Leita í fréttum mbl.is
Embla

"Sýn" Bændasamtakanna á gjaldeyrismálin

1000 kr Það var athyglisvert viðtal Gísla Einarssonar við Harald Benediktsson um sýn Bændasamtakanna á gjaldmiðilsmál okkar Íslendinga í kvöldfréttum RÚV í gærkvöldi.

Þar kom eiginlega fram að samtökin hafa enga sýn á gjaldmiðilsmálin, en samt talar formaðurinn um að það sé ,,fjöldi leiða í þeim efnum." Hvaða fjöldi leiða???

Fram hefur komið að um 20% mjólkurbúa á við gríðarlega skuldavanda að etja, m.a. vegna hruns íslensku krónunnar. Í MBL í dag kemur fram að staða svínabænda hefur aldrei verið verri og að greinin sé í raun gjaldþrota. Þetta hefur tekist án aðstoðar ESB!!

Landbúnaður er mjög háður; a) innflutningi tækja og búnaðar og b) innfluttum aðföngum. Á sama tíma er ekki um að ræða stórkostlegan útflutning á landbúnaðarvörum, enda framleiða bændur að langstærstum hluta fyrir innanlandsmarkað.

Hér er þetta merkilega viðtal, sem RÚV gaf yfirskriftina TAKA EKKI AFSTÖÐU TIL KRÓNUNNAR

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Þetta er athyglisvert svar frá Haraldri. "fjölda leiða í þeim efnum". Bændasamtökin hafa stært sig á því að þeir eru búnir að fyljgast með og rannsaka þetta Evrópusamband síðan 1993 og hafa komist að þeirri niðurstöðu að hagsmunir þeirra séu betur borgið utan ESB.

En samt hafa Bændasamtökin þessar ranghugmyndir.

Maður hefur það á tilfinningunni að eina sem þeir vita í sinn haus er að þeir eru á móti ESB....sama hvað.

Sleggjan og Hvellurinn, 6.3.2010 kl. 00:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband