Leita í fréttum mbl.is

Í kjölfar umræðu á blogginu

Evrópuamtökin vilja taka eftirfarandi fram:

Enginn sem hér skrifar er á launum frá ESB eða neinum öðrum samtökum. Hér er unnið í sjálfboðavinnu.

Ekki vita umsjónarmenn bloggs um tekjur og laun þeirra sem leggja hér inn athugasemdir, en okkur vitanlega er ESB ekki með launaða bloggara á sínum snærum!

Evrópusamtökin FAGNA þeirri umræðu sem hér á sér stað, svo lengi sem hún er málefnaleg.

Við þurfum hinsvegar að fylgja reglum Morgunblaðsins um starfsemi bloggsins. Því þurfum við t.d. að taka út athugasemdir samkvæmt því. Vinsamlega birtið ekki heimilisföng eða kennitölur. Slíkt snertir umræðu um ESB lítið. Og ljótt orðfæri er engum til framdráttar!

Biðjum við þá sem hér ræða málin að virða þetta. Saman skulum við standa að málefnalegri umræðu um ESB-málið!

Kærar þakkir fyrir öll innlegg, sem á síðustu vikum skipta hundruðum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Það væri þarft verk hjá ykkur í Evópusamtökunum ef þið settuð þá kröfu til allra sem rita á þessa bloggsíðu undir ykkar nafni, gæfu upp eigið nafn að auki. Það er ekki neinum til framdráttar og síst ykkar samtökum, þegar menn eru að setja fram skoðanir í skjóli ykkar og þora ekki að setja eigið nafn við!

Gunnar Heiðarsson, 11.6.2010 kl. 12:37

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Fagna þessari yfirlýsingu ykkar og hvatningu til fólks að halda sig við málefnin og að fara ekki útí ærumeyðingar. Þakka ykkur líka enn og aftur til þess að veita öllu áhugafólki hér aðgang að komment kerfinu ykkar. 

Ég reyni að vera málefnalegur en viðurkenni alveg að ég get verið harðorður en tel mig samt passa mig á því að fara yfir þá hárfínu línu að beita sóðaskap eða ærumeyðingum.

En þið getið ekkert fullyrt um að aðrir sem hér skrifa daginn út og daginn inn þyggji ekki þóknanir eða laun fyrir frá einhverjum.

Áróðurs- og útbreiðslu stofnun ESB ræður yfir milljörðum evra til þess að bera fé á fólk og samtök þeirra til þess að hafa áhrif á umræðuna sér í hag.  

Kær kveðja - 

Gunnlaugur Ingvarsson  

Gall harður andstæðingur ESB innlimunar Íslands

Gunnlaugur I., 11.6.2010 kl. 12:59

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

Þessi ummæli eru klárlega ÆRUMEIÐINGAR, þar sem ég og fleiri erum vændir um ÓHEIÐARLEIKA, og því birti ég hér heimilisfang og kennitölu viðkomandi manneskju, sem eru OPINBERAR UPPLÝSINGAR:

"Áróðursmaskínur ESB eru allir - styrkþegar - ESB áróðursmaskínunnar hvaða nöfnum sem þeir nefnast - Steini - Jón Frímann - bara nefndu ...........

En Gunnlaugur þú mátt bíða lengi eftir heiðarlegu svari frá þeim við spurningum þínum.........

Þú sérð nú málfluttninginn og áhverju áróðurinn byggir - ekki á heiðarleika."

Benedikta E, 9.6.2010 kl. 23:32

Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 13:24

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Er ESB ritskoðunin þegar kominn á hjá ykkur, það er miður.

Hvað sagði ég svona ærumeyðandi um Maríu Damanaki öðru vísi en að kalla hana "Daman María aki".

Var það sem sagt of mikið fyrir ykkur að nafni þessa ESB hálfguðs ykkar væri víxlað aðeins.  Sem var nú bara til gamans gert þar sem þetta nafn hennar féll svona skringilega að íslensku máli.

Eða að ég vogaði mér að halda því fram að frk. María hefði aldrei migið í saltan sjó frekar en aðrir af möppudýrunum hennar í Brussel.

Alla vegana er búið að þurka athugasemd mína um Sjávarútvegsstjóra ESB út af blogginu ykkar um hana.  

Samt hafið þið ítrekað leyft t.d. Jóni Frímanni að kalla mig og aðra fífl, bjána og jafnvel fasista, hér á blogginu hjá ykkur.  Svona sóðakjaft og ljót orð hef ég og aðrir líka mátt þola frá Steina Briem atvinnucommentara, þegar hann er kominn í ham.

Ég hef aldrei vogað mér slíkan sóðaskap, ykkur er að fara aftur !  

Gunnlaugur I., 11.6.2010 kl. 13:40

5 Smámynd: Gunnlaugur I.

Fyrirgefið þið mér, ég viðurkenni að ég hljóp á mig því sem betur fer er þetta comment mitt um sjávarútvegsstjóra ESB hana Maríu Damanaki enn á sínum stað, sem betur fer.

Ég bið síðuhaldara innilega afsökunar á commentinu hér að framan þar sem ég hélt því fram að commentið væri farið af síðunni.

Gunnlaugur I., 11.6.2010 kl. 13:48

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

Reglur Morgunblaðsins geta ENGAN VEGINN gengið gegn Stjórnarskrá Íslands og Evrópusamtökin hafa ENGAN RÉTT til að EYÐA hér OPINBERUM UPPLÝSINGUM sem menn vilja koma hér á framfæri og hafa FULLA ÁSTÆÐU til að birta.

Slíkt er MANNRÉTTINDABROT og undirritaður MUN EKKI HIKA VIÐ að höfða mál á hendur Evrópusamtökunum vegna þeirra, láti samtökin ekki af því háttalagi sínu að EYÐA hér ummælum SEM EKKI ERU MEIÐYRÐI.

Það yrði að sjálfsögðu stór FRÉTT og umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu ENGAN VEGINN til framdráttar ef Evrópusamtökin yrðu LÖGSÓTT VEGNA BROTA Á STJÓRNARSKRÁ ÍSLANDS OG MANNRÉTTINDASÁTTMÁLA EVRÓPU, sem hefur verið lögfestur hérlendis.


"73. gr. Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.

Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi. Ritskoðun og aðrar sambærilegar tálmanir á tjáningarfrelsi má aldrei í lög leiða."

Grein - Mannréttindi ber alltaf að halda í heiðri - mbl.is


Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 13:58

7 identicon

Kæru vinir,

eigum við þá ekki að hætta þessu?

Reynum allir að vera málefnanlegri í umræðunni.

Það er okkur öllum fyrir bestu.  Við gerum aðeins lítið úr umræðunni með leiðinlegu orðavali.

Smile to the world and the world will smile back at you;))

Það væri heldur ekki slæmt ef Evrópusamtökin tækju það upp að skrifa undir nafni.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 14:06

8 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

@Gunnlaugur: Þú segist vera málefnalegur, en segir svo: "Er ESB ritskoðunin þegar kominn á hjá ykkur, það er miður." Hvað meinar þú með ESB-ritskoðun? Er þetta málefnalegt?

@Gunnar: Þessi krafa þín stenst ekki skoðun. Hér er skrifað í nafni Evrópusamtakanna. Ekki skrifar neinn undir nafni hjá Nei-samtökunum og að auki leyfa þau engar umræður.

En strákar: "Bottom line" : KURTEISI!!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 11.6.2010 kl. 14:10

9 Smámynd: Þorsteinn Briem

Stefán Júlíusson.

Ég hef MARGSINNIS beðið menn um að halda sig hér við STAÐREYNDIR en ALLIR hafa rétt til að svara í sömu mynt eða sleppa því alveg að svara viðkomandi þegar SVÍVIRÐINGUM er stanslaust ausið yfir þá.

Hins vegar er að sjálfsögðu hið besta mál ef menn krydda hér umræðuna með smá glensi og vísum af og til.

Evrópusamtökin hafa hins vegar kosið að EYÐA hér vísum, enda þótt þær séu ENGAN VEGINN ÆRUMEIÐINGAR.

Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 14:20

10 Smámynd: Þorsteinn Briem

Það er ENGAN VEGINN KURTEISI að EYÐA hér því sem menn hafa skrifað, ef EKKI er um ærumeiðingar að ræða.

Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 14:26

11 identicon

Steini:  Eigum við þá ekki að sleppa því að skrifa vísur.  Þú gætir þá látið okkur fá slóð þar sem við getum lesið vísurnar.

Þegar menn hafa engin rök, þá verða menn hörundssárir.  Það er óþarfi að núa salti í sár þeirra með vísnagerð;))

Ég held að við ættum að hætta að skrifa hérna við þessa bloggfærslu og sína frábæra athugasemdatakta í næstu bloggfærslu Evrópusamtakanna.

Ég hlakka til.

Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 11.6.2010 kl. 14:38

12 Smámynd: Þorsteinn Briem

Stefán Júlíusson.

Ég sé enga ástæðu til að sleppa því að skrifa hér vísur, sem eru ævaforn íslensk hefð, og Evrópusamtökin eiga að virða og halda í heiðri, rétt eins og mannréttindi.

Fólk á ætíð að berjast gegn óréttlæti og lögbrotum, hvað þá mannréttindabrotum.

Það þýðir lítið að GAPA stanslaust um gildi mannréttinda og brjóta svo stjórnarskrána og mannréttindasáttmála.

Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 15:00

13 Smámynd: Jón Frímann Jónsson

Miðað við þær fullyrðingar sem Gunnlaugir I, hefur haft um mig og aðra. Þá ætti að banna hann samkvæmt reglum þeim sem Evrópubloggið hefur sjálft sett sér.

Eftir allt saman, þá er Gunnlaugur I, að væna fólk um óheiðarleika og ráðast á það með skítlegum hætti.

Ef að Gunnlaugur I, vill kynna sér hverjir vinna hjá Sendinefnd ESB á Íslandi, þá getur hann gert það á vefsíðu þeirra hérna.

Jón Frímann Jónsson, 11.6.2010 kl. 15:02

14 Smámynd: Óskar Þorkelsson

jöss

Óskar Þorkelsson, 11.6.2010 kl. 15:05

15 Smámynd: Ómar Bjarki Kristjánsson

Það er alveg hlálegt þegar ndsinnar saka esb um ,,áróður" o.þ.h. (en að vísu í samræmi við málflutning þeirra heilt yfir.  Öllu snúið á hvolf og lesið afturá bak)

Hér eum við að tala um eitt saklaust blogg þar sem áhugamenn um ESB kommenta oft dáldið.

Upplag pistla bloggsins er að reyna að halda staðreyndum til haga, benda á upplýsingar eða umfjöllun og leiðrétta rangfærslur etc.  Allt og sumt. 

En nei!  Þá má það ekki samkv. andsinnum.  Það er ,,áróður"  Samkv. þeim þá má bara, þ.e. ef ES ber á góma, að bulla feitt og big time og uppistaðan á helst að vera einhver skáldskapur sem menn dikta upp um leið og morgunkornið er etið þann og þann daginn.  Auk hefðbundinna mýta og rangfærslna sem andsinnar hafa komið sér upp stöðluðu kerfi á.

Ómar Bjarki Kristjánsson, 11.6.2010 kl. 15:48

16 Smámynd: Þorsteinn Briem

Ég hef skrifað mörg þúsund athugasemdir og vísur hjá fjöldamörgum bloggurum hér á Moggablogginu í meira en þrjú ár og engri þeirra hefur verið eytt, svo ég muni, fyrr en nú að Evrópusamtökin eyða hér út og suður athugasemdum mínum og vísum.

Og ég á fjögur þúsund Snjáldruvini á öllum aldri í öllum íslenskum stjórnmálaflokkum og trúarsamtökum, og fólk í nær öllum löndum heimsins, gyðinga, araba, öfgasinnaða bandaríska hægrimenn, kommúnista og munka.

Þar að auki hef ég sofið hjá konum í öllum íslenskum stjórnmálaflokkum.

Gera verður fleira en gott þykir.

Þorsteinn Briem, 11.6.2010 kl. 16:16

17 Smámynd: Gunnar Heiðarsson

Því miður leyfa NEI samtökin ekki umræðu á sinu bloggi, ef svo væri myndi ég einnig gagnrýna þau fyrir að setja fram skoðanir án þess að nafn höfundar komi fram.

Þið eigið þó hrós skilið fyrir að leyfa umræður, en þá verðið þið að vera búnir undir að menn setji fram sínar skoðanir andstætt ykkar hugsun. Það sem ykkur finnst vera rökleysa getur verið full rök hjá þeim sem setur það fram, alveg eins og það sem ykkur þykir rök þykir okkur oft hin mesta fyrra.

Það sem mestu máli skiptir er þó að allir skrifi undir eigin nafni, þetta á einnig við um þá sem skrifa athugasemdir undir dulnefni!

Sá sem ekki þorir að setja nafn sitt við það sem hann skrifar er gunga!

Því set ég enn fram áskorun til ykkar að krefjast þess að allir setji nafn sitt við það sem skrifað er á þetta blogg. Þið væruð meiri menn á eftir!

Gunnar Heiðarsson, 14.6.2010 kl. 21:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband