Leita í fréttum mbl.is

Það hlaut að koma að því!

GúrkurÞað var aðeins tímapursmál þar til "nojan" í sambandi við gúrkurnar næði til íslenskra Nei-sinna og að þeir færu að skella skuldinni á ESB í sambandi við þetta. En það hefur nú gerst á bloggi Nei-sinna.

En það hefur eitthvað skolast til (kannski baktería?) því á blogginu er fullyrt að þessi baktería komi úr grænmeti. ÞAÐ ER HINSVEGAR EKKI RÉTT, enginn veit í raun hvaðan hún kemur.

Meira að segja Morgunblaðið matreiðir málið með þeim hætti. Bloggari Nei-sinna ætti nú að kíkja á Moggann áður en vaðið er út með órökstuddar fullyrðingar, sem eru út í loftið!

Í frétt MBL segir: "Uppruni sýkingarinnar er enn ófundinn en talið hefur verið að bakterían berist með menguðu grænmeti." TALIÐ HEFUR VERIÐ!

Umræða Nei-sinna gengur út að að hræða fólk upp úr skónum, en ekki ræða málefni!

Og bara svo þið Nei-sinnar vitið það, að þá eru aðildarríki ESB 27 talsins! Króatía verður sennilega það 28. og Ísland e.t.v. það 29.!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Óskar Þorkelsson

uppruni þessarar bakteríu er í iðrum manna og dýra.. smitleiðin er oftast saur frá kúm.. líklega er um smit frá áburði um að kenna sem hefur komist í pökkunarstöð.. annars eru vegir gerla með ólíklegasta móti.. og þetta er hystería frá A-Ö þótt fólk hafi látist úr þessu.. annars er þetta bara kallað saurkóli á íslandi

Óskar Þorkelsson, 3.6.2011 kl. 18:07

2 Smámynd: Elle_

ERU RÚSSAR ´NEI-SINNAR´??  GLEYMDUÐ ÞIÐ NOKKRU?  ´MEIRA AÐ SEGJA´ VÍSIR SKÝRIR ÞETTA:

Vísir 02. jún. 2011 10:09

Rússar hafa lagt bann við innflutningi á fersku grænmeti frá ríkjum Evrópusambandsins vegna kólígerlasýkingar sem rakin er til Þýskalands.

http://www.visir.is/article/20110602/FRETTIR02/110609841

Elle_, 4.6.2011 kl. 01:49

3 Smámynd: Rafn Guðmundsson

ég vona að við verðum númer 29 - sennilega það eina sem getur bjargað okkur (frá okkur)

Rafn Guðmundsson, 4.6.2011 kl. 02:32

4 Smámynd: Óskar Þorkelsson

@Elleericsson.. já rússar eru nei sinnar og þeir nota hvert tækifæri sem gefst til þess að koma með svona "PR stunt" því það sýnir að yfirvöld í rússlandi bera "hag" almennings fyrir brjósti í rússlandi ;) en sannleikskornið er að rússar eru sjálfum sér nógir um grænmeti á ÞESSUM árstíma.. svo opna þeir fyrir bannið þegar þeirra markaður er orðin tómur af fersku grænmeti..

Óskar Þorkelsson, 4.6.2011 kl. 12:17

5 Smámynd: Elle_

Rafn, við erum fullvalda ríki og höfum enga þörf fyrir að vera no. 29 eða 1000 eða 29000000000000000000000000000000 þó Jóhönnuliðið hafi ofsatrú og vilji hafa fullveldið af fullvalda ríki með blekkingum og lygaáróðri.  Það eru föðurlandssvik.  Þau geta flutt.  

Elle_, 5.6.2011 kl. 01:31

6 Smámynd: Sigurður M Grétarsson

ElleEricsson. Það eruð þið nei sinnar sem eru að reyna að hafa bætt lífskjör af þjóðinni með blekkingum og lygaáróðri um ESB. Meðal þeirra lyga er einmitt fullyrðingin um að við missum fullveldi okkar með inngöngu í ESB.

Sigurður M Grétarsson, 5.6.2011 kl. 11:49

7 Smámynd: Elle_

Nei, Sigurður, við missum fullveldið við að gangast undir æðra vald sambandsríkis EU þó þið samfylkingarmenn neitið þessu fram í rauðan dauðann.  Ríki verður ekki fullvalda hafi það ekki æðsta vald yfir sínum málum öllum.

Elle_, 5.6.2011 kl. 14:27

8 Smámynd: Elle_

Og þar fyrir utan hef ég ekki verið með neinar blekkingar eða lygar. 

Elle_, 5.6.2011 kl. 15:12

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband