Leita í fréttum mbl.is

Evruskilyrði - markmið?

Í kvöldfréttum RÚV var sagt frá nýjum efnahags og þróunarmarkmiðum ríkisstjórnarinnar. Í frétt á Eyjunni segir einnig: " Eiríkur Bergman segir að þau efnahags og þróunarmarkmið sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun vera skýra vísbendingu um að stefnt sé að því að taka upp evru á næstu árum. Þetta kom fram í kvöldfréttum sjónvarps fyrr í kvöld.

Eiríkur segir að þrjú af fimm efnahags- og þróunarmarkmiðum sem ríkisstjórnin samþykkti í morgun sem hluti af stefnumótuninni Ísland 2020, séu svo lík þeim skilyrðum sem sett eru fyrir upptöku evru að vart geti um tilviljun verið að ræða."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þið og RÚV og fjölmiðlaelítan sem næstum öll hlaupið eftir þessu ESB rugli.

Fyrsta fréttin hjá RÚV og Stöð 2 er að segja frá þessu og fá lafmóðan og úlpuklæddan Evrópusérfræðinginn alla leið frá ESB fræðasetrinu ofan úr Borgarfirði til þess að segja þessar áróðursfréttir um að Ríkisstjórnin stefni þráðbeint á evru upptöku og ESB aðild fyrir árið 2020.

Er ekki allt í lagi, hvurslags örvænting er eiginlega í gangi. Þó svo að allir viti að Ríksisstjórnin sé alls ekkert á sama máli um ESB aðild og heldur alls ekki þjóðin því að einungis 19% þjóðarinnar telja að ESB aðild muni þjóna hagsmunum þjóðarinnar betur heldur en að vera áfram fullvalda og sjálfstætt þjóðríki með sinn sjálfstæða alþjóðlega þjóðarrétt.

En tilgangurinn helgar meðalið með ESB eiturbikar Samfylkingarinnar og nú á enn og aftur að misnota ESB hliðholla fjölmiðlana til að mata þjóðina og niðurlægja enn frekar VG ingana sem eru alfarið á móti ESB enn meira.

Auðvitað munu allar ríksstjórnir setja sér svona markmið um aðhald í peningamálum, minnkandi atvinnuleysi og, minni verðbólgu og aðhald í ríkisbúskapnum.  Flest allt af svona miðstýrðri markmiðasetningu ESB apparatsins hefur algerlega mistekist hjá þeim sjálfum.

Þetta hefur ekkert að gera með ESB eða Evru og er því aðeins enn eitt ófyrirleytið áróðursbragðið í viðbót til að véla þjóðina inn í þetta yfirráða- yfirríkja bandalag ESB, sem er svo sjálft allt meira og minna með buxurnar niður um sig á flestum sviðum.

Svei þessum ófyrirleitna ESB áróðurs fréttaflutningi helstu fjölmiðla landsins, sem þið í einfeldni ykkar gapið hér yfir.

Megi skömm ykkar og svik við þjóðina verða sem flestum ljós !  

Gunnlaugur I., 7.1.2011 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband