8.1.2011 | 11:47
Á hvaða plánetu er Ásmundur Einar?
Í þættinum Vikulokin á Rás1 í dag var ESB-málið mikið til umræðu. Í þættinum voru foringi Nei-sinna, Ásmundur Einar Daðason (einnig þingmaður), Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingkona og Guðmundur Steingrímsson, þingmaður.
Gjaldmiðilsmálin voru rædd, en það sem vakti athygli ritara var umræða Ásmundar um þessi mál. Hann sagði s.s. fullum fetum í þættinum að Ísland gæti alveg tekið upp aðrar myntir og nefndi þar DOLLAR, Sænska krónu og NORSKA krónu! Einnig að við gætum tekið upp evruna EINHLIÐA.
Veit Ásmundur Einar ekki að Norðmenn hafa ALGJÖRLEGA ÚTILOKAÐ upptöku norskrar krónu hér á landi! Hvar hefur Ásmundur verið? Á MARS eða?
Bendum Ásmundi á þessa frétt Morgunblaðsins, en í henni segir m.a.:
"Jonas Gahr Störe utanríkisráðherra Noregs segir að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir því að taka upp norska krónu og hann fái því ekki séð að mikil alvara liggi að baki slíkum hugmyndum. Íslendingar hafi ekki mikil viðskipti við Noreg og það geti auðvitað dregið úr áhuganum. Norðmenn hafi ekki eytt miklum tíma í að hugleiða þetta og sjálfur treysti hann sér ekki til að taka afstöðu til þess að óyfirveguðu máli." (Leturbreyting, ES-blogg)
Þetta er svo ruglingslegur málflutningur hjá Ásmundi Einari að það vart hlustandi á þetta!
Er hann kannski á leiðinni til Stokkhólms eða Washington í gjaldmiðlaviðræður? Hverskonar stefna er þetta eiginlega?
Hafa Nei-sinnar ekkert bitastæðara fram að færa? Svarið er NEI!
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Allt of oft eru andstæðingar að segja að við getum gert þetta sjálf og einhvern veginn.
En lausnir hafa þau ekki, nefna aðeins óraunhæfa "valkosti".
Þau dæma sig öll sjálf úr leik.
Stefán Júlíusson (IP-tala skráð) 8.1.2011 kl. 11:49
Þegar umræðan um EES samninginn stóð sem hæst, voru mörg fáránleg orð látin falla. Ég var á þeim tíma á móti því að taka þennan samning upp hér og vað það á forsendu kenninga frá andstæðingunum. Þegar á reyndi og jákvæð áhrif samningsins fóru að koma í ljós, snérist mér hugur og hef verið ESB sinni síðan. Það er raunar með ólikindum að einhverjir skuli enn hlusta á þau bullrök sem fram eru færð gegn ESB.
Hólmfríður Bjarnadóttir, 8.1.2011 kl. 14:08
ÉG vek athygli á grundvallaratriði í orðum Jónasar ,,að íslensk stjórnvöld hafi ekki óskað eftir því að taka upp norska krónu". Væri ekki rétt að stjórnvöld gerðu það með formlegum hætti til að hægt sé að fara ræða málin á vitrænan hátt? Það held ég. Og í öðru lagi hafa stjórnvöld látið meta það, t.d. í Seðlabanka Íslands, hvort það þjóni hagsmunum Íslands að óska eftir tengingu við norska krónu?
Már Guðmundsson, seðlabankastjór, sagði á ráðstefnu í Sviss í desember á síðasta ári að þó að það væru vissulega ákveðnir kostir við upptöku evru þá vekti það einnig upp áleitnar spurningar, eða óvissuþætti. Það er ekkert svart og hvítt í þessu eins og öðru. Við eigum að ræða þessi mál út frá staðreyndum og vissu, en ekki trú og væntingum.
Jón Baldur Lorange, 8.1.2011 kl. 14:33
Orð eru til alls fyrst. Dæmi þau sig sjálf úr leik,skaðast enginn.
Helga Kristjánsdóttir, 8.1.2011 kl. 15:30
Ég sé engin rök fyrir ykkar eigin málflutningi ,nafnlausu félagar.
Það er ekki eins og þetta sé fjölmiðill og hægt sé að kalla þetta bull ritstjórnarskrif.
Engin efnisleg umfjöllun um gjaldmiðilsmál enda ráðið þið ekki við þá umræðu, bara vaðið beint í Ásmund eins og þið hafið verið að gera að undaförnu.
Aldrei þó efnislega, yfirleitt vaðið beint í manninn.
Fremur brjóstumkennanlegt.
Gunnar Waage, 8.1.2011 kl. 16:27
Hann er á fínu plani. Miklu betra en ykkar.
Og hættið að tala um "nei-sinna". Þið eruð sjálfir nei-sinnar gagnvart sjálfstæði Íslands, og það er hið versta mál
Jón Valur Jensson, 8.1.2011 kl. 16:39
Til Nei-sinna hér: Norsk króna er ekki raunhæfur möguleiki og í besta falli barnaleg óskhyggja. Árið 2008 var aðeins 3% af útflutningi okkar til Noregs. Sama tala og til Japans. Er þá ekki bara hægt að taka upp Yen? Álíka gáfulegt! Heimild
JVJ:Þið eruð og verðið NEI-sinnar!
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 8.1.2011 kl. 19:06
sænska krónan er tengd evru.. eins og sú danska.. eru í raun evrur
Óskar Þorkelsson, 8.1.2011 kl. 21:23
Þið og ykakr hreinræktaða ESB stefna og ekkert annað plús upptaka evru. Allir sem nefna eða ræða aðrar leiðir eru að ykkar áliti bara barnalegir.
Þið sjálfir eruð brjóstumkennanlegir með ykkar einsleitu ESB trúarbrögð.
vitiði ekki að Evran stendur frammi fyrir stórkostlegum erfiðleikum og að mjög margir málsmetandi hagfræðingar og meira að segja nóbelsverlaunahafar í hagfræði segja hanavalda spennu og ójafnvægi á evrusvæðinu og standa svo höllum fæti og meira að standa í vegi fyrir bata og efnahagslegri uppbyggingu sumra aðildarrikjanna og að mjög vafasamt sé að hún muni lifa af næstu árin, sökum eigin innbyggðra hagfræðilegra vankanta
Svo viljið þið bara og í einfeldni og einstefnu ykkar ekkerta annað en vonlausa ESB elítuna og upptöku Evru.
Rétttrúnaður ykkar er svo yfirþyrmandi að ekkert annað má hvorki ræða eða skoða !
Þið eruð miklir þröngsýnis- og einstefnu menn þið ESB sinnar, sem betur fer er fylgið við ykkur og skoðanir ykkar meðal þjóðarinnar sáralítið og hefur sífellt farið minnkandi !
Gunnlaugur I., 8.1.2011 kl. 21:57
Nei Óskar þetta er ekki alls kostar rétt hjá þér sveiflur sænsku krónunnar hafa verið með allt öðrum hætti en Evru gjaldmiðilsins undanfarið.
Þó svo að stjórnvöld þar taki eitthvert tillit til Evrunnar.
Sænska krónan hefur einmitt undanfarin 2 ár fallið allt að 15% stigum meira en Evran til þess að vernda Sænskt atvinnulíf og útflutningsstarfssemi. Enda vill nú stærsti hluti Svíja ekkert hafa með Evru samstarf að gera. Þeir vilja ekki sitja uppi með Svarta Pétur.
Finnar aftur á móti sitja hinns vegar uppi með Evruna óumbreytanlegu og "fullkomnu" og geta sig hvergi hrært enda atvinnuleysið eftir því og stór hluti Finnska trjáiðnaðarins flutt sig yfir til Svíþjóðar með sveignalegan og sjálfstæðan gjaldmiðil en ekki helfrosna Evru !
Evran er ekkert galdrameðal og hefur sýnt sig í að geta kæft heilu hagkerfin án þess að nokkur fái rönd við reist.
Evran eða þessi skaðræðisklúbbur myntbandalagsins er því ekki eitthvað sem Ísland ætti að sækjast eftir, nema að mjög vel athuguðu máli og alls ekki fyrr en sést hvort þessi gjaldmiðill muni yfirleitt lifa af hremmingarnar !
Gunnlaugur I., 8.1.2011 kl. 23:27
Hafið þið ekki frétt af því, að lífslíkur evrunnar eru með bágasta móti nú um stundir? Norska krónan flýtur þó áfram. Annars legg ég EKKI til, að við skiptum um mynt. Krónan er fín. En hún er kannski ekki gerð til þess að gera Ísland að vettvangi alþjóðafjármálastarfsemi. Eigum við ekki bara að segja: sem betur fer? Það er engin ástæða til að gera stórvarasama atvinnugrein að áhættuvaldi í litlu landi.
Svo er dollarinn með yfirburði yfir hálfsjúka evruna, 75% heimsviðskipta fara fram í dollurum, m.a. á álframleiðslu.
Evrópusamtök, þið eruð og verðið nei-sinnar gagnvart íslenzku löggjafarvaldi á íslenzku landi.
Jón Valur Jensson, 8.1.2011 kl. 23:51
Evrópusamtök, það eruð þið sem eruð NEI-SINNAR, ekki við, þið viljið ekki fullveldi og sjálfstæði. Og skil ekki hvaða bullrök Hólmfríður vísar í. Persónulega hef ég hlustað á báðar hliðar nógu lengi og rökin gegn yfirtöku Evrópuveldisins eru óendanleg og vinna ykkar rök.
Elle_, 9.1.2011 kl. 21:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.