Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2010

Þorsteinn Pálsson: Óafgreidd innanlandsmál gætu tafið og truflað ESB-ferlið

Þorsteinn PálssonÞorsteinn Pálsson, einn af samningamönnum Íslands gagnvart ESB, hélt fyrirlestur fyrr í dag á Evrópuskóla Ungra Evrópusinna. Þar fór hann yfir það samningaferli sem hefst væntanlega í vor eða snemma í sumar.

Þorsteinn fór skilmerkilega í gegnum ferlið og hvað tekur við þegar samningur liggur fyrir. Hann sagði það vera stefnu samninganefndarinnar að ná viðunandi lausnum á öllum málum fyrir Ísland og að menn myndu taka sér tíma, ekki flana neinu. Hann kom inn á hina ýmsu kafla í viðræðunum og sagði landbúnaðarmálin og sjávarútvegsmálin vera þá erfiðustu. Í sambandi við sjávarútvegsmálin sagði hann t.d. að Ísland myndi ekki tapa neinum veiðiheimildum, reglan um hlutfallslegan stöðugleika myndi sjá til þess.

Hann lýsti hinsvegar yfir áhyggjum vegna ýmissa mála hér heima og nefndi í því sambandi stjórnarskrármálin og þá staðreynd að ríkisstjórnin er klofin í málinu. Hann telur það algerlega nauðsynlegt að niðurstaða aðildarsamnings fái þinglega meðferð. Þorsteinn telur það einfaldlega nauðsyn fyrir lýðræðið í landinu. Því sé eðlilegt að ganga fyrst frá breytingum á stjórnarskrá Íslands áður en landsmenn ganga til atkvæðagreiðslu. Þannig fáist þingleg ábyrgð á málið.Þorsteinn óttast því að ef þetta gerist ekki gæti þetta truflað lokastig málsins.

Þá sagði hann það veikja samningsstöðu Íslands talsvert að annar ríkisstjórnarflokkanna væri á móti aðild, en eins og kunnugt er leggst VG gegn aðild og hyggst vinna gegn henni.

Í umræðum eftir fyrirlesturinn sagðist Þorsteinn aðspurður telja það mjög mikilvægt að allt samningaferlið væri opið og gagnsætt og að upplýsingar til almennings myndu verða veittar með sem bestum hætti.

Að loknum umræðum sleit Sema Erla Serdar, formaður Ungra evrópusinna, þessari vinnuhelgi, sem vissulega hafði truflast töluvert af handbolta!!

Ps. Árangur "strákanna okkar" var frábær! Evrópusamtökin óska þeim, og öllum Íslendingum, hjartanlega til hamingju með bronsið!


Paal í Silfrinu

Paal FrisvoldPaal Frisvold, formaður norsku Evrópusamtakanna, var gestur í Silfri Egils í dag. Hann var góður eins og venjulega! Viðtalið við Paal er í lok þáttarins.

http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4472550/2010/01/31/


Bútar úr fréttabéfi Ungra Evrópusinna

Ungir evrópusinnarFyrsta fréttabréf Ungra Evrópusinna hefur litið dagsins ljós. Þar leggja þeir mikla áherslu á að fram fari málefnaleg umræða um bæði kosti og galla ESB, með það að markmiði að þjóðin geti tekið upplýsta ákvörðun þegar að þjóðaratkvæðagreiðslu kemur. Taka Evrópusamtökin heilshugar undir þetta. Orðrétt segir í fréttabréfinu: ,,Við munum leggja okkur fram við að koma réttum upplýsingum um Evrópusambandið til fólks og gera ungu fólki það eins auðvelt og unnt er að kynna sér kosti og galla aðildar."

Ungir Evrópusinnar telja kostina vera fleiri en gallana á aðild að ESB. Í lok fréttabréfsins segir: ,,Við teljum að Íslendingar geti náð hagstæðum samningi og...vonumst til að þjóðin muni samþykkja aðild. Þannig mun hún ákveða að gerast fullgildur aðili í Evrópusamstarfinu, þjóð meðal þjóða."

Evrópusamtökin taka undir markmiðssetningu Ungra Evrópusinna og óska þeim velfarnaðar í komandi starfi. Jafnfram hvetja Evrópusamtökin allt ungt fólk sem hefur áhuga á ESB og Evrópumálum að snúa sér til samtakanna.

www.ungirevropusinnar.is

Skráning: http://www.ungirevropusinnar.is/skraning/


Noregur er "viðtakandi" - Ísland á vini í Evrópu!

Paal FrisvoldPaal Frisvold, formaður norsku Evrópusamtakanna, var sérstakur gestur Evrópuskóla Ungra Evrópusinna, sem hófst í dag. Þar fór hann yfir ýmis mál sem snúa að samskiptum landanna við ESB. Hann sagði m.a. að Norðmenn verði daglega fyrir miklum áhrifum frá ESB, en hafi að sama skapi lítil sem engin áhrif á gang mála. Sagði hann frá pirringi og vonbrigðum innan norska stjórnkerfisins með þessa aðstöðu Noregs.

Paal segir Noreg fyrst og fremst vera ,,viðtakanda" á löggjöf og öðru frá ESB, en þyrfti t.d. að sætta sig við að vera í ,,baksætinu" hvað varðar áhrif.

Hann gerði áhrif smáríkja að umtalsefni sínu og benti á að bæði Malta og Lúxemborg (bæði um 400 þús. íbúa) hefðu náð mjög miklum árangri innan ESB.

Að lokum sýndi Paal svo myndband þar sem ekki fór á milli mála að Ísland ætti vini í Evrópu. M.a. var þar rætt við skoskan þingmann á Evrópuþinginu, sem átti þá ósk heitasta að Ísland gengi í ESB. og til hvers? Jú, til þess að endurbæta fiskveiðistefnu ESB í samvinnu við Ísland!


Sterkara Íslandi hleypt af stokkunum

DSC00471-1DSC00473Starfsemi samtakanna STERKARA ÍSLAND-Þjóð meðal þjóða, var formlega hleypt af stað síðdegis í gær, í húsnæði samtakanna, Skipholti 50. Fjöldi velunnara var mættur á staðinn. Í stuttu ávarpi sagði Jón Steindór Valdimarsson, að þetta væri sannur gleðidagur, en jafnframt að nú væri hörð barátta að hefjast. Barátta sem miðar að því að Ísland gangi í Evrópusamandið. Jafnframt var nýr samfélagsvefur samtakanna opnaður, www.sterkaraisland.is.

Evrópusamtökin hvetja alla Evrópusinna að skrá sig í þessi nýu samtök og styðja málstaðinn!

 


STERKARA ÍSLAND: OPIÐ HÚS Í DAG

Sterkara Ísland!Hin nýju samtök sem berjast fyrir aðild íslands að ESB, STERKARA ÍSLAND, verða með opið hús í dag. Frá kl. 17 - 19 verður opið hús í aðstöðu samtakanna, en þar er líka góð aðstaða til fundahalda.

Skrifstofan er á 2. hæð í Skipholti 50a í Reykjavík. (sama hús og Gallerí List).Gengið er inn að austan.Við bjóðum upp á kaffi og spjall.

Allir velkomnir!


 


KLASSI!

Evrópusamtökin óska strákunum okkar til hamingju með frækilegan sigur gegn Norðmönnum á EM í handbolta. Þetta var klassi og liðið er þjóðinni til mikils sóma! Frakkar næstir á dagskrá.

Áfram Ísland!

Sverre er klettur í vörninni!

 

 

Strákarnir okkar!   

 

 


EVRÓPUSKÓLI UNGRA EVRÓPUSINNA UM HELGINA

esb-flagga.gifEVRÓPUSKÓLI UNGRA EVRÓPUSINNA VERÐUR HALDINN UM HELGINA. ÞETTA ER FRÁBÆRT TÆKIFÆRI TIL AÐ KYNNA SÉR ESB!

STAÐUR: Skipholt 50A, 2.hæð

DAGSKRÁ:
Laugardagur 30. janúar Kl. 12.00-17.00
12.00-13.00: Saga og stofnanir Evrópusambandsins,
Baldur Þórhallsson, prófessor.
Nokkrar af lykilstefnum Evrópusambandsins:
13.00-13.45: Sjávarútvegsstefnan,
Aðalsteinn Leifsson, lektor.
13.45-14.30: Landbúnaðarstefnan,
Erna Bjarnadóttir, hagfræðingur.
14.30-15.00: „Á Ísland enga vini í Evrópu?“
Paal Frisvold, formaður Evrópusamtakanna í Noregi.
Kaffihlé: 15.00-15.30
Fleiri lykilstefnur Evrópusambandsins:
15.30-16.15: Efnahags- og myntbandalag Evrópu,
Eiríkur Bergmann, doktor í stjórnmálafræði.
16.15-17.00: Öryggismál, Alyson Bailes, stjórnmálafræðingur.

Sunnudagur 31. janúar kl. 14.00
14.00-14.45: EES-samningurinn,
Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrv. utanríkisráðherra.
14.45-15.00: Lissabon-sáttmáli Evrópusambandsins,
Ævar Rafn Björnsson lögfræðingur
Kaffihlé: 15.00-15.15
15.15-16.00: Samningaferli Íslands og
Evrópusambandsins, Þorsteinn Pálsson, fulltrúi
í samninganefnd Íslands.

Skólinn er öllum opinn. Ekkert skólagjald er innheimt.
Nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig vegna takmarkana á fjölda.
Hægt er að skrá sig í skólann með því að senda tölvupóst á
ungirevropusinnar@ungirevropusinnar.is eða í síma 8228904.

Skráningu lýkur föstudaginn 29. janúar kl.15.00


Andrés í útvarpi Sögu

Andrés PéturssonAndrés Pétursson, formaður Evrópusamtakanna, var gestur í þættinum ESB:Nei eða Já, á útvarpi Sögu síðastliðinn laugardag. Á móti honum var varaformaður Heimssýnar, Heiðrún Lind Marteinsdóttir. Þátturinn er í umsjón tveggja annarra úr þeirri hreyfingu, Frosta Sigurjónssonar og Egils Jóhannssonar.

Hlusta má á þáttinn hér, en Andrés stóð sig að venju vel!


Fyrirlestur á laugardag kl. 14.30

Áhugafólk um Evrópumál, við vekjum athygli ykkar á þessum fundi á laugardaginn kl.14.30.

Fundurinn er í sal að Skipholti 50a (sama hús og Gallerí List)

Paal Frisvold

(Smellið á mynd til að stækka)


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband