eftir að taka afstöðu og ákveða sig. Nei-sinnar vilja ekki leyfa íslensku þjóðinni það. Þeir telja sig vita best hvað sé íslenskir þjóð fyrir bestu. Heitir það ekki að setja sig á háan hest?

Önnur viðbrögð:

Mörður Árnason


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef föðurlandssvikararnir myndu sjálfir borga fyrir „aðildarviðræðurnar“, þá væri það nú kannski ekki alveg fráleitt að láta það afskiptalaust þegar þeir fara út að leika sér í kokteilboðum með ESB í Brussel.

En gallinn er sá að íslensk alþýða er neydd til að greiða fyrir þennan leikaraskap, enda er augljóst að föðurlandssvikarar eru upp til hópa engir borgunarmenn hvort eð er.

Það hlýtur að segja sig sjálft að betra væri að nýta þessa fjármuni til að lækka skatta og reyna að koma efnahagslífinu af stað.

Pétur Guðmundur Ingimarsson (IP-tala skráð) 15.11.2009 kl. 23:10

2 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Ósköp er þetta nú lágkúrulegt. Við sem andæfum í ESB erum ekki með réttu ráði. Talin fötluð af agentum aðildarsinna. Ég óska Heimssýn til hamingju með nýja formanninn. Þar fer glæsilegur fulltrúi yngri kynslóðarinnar fyrir alla þjóðina. Betur að fleiri slíkir sætu á þingi

Sigurður Sveinsson, 16.11.2009 kl. 06:14

3 Smámynd: Gunnar Rögnvaldsson

Pétur og Sigurður. Gúmmítékkar Evrópusamtakanna skrifa sig sjálfir, en enginn vill þó skrifa undir þá með eigin nafni.

Kveðjur

við Íslandi en nei við stórríki ESB.  

Gunnar Rögnvaldsson, 16.11.2009 kl. 08:31

4 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Sambandssinnar segjast vilja rökræða málin en detta samt alltaf í þá gryfju að uppnefna þá sem telja hag Íslands ekki best borgið innan ESB einangrunarsinna, öfgamenn, afdalamenn o.sv.frv.

Hversvegna tala þeir ekki frekar um veru Evrópusamtakana íslensku í European Movement, regnhlífarsamtökum sem hafa stofnun evrópsks sambandsríkis sem eitt af meginmarkmiðum sínum?

Its objective is to "contribute to the establishment of a united, federal Europe...

Er það líka yfirlíst stefna Evrópusamtakana?

Axel Þór Kolbeinsson, 16.11.2009 kl. 09:28

5 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Einangrunarsinnar eru þeir sem vilja loka Ísland inni í evrópsku stórríki og gera það að áhrifalausum útnárahreppi þar. Það eru 193 viðurkennd fullvalda ríki á jörðinni, en aðeins 27 af þeim eru í Evrópusambandinu og verða bráðum eitt. Er ekki betra að við ráðum því sjálf hvernig við högum samskiptum okkar við hin 166 löndin og alþjóðlegar stofnanir?

Guðmundur Ásgeirsson, 16.11.2009 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband