24.11.2010 | 21:43
Tónninn úr Hádegismóum
Tónninn frá Hádegismóum vegna ESB verður harðari og harðari, á sam tíma sem fréttir berast af því að eigendur blaðsins dæli inn peningum í reksturinn. Hér er eitt lítið dæmi:
,,Öfugt við íslenska lygalaupinn sem segir þvert gegn því sem fyrir liggur að engar aðlögunarviðræður eigi sér nú stað eru hinir evrópsku talsmenn evrópska stórríkisins opinskáir og hreinskilnir. Þeir fara ekki í launkofa með hvað fyrir þeim vakir og hvað það er sem þeir telja heiminum og Evrópu fyrir bestu. Væru þeir spurðir »hvað væri í pakkanum« utan um Evrópu framtíðarinnar myndu þeir svara hreinskilnislega: »Öflugt evrópskt stórveldi stýrt frá Brussel án truflandi áhrifa smáríkja á jaðri þess.«
Í leiðaranum var annars fjallað um Evruna. Það sem vekur hinsvegar athygli er orðfæri ritstjórans, þar sem hann kalla Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra Íslands, "lygalaup."
Það mætti halda að það sé "sturlungi" sem sitji í ritstjórastólnum, það er reitt hátt til höggs og hér skortir alla fínstillingu.
Kannski er ritstjórinn verulega gramur yfir því sem gerðist hjá VG um helgina, þegar talsmenn þess að hætta aðildarviðræðum við ESB urðu að játa sig sigraða?
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Guðbjörg Matthíasdóttir keypti 31% hlut í Árvakri fyrir 200 milljónir króna
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:09
21.10.2010:
Árvakur rekinn með 667 milljóna króna tapi árið 2009
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:14
Skuldir Árvakurs hf., útgáfufélags Moggans, 4,4 milljarðar króna:
Skýrsla Árvakurs um skuldir fyrirtækisins og fjölmiðlamarkaðinn
Steini Briem, 22.1.2009
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:17
Lánasamsetning Árvakurs hf.:
Glitnir: Lán vegna prentsmiðju 2,76 milljarðar króna, veðlán.
Glitnir: Önnur veðlán 444 milljónir króna.
Glitnir: Fjárfestinga- og rekstrarlán 332 milljónir króna, óveðtryggt með ábyrgð eignarhaldsfélaga hluthafa.
Landsbankinn: Fjárfestinga- og rekstrarlán 897 milljónir króna, óveðtryggt með ábyrgð eignarhaldsfélaga hluthafa.
Samtals 4,433 milljarðar króna.
Steini Briem, 22.1.2009
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:18
Þórsmörk ehf. - Litla Ísland.net
25.2.2009: "Þórsmörk ehf., félag í eigu Óskars Magnússonar og fleiri, hefur gengið frá samkomulagi við Íslandsbanka [áður Glitni] um kaup á útgáfufélagi Morgunblaðsins.
Auk Óskars eru Gísli Baldur Garðarsson, Gunnar B. Dungal, Pétur H. Pálsson, Þorgeir Baldursson, Þorsteinn Már Baldvinsson og Guðbjörg Matthíasdóttir hluthafar í Þórsmörk."
Þorsteinn Már Baldvinsson á sjávarútvegsfyrirtækið Samherja á Akureyri og var síðasti stjórnarformaður Glitnis, sem varð gjaldþrota.
Skattakóngur Íslands
"Þorsteinn Már var nokkuð áberandi í upphafi bankahrunsins haustið 2008 þegar Seðlabankinn yfirtók Glitni en Þorsteinn Már var mjög ósáttur við þá atburðarás og sagði meðal annars í viðtölum að það hefðu verið stærstu mistök lífs síns að leita til Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra.
Sagt er að Þorsteinn Már hefði verið því mjög mótfallinn þegar Davíð var ráðinn ritstjóri Morgunblaðsins árið 2009 en Þorsteinn Már er einn af eigendum blaðsins."
Guðbjörg Matthíasdóttir á sjávarútvegsfyrirtækið Ísfélag Vestmannaeyja og er nú einn af eigendum Moggans, sem einnig varð gjaldþrota.
Heppnasta kona hrunsins
Steini Briem, 21.7.2010
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:19
11.11.2010:
Lestur Morgunblaðsins aldrei mælst minni
Þorsteinn Briem, 24.11.2010 kl. 22:23
Morgunblaðið hefur trúlega aldrei verið meira blað allra landsmanna en nú um stundir.70% þjóðarinnar styður stefnu Morgunblaðsins í ESB málinu.Morgunblaðið er að ná sínum fyrri áttum í að vera málsvari frelsis einstaklingsins og frelsis þjóðar og lands.Lifi Morgunblaðið.Líf Morgunblaðsins er líf íslands.Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 24.11.2010 kl. 22:32
Einungis 5,5% landsmanna lesa eingöngu Morgunblaðið.
Þorsteinn Briem, 25.11.2010 kl. 14:48
Morgunblaðið er eini fjölmiðillinn sem berst fyrir fullu sjálfstæði og fullveldi þjóðarinnar og gegn ESB helsinu.
Aðrir fjölmiðlar og þar með Ríkisfjölmiðlarnir sérstaklega eru uppfullir af ESB áróðri og lygum og blekkingum um listisemdir þessa yfirráða bandalags.
Alveg sama hverjir eru ritstjórar eða eigendur blaðsins.
Þá segi ég bara með miklum feiginleik að það er gott að við sem teljumst til 70% þjóðarinnar og erum andsnúnir ESB aðild þurfum nú einmitt mikið á því að halda að til sé einn góður fjölmiðill eins og Morgunblaðið sem við getum treyst að sé ekki á mála fyrir ESB Elítuna, heldur stendur með sinni eigin þjóð.
Lengi lifi Morgunblaðið og barátta þess fyrir áframhaldandi fullu frelsi, sjálfstæði og fullveldi íslensku þjóðarinnar, gegn þessu yfirgengilega ESB helsi.
Gunnlaugur I., 25.11.2010 kl. 15:05
Sigurgeir og Gunnlaugur LOL :D
Sleggjan og Hvellurinn, 26.11.2010 kl. 00:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.