Leita í fréttum mbl.is
Embla

Ólafur Stephensen skrifar um Grikkland

FRBL Fyrir þá sem kynna sér ofan í kjölinn vandmál Grikkja, sjá það strax að þau eru ekki Evrunni að kenna, eins og t.d. Morgunblaðið hefur verið að básúna.

Fyrrum ritstjóri þess, Ólafur Stephensen, sem nú er tekinn við að ritstýra Fréttablaðinu, skrifar um vanda Grikklands í leiðara í dag. Hann segir m.a.; ,,Kreppa Grikklands orsakast fyrst og fremst af agaleysi við stjórn ríkisfjármála, sem hefði haft alvarlegar afleiðingar hvort sem Grikkland notaði evru eða drökmu. Fjármálakreppan kom illa við ríkissjóð Grikklands eins og annarra ríkja, en Grikkir stóðu verr að vígi en margir aðrir vegna þess að þeir höfðu þanið út ríkisútgjöldin langt umfram efni."

Og síðar segir hann: ,,Einn af þeim kostum sem margir sjá við að Ísland gangi í Evrópusambandið og taki upp evruna er meiri agi við hagstjórnina. Stjórnvöld ættu þá ekki lengur þann kost að fella gengið til að bregðast við efnahagsvanda. Þeir sem nú vorkenna Grikkjum, Írum og fleiri evruríkjum að geta ekki fellt gengið og neyðast til að skera niður ríkisútgjöld og lækka laun, gleyma því að gengis-felling er bara önnur og ekki alveg jafnaugljós aðferð til að skerða lífskjör fólks."

Allur leiðarinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Albert Rögnvaldsson

Þessa grein ritstjóra Fréttablaðsins hefði ekki verið hægt að selja, sökum þess hve léleg hún er.

Ekki er furða að Fréttablaðið kosti ekki neitt

Kveðjur

Gunnar Albert Rögnvaldsson, 14.3.2010 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband