Leita í fréttum mbl.is
Embla

Þorvaldur í Fréttablaðinu

Þorvaldur Gylfason Þorvaldur Gylfason, hagfræðiprófessor, skrifar grein í Fréttablaðið í dag, en Þorvaldur er einn af afkastameiri greinarhöfundum landsins. Í dag eru það Evrópumálin sem eru umfjöllunarefnið og segir Þorvaldur m.a.:

,,Fyrir sumum andstæðingum ESB-aðildar vega þjóðvarnarrökin þyngst. Að baki þeim rökum býr gömul og heiðvirð hugsun. Þjóðvarnarmönnum er annt um Ísland og allt, sem íslenzkt er. Þeir óttast um afdrif íslenzkrar menningar og tungu í straumkasti stórþjóðanna á vettvangi ESB. Þessi ótti er skiljanlegur, bæði hér heima og annars staðar. Engin önnur smáþjóð í Evrópu hefur látið aðild að ESB steyta á slíkum ótta. Eistar eru ekki nema fjórum sinnum fleiri en Íslendingar. Þeir eru smáþjóð líkt og við og að sama skapi viðkvæmir fyrir sögu sinni, tungu og menningu. Sagan, tungan og menningin stöppuðu í þá stálinu árþúsundum saman undir erlendu oki, síðast undir þungu fargi Sovétveldisins 1940-1991. Samt gengu Eistar glaðir inn í ESB 2004, án þess að um inngönguna væri umtalsverður ágreiningur af þjóðvarnarástæðum eða öðrum sökum. Reynslan af ofríki Rússa vó þungt. Eistar þykjast ekki hafa þurft að fórna neinum þjóðlegum verðmætum við inngönguna í ESB, og sama máli gegnir um Letta og Litháa og einnig um Austurríkismenn, Dani, Finna, Grikki, Íra, Portúgala og Svía. Hví skyldi annað lögmál gilda um Ísland?"

Öll greinin


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband