Leita í fréttum mbl.is

Dollar, Evra og öfgar!

Í vikunni birtist áhugaverð grein í Financial Times, hvers kjarnapunktur er að ef til vill sé dollarinn í mun meiri hættu heldur en Evran nokkurntímann.

Höfundurinn Axel Merk færir sannfærandi rök fyrir því að skuldastaða Evruríkjanna sé mun viðráðanlegri og framtíðar horfur þeirra sé betri heldur en staða dollarans.

Þá gerir hann að umtalsefni umfangsmikla seðlaprentun Seðlabanka Bandaríkjanna, sem megin-aðferð til að glíma við vanda dollarans.

Hér heima keppast svo hatursmenn ESB að spá andláti Evrunnar og mála það upp sem sína "óska-sviðsmynd."

Öfgamenn sem meðal annars líkja ESB við heróin-sala (Staksteinar, 13.5), fá pláss í blöðum á borð við Morgunblaðið, þar sem svo virðist vera sem að því öfgafullri sem þú ert, því greiðari aðgang eigir þú að blaðinu!

Svo vitnað sé beint í Staksteina MBL: "Lítil lönd sem lenda á heróíni elítu Evrópusambandsins eiga sér litla von," hefur Morgunblaðið eftir helsta hatursmanni ESB á Íslandi, sem þó bjó 25 ár í ESB-ríkinu Danmörku!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

umræðan er komið útí rugl.

Evran er stöðugur gjaldmiðill og er ekki að fara neitt.

Sleggjan og Hvellurinn, 14.5.2011 kl. 14:26

2 Smámynd: Hrólfur Þ Hraundal

Ég hef enga þekkingu á mismunagæðum Dollars eða Evru. 

Ég veit hinsvegar að Evra er ungt fyrirbæri og heima klambrað í mið Evrópu, smíðað og snurfusað handa  mið Evrópu.  

Það er klambur sem við íslendingar ætum að forðast í lengstu lög, eins og dæmin sanna.

 

Hrólfur Þ Hraundal, 14.5.2011 kl. 14:29

3 Smámynd: Gunnar Hólmsteinn Ársælsson

Allir þeir sem fylgjast með gjaldmiðilsmálum vita að vandamál Grikkja er helst vegna lausungar í ríkisfjármálum, gríðarlegum útgjaldaaustri (m.a. nokkuð geggjuðu lífeyriskerfi), sem og þeirri staðreynd að Grikkir fölsuðu  fullt af gögnum, sem máluðu upp betri mynd en í raun var. Gegn slíku er afar erfitt að verjast, sama hvar þú ert. Þeir súpa nú seyðið af þessu. Þetta er því ekki Evrunni að kenna.

Hvað með þau lönd sem eru með Evruna og gengur bara vel: Slóvenía, Austurríki, Frakkland, Holland, svo dæmi séu tekin?

Auðvitað eru mjög mörg að glíma við vandamál útaf 2008, gjaldeyrishöft, skuldavanda osfrv. Það tekur gríðarlega á að glíma við svona gígantískan vanda, en Evrópa er á uppleið, það segja tölurnar.

Og við Íslendingar verðum að losan við gjaldeyrishöft til þess að verða eðlilegur hluti af alþjóðlegum viðskiptum, verða ,,menn með mönnum."

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, 14.5.2011 kl. 15:22

4 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Ég er nú reyndar ekki skráður á FT.com svo ég get ekki lesið greinina. En ég hef lengi sagt að skuldir Evrópuríkja séu mun viðráðanlegri en skuldir Bandaríkjanna.

Þegar talað er um skuldir ríkja er verið að vitna í Brúttó skuldir, það er að segja eignirnar eru ekki meðtaldar. Þannig eru Íslendingar ein skuldsettasta þjóða í heimi en ekki er talið með að stór hluti af þessari skuldsetningu situr í gjaldeyrisforðanum okkar. Þannig eru líka Norðmenn með skuldir upp á 50% af þjóðarframleiðsla enda þótt allir vita að Norðmenn eru ríkasta þjóð í heimi.

Evrópuríki eiga í fyrsta lagi langstærsta forða af gulli í heimi og þeir eiga líka töluvert meira af gjaldeyrisforða en bandaríkin(bandaríkiin hafa miklu minni þörf fyrir gjaldeyrisforða). Svo eru auðvitað ríki Evrópu vellauðug af eignum, eiga hluti í vopnaframleiðendum(defence industry), transport iðnaði(almenningssamöngur, flugfélögum, skipaflutningum), fjölmiðlun(útvarp, sjónvarp), tryggingarfyrirtækjum bönkum, telecommunications. 

Þetta er löngu búið að einkavæða í USA. Til dæmis var talað um að Grikkland ætli að selja ríkiseignir fyrir 50 milljarða bandaríkjadollara til að lækka skuldir. Til samanburðar var talað um að við þyrftum að greiða um 35 miljarða vegna icesave(um 30 milljónir dollara). Bara þessi fyrsti áfangi í sölu ríkiseigna í grikklandi tekur því inn fyrir gríska ríkið um 1600 falda icesave skuld. 

Ekkert að ég sé að gera lítið úr vandamálum Grikklands, þau eru veruleg. 

Jón Gunnar Bjarkan, 14.5.2011 kl. 16:51

5 Smámynd: Jón Gunnar Bjarkan

Hér er listi yfir gold reserves:

http://en.wikipedia.org/wiki/Gold_reserves

Evrusvæðið er sýnt sem heild, en aðrar ESB þjóðir(ekki með evru) og þjóðir utan ESB eru ekki með taldar(bretland, Sviss, Noregur, Svíþjóð, Austur Evrópuþjóðirnar og svo framvegs). Takið eftir að Portúgal er með mikla gulleign, nánast jafnmikið og Indland. 

Hér er listi yfir foreign reserves.

http://en.wikipedia.org/wiki/List_of_countries_by_foreign_exchange_reserves

Þjóðir sem flytja mikið út er hérna í fararbroddi. Takið reyndar erftir hvað Japan er með gríðarlega mikið í gjaldeyrisforða(en þeir hafa reyndar ótrúlega mikla skuldir á móti, 225 % af þjóðarframleiðslu á meðan skuldsettasta þjóð í Evrópu er Grikkland með 142% af þjóðarframleiðslu og svo ísland með 123%.). Evrusvæðið er með um 6 falt meiri forða en USA.

Jón Gunnar Bjarkan, 14.5.2011 kl. 17:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband