7.3.2010 | 23:06
iCeSaVe rules!
Það hefur ekki mikið verið fjallað um Icesave á Evrópublogginu, en nú verður ger undantekning og það vegna umræðunnar um þátttökuna í þessari blessaðri þjóðaratkvæðagreiðslu. Eins og réttilega hefur verið bent á er alvanalegt hér á landi að þátttaka í almennum þingkosningum sé um og yfir 90%. En í Icesave kosningunum var þátttakan um 60%. Svo deila menn um það hvort þetta sé mikið eða lítið.
Tökum dæmi: Þú ferð í búðina og kaupir líter af mjólk. Þegar þú kemur heim finnst þér fernan full létt og þú kemst að því að hún vegur aðeins 600 grömm. Ertu sáttur eða ferðu og skilar mjólkinni og færð fullan líter, sem þú borgaðir fyrir? Sennilega skilarðu ,,létt-mjólkinni" og færð alvöru fernu!
Hefði löggjafinn sett einhver skilyrði um þátttöku í kosningunum, er ekki ólíklegt að miðað hefði verið við 50% kosningabærra íbúa landsins. Ef svo hefði verið, hefðu þá rúm 60% þótt mikið?
Þetta eru bara svona vangaveltur, nú hefst hið pólitíska karp og eftirspil um þetta mál, hjá þjóð sem virðist elska að hata Icesave og allt sem því fylgir! IceSavE RuLEs!!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Auðvitað eruð þið ekki með þjóðinni í þessu Icesave-máli.
Það var ekki við því að búast. Þetta sést hér milli línanna.
Þið gerið lítið úr því, að 62,7% kosningabærra manna (ekki bara "um 60%") neyttu atkvæðisréttar síns. Þetta er þó litlu minna en þegar Ólafur Ragnar var endurkosinn forseti 2004 og tæplega 10% meira en þegar Írar kusu um Lissabon-sáttmálann.
Svo er það ekki rétt hjá ykkur, að enn taki yfir 90% jafnan þátt í alþingiskosningum.
... Já, sannarlega hatar þjóðin Icesave.
Jón Valur Jensson, 8.3.2010 kl. 02:19
58% kosningabærra manna í landinu kusu nei. Það er mjög afgerandi, jafnvel þótt við ímynduðum okkur að hver einn og einasti þeirra sem ekki kusu eða skiluðu auðu hefði getað hugsað sér að styðja lögin.
...og eins og Jón Valur bendir á þá er þetta töluvert betri kjörsókn en þegar Írar kyngdu Lissabonsáttmálanum og þótti sú niðurstaða nægilega marktæk til þess að flytja stóran hluta fullveldis Íra til Brussel, óafturkræft.
Hans Haraldsson (IP-tala skráð) 8.3.2010 kl. 05:31
Það er vonandi að 90% þjóðarinnar nýti atkvæðisrétt sinn þegar og ef kosið verður um ESB aðild. Þá verður tapið fyrir ESB sinna stórt.
Gunnar Heiðarsson, 8.3.2010 kl. 08:56
Ekki gat einu sinni núna komið einn pistill af viti frá ESB sinnunum, sem vonandi sjá fljótlega sæng sína útbreidda þegar Samfylkingin fer frá völdum og ESB umsóknin verður dregin til baka í samræmi við vilja meirihluta þjóðarinnar !!!
Sigurður Sigurðsson, 8.3.2010 kl. 09:48
Hér tala einangrunarsinnarnir. Loka Íslandi fyrir öllum nema alþjóðlegum áfyrirtækjum. Sama langavitleysan og verið hefur frá því nítjánhundruð sekstíu og sjö. Skammvinnur ( tíu ára) framfarakippur varð við EES samningana. Nú er það tímabil á enda. Það var eyðilagt af gengdarlausri skammsýni og drambi sem allir íslendingar studda af sömu múgsefjun og hér er jafnan hægt að píska upp eftir þörfum.
Þegar þarf að bæta pólitísk skilyrði fyrir framtíð Íslendinga koma skuggamenn stöðnunar og afturhalds úr skúmaskotunum og bera fyrir sig BÆNDUM og ÚTGERÐ. Þjóðvarnaráróður og fjandskapur útí umheiminn til þess lagaður að einangra íslenskt framtak til framtíðar. Það að þjóðaratkvæðagreiðslan fór fram í múgsefjun og með nákvæmlega enga raunhæfa valmöguleika gerir að þessarar atkvæðagreiðslu verða minnst sem skammarlegrar um alla framtíð.
Það getur þó alltaf komið eitthvað gott út úr þessu ef menn fara að skilja inní hvaða öngstræti verið er að leiða þjóðina. Ég fyrir mitt leyti hafna algerlega einangrunarstefnu.
Gísli Ingvarsson, 9.3.2010 kl. 10:15
Gísli Ingvarsson geðvonska ykkar ESB sinna skilar ykkur engu fyrir vonlausan málstaðinn !
Gunnlaugur I., 9.3.2010 kl. 22:14
Uppréttir Íslendingar vilja vera í góðu sambandi við umheiminn og verzlunar- og viðskiptasambandi við helzt öll ríki heims – ekki lokast inni í múrum evrópska risans sem hrörnar með hverju árinu sem líður – já, bókstaflega!
Jón Valur Jensson, 10.3.2010 kl. 01:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.