Leita í fréttum mbl.is

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Frábært!

Þorsteinn Briem, 15.6.2010 kl. 14:39

2 Smámynd: Gunnlaugur I.

Þessi endurteknu og að mörgu leyti úreltu viðtöl við þessa margyfirlýstu ESB aftaníossa breyta engu, þjóðin hafnar ESB og þessum ESB viðræðum algerlega. 

Látið ykkur ekki dreyma um að þetta muni laga fylgisleysi ykkar eða getað snúið gjörtapaðri stöðu ESB trúboðsins eitthvað við.

Reyndar er margt sem þeir tönglast þarna á um lystisemdir ESB orðið algerlega úrelt og eða hrein ósannindi og því orðið að opinberri lygi núna.

Eins og um að ef við gengjum undir ESB fánann þá yrði hér meira aðhald í peningastjórnun og Ísland hefði skjól af ESB og Evrunni.

Sá spuni allur hefur verið afhjúpaður sem ein mesta lygi mannkyssögunnar.

Með hruni Gríska hagkerfisins og mjög aðhaldslausri og óábyrgri fjármálastjórn sem virðist hafa verið rekin þar í fleiri, fleiri ár í skjóli ESB hefur komið Gríkklandi niður í ruslflokk og undir handarjaðar AGS. Erlendir fjárfestar flýja landið.  

Svipaða sögu má segja um talsvert fleiri lönd ESB sem nú eru kominn með efnahag sinn á vonarvöl og í öndunarvél og gjörgæslu AGS, með allt uppí 20% atvinnuleysi og róstur og hávær mótmæli orðin daglegt brauð. 

Það er nú meira öryggið eða sælan það.

Þetta eins og annar ESB áróður ykkar verður ykkar bara fótakefli og snýst allt þversum í höndunum á ykkur.    

Mikill meirhluti þjóðarinnar hefur megnustu skömm á ykkur

Gunnlaugur I., 15.6.2010 kl. 16:43

3 Smámynd: Evrópusamtökin, www.evropa.is

@Gunnlaugur: Þú ert að verða mjög orðljótur hér á blogginu, það er þér til minnkunnar. Nú færðu viðvörun, annars lokum við bara á þig, svo einfalt er það. Þurfum ekki á þínum "úrhellingum" að halda!

Evrópusamtökin, www.evropa.is, 15.6.2010 kl. 21:50

4 Smámynd: Gunnlaugur I.

Til Evrópusamtakana:

Er það að vera orðljótur að kveða fast að og hafa sterkar skoðanir og nota ýmis íslensk orð til að auðga málið og gera framsetninguna sterkari?

Til dæmis:

Að kalla hörðustu ESB sinna: "ESB aftaníossa"

Eða að tala um að margt af því sem þessir menn sögðu um lystisemdir ESB hér áður sé orðið:  "algerlega úrelt og eða hrein ósannindi og því orðið að opinberri lygi núna"

Eða að: "Sá spuni allur hefur verið afhjúpaður sem ein mesta lygi mannkynssögunnar"

Eða það síðasta sem átti auðvitað við um skoðanir ykkar en ekki ykkur sjálfa sem persónum þ.e. að: "Mikill meirihluti þjóðarinnar hefur megnustu skömm á ykkur"

Ef að þetta er svo ljótt að það eigi að stöðva mig af hér á síðunni ykkar. Þá eruð þið heldur betur viðkvæmir og einnig illa samkvæmir sjálfum ykkur. Því hér hef ég og ýmsir aðrir ESB andstæðingar fengið miklu verri og persónulegri og rætnari athugasemdir um okkur frá daglegum comment skrifurum hér svo sem þeim Jóni Frímanni og Steina Briem en líka fleirum.

Þar hef ég ásamt fleiri ESB andstæðingum ítrekað verið kallaðir:

"Fábjánar, fífl, heimskir, illa gefnir og þroskaheftir fávitar"  svo líka "afturhaldsseggir, einangrunarsinnar" og lygarar, jafnvel líka "fasistar sem gengjum erinda einhverra óprúttinna afla".

Sumt af þessum orðum eru OK og ekkert til að kippa sér upp við en alls ekki:

Fábjánar, fífl, illa gefnir, þroskaheftir fávitar eða fasistar.

Ég hef aldrei gengið hér svona gróflega fram.

Ég fullyrði að það sem ég hef hér sagt hér að ofan og annarsstaðr hér á ykkar bloggi þyldi alla skoðun á opinberum vettvangi svo sem grein í opinberu dagblaði eða í þingræðu.

Það ætti hinns vegar ekki um margt af því ljóta og meiðandi orðskrúði sem þessir tveir fyrrnefndu ESB sinnar hafa hér ítrekað viðhaft um marga af okkur andstæðingum ESB aðildar.

Þið verðið að gæta fyllsta jafnræðis ef þið ætlið að fara að draga einhverja svona línu sem mér finnst reyndar sjálfsagt.  

Gunnlaugur I., 16.6.2010 kl. 09:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband