Leita í fréttum mbl.is

Steinunn Stefánsdóttir um könnun FRBL í leiðara

steinunnstef-3.jpgÍ leiðara FRBL í dag er fjallað um ESB-málið og könnun blaðsins, sem sagt hefur verið frá hér á blogginu. Í leiðaranum segir Steinunn Stefánsdóttir

"Niðurstaða skoðanakönnunarinnar segir ekki til um það hvort svarendur eru hlynntir Evrópusambandsaðild eða ekki. Þessir tveir þriðju hlutar svarenda eru bara afdráttarlaust hlynntir þeim lýðræðislega framgangi mála að viðræðurnar fái að hafa sinn gang og ljúka með samningi sem lagður verði í dóm þjóðarinnar. Þetta er enda í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og samþykktar meirihluta alþingismanna sumarið 2009.

Vonandi munu stjórnarandstöðuþingmenn, bæði innan og utan ríkisstjórnarflokka, hlýða á þessi skilaboð og taka mark á þeim. Næg eru verkefnin þótt ekki sé þrefað um að aðildarviðræðum við ESB verði hætt í miðju kafi. Það er í það minnsta ljóst að þeir þingmenn sem það gera tala ekki máli meirihluta þjóðarinnar. Sjálfstæðismenn og framsóknarmenn sem tala fyrir slitum aðildarviðræðna gera það vissulega í umboði um helmings kjósenda sinna, minnkandi hóps þó, samkvæmt skoðanakönnuninni. Vinstri grænir þingmenn sem tala fyrir slitum á viðræðum hafa samkvæmt könnuninni innan við 33 prósent kjósenda flokksins á bak við sig en meðal þeirra sem segjast mundu kjósa Vinstrihreyfinguna - grænt framboð ef gengið yrði til kosninga nú hefur stuðningur við áframhald aðildarviðræðna aukist mest frá því að síðast var spurt sömu spurningar, í skoðanakönnun Fréttablaðsins í september síðastliðinn.

Vissulega eru sterkir og valdamiklir hagsmunahópar og -samtök sem ekki virðast kæra sig um að þjóðin fái að sjá hvað samningur um aðild að Evrópusambandinu felur í sér, til dæmis bæði samtök útgerðarmanna og bænda. Þessir hópar hafa býsna hátt og má velta því fyrir sér hver sé ástæða þess að þeim er svo umhugað um að samningur um aðild Íslands að Evrópusambandinu líti ekki dagsins ljós, að kjósendur fái ekki að sjá niðurstöðu aðildarviðræðna og taka á þeim grundvelli afstöðu til aðildar.

Allur leiðarinn


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvernig er einusinni hægt að taka svona könnun sem frétt. Það að 800 manns séu spurðir hvort eða ekki þeir vilji klára eða ekki er falsfrétt og ekki trúverðug. Það að stöð tvö skuli hafa komið með þetta sem aðalfrétt kvöldsins sínir hræsni ESB sinna.

Valdimar Samúelsson, 24.1.2011 kl. 19:01

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Samkvæmt Steinunni Stefánsdóttur hjá FRBL þá skulu nú þeir sem hingað til hafa vogað sér að vera á móti þessum ESB aðildar- aðlögunarviðræðum ekki voga sér að tala gegn þeim lengur.

Af því að þessi einstaka og einsleita könnun FRBL sýnir nú meirihluta fyrir því að klára skuli viðræðurnar.

Semsagt vegna þessa þá á nú á að leggja alla lýðræðislega umræðu niður og allir sem á annað borð fá að tala skulu nú tala einum rómi og þeir sem eru á móti skulu bara hafa vit á því að þegja af því að það huggnast ekki hagsmunum ESB og þeim sem harðast berjast fyrir ESB innlimuninni.

Er er þessi ólýðræðislega og óforskammaða krafa hennar um tafarlausa þöggun umræðunnar ekki alveg í anda þess sýndar- og gerfilýðræðis sem ríkir innan æðstu stofnana og commísararáða ESB valdaklíkunnar !

Kannski þess vegna sem athugasemd mín síðan í morgun um niðurstöður FRBL könnunarinnar hefur enn ekki verið birt hér á síðunni þrátt fyrir að þó nokkrar greinar ykkar hafi verið birtar hér síðan þá.

Gunnlaugur I., 24.1.2011 kl. 19:51

3 Smámynd: Hólmfríður Bjarnadóttir

Ég hef frá upphafi haft þá sannfæringu að viðhorf þjóðarinnar mundu mjakst á sveif með aðild eftir því sem liði á umsónarferlið/viðræðurnar. Það segir sig sjálft að eftir því sem fleira kemur fram og rangfærslum sem fólk leggur trúnað á, fækkar mun þetta síga á jáhliðina

Hólmfríður Bjarnadóttir, 24.1.2011 kl. 22:53

4 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Alveg dæmigert fyrir málflutning ykkar Nei-sinna að reyna að gera lítið úr þessu. Þið dæmið ykkur svo sjálfa úr leik, með þessu tuði, aðfsakið!

Svörun við þessari spurningu var næstum 90% 

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 24.1.2011 kl. 23:26

5 Smámynd: Valdimar Samúelsson

Hvað er alltaf verið að tala um nei sinna við erum ekkert í einhverjum nei/já leik. Þessi spurning er kolólögleg og falsumsóknin sömuleiðis. Við vorum frjáls og erum frjáls svo þú getur séð Evrópusinni góður að það hafði engin rétt á að koma með þessa tillögu að ganga í ESB. Þetta er bara ekkert grín sérstaklega með svona skemmda (corrupt) pólitíkusa sem hafa það fyrir lifibrauð að ljúga og svíkja. Það eitt er marg sannað.

Valdimar Samúelsson, 25.1.2011 kl. 09:28

6 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

Kæri Valdimar: Þetta snýst um Já eða Nei við aðildarsamningi, þegar og ef hann liggur fyrir (sem fólk greinilega vill, kannski ekki þú!).

Þú hættir ekki að vera frjáls þó landið gangi í ESB, spurðu alla hina í ESB löndunum 27! Eða lestu þér til - mælum með því!!

Umsóknin var ákveðin í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu á Alþingi Íslands. PUNKTUR!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 25.1.2011 kl. 14:33

Bæta við athugasemd

Nauðsynlegt er að skrá sig inn til að setja inn athugasemd.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband