Leita í fréttum mbl.is

Fyrirlestur á vegum Já Ísland um fjármálahræringar

Já-ÍslandGylfi Zoëga, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands ræðir áhrif fjármálaóstöðugleikans í Evrópu á hagsmuni Íslands og áhrif á aðildaviðræður við ESB.

Jóna Sólveig Elínardóttir, alþjóðastjórnmálafræðingur
​ ræðir áhrif á stjórnmálasamstarf ríkjanna innan ESB í tengslum við breyttar aðstæður.

Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 18. ágúst í fundasal Já Íslands í Skipholti 50a, 2 hæð og hefst kl 20. Góður tími verður fyrir fyrirspurnir og almenna umræðu fundamanna.

Allir eru velkomnir á fundinn!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Briem

Frá áramótum hefur gengi evru gagnvart Bandaríkjadollar HÆKKAÐ um 7,07%, Kanadadollar um 6,62%, íslensku krónunni um 6,85%, breska sterlingspundinu um 2,22%, japanska jeninu um 0,96%, sænsku krónunni um 3,45% og norsku krónunni um 1,06%.

Og frá því evruseðlar voru settir í umferð í ársbyrjun 2002 hefur gengi evru gagnvart Bandaríkjadal HÆKKAÐ um 57,91%.

Þorsteinn Briem, 14.8.2011 kl. 13:10

2 Smámynd: Þorsteinn Briem

Sjálfstæðisflokkurinn VILL ÁFRAM íslenska krónu og VERÐTRYGGINGU:

"Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að hann hafi lengi verið þeirrar skoðunar að erfitt sé að vera með lítinn gjaldmiðil líkt og krónuna en hann er enn þeirrar skoðunar að Íslandi sé betur borgið utan Evrópusambandsins."

Þorsteinn Briem, 14.8.2011 kl. 13:23

3 Smámynd: Þorsteinn Briem

VERÐTRYGGT 20 milljóna króna jafngreiðslulán tekið hjá Íbúðalánasjóði til 20 ára með 5% vöxtum, miðað við 5% verðbólgu á lánstímanum og mánaðarlegum afborgunum:

ÚTBORGUÐ FJÁRHÆÐ:

Lánsupphæð 20 milljónir króna.

Lántökugjald 200 þúsund krónur.

Útborgað hjá Íbúðalánasjóði 19,8 milljónir króna.

Opinber gjöld 301 þúsund krónur.

Útborguð fjárhæð 19,5 milljónir króna.

HEILDARENDURGREIÐSLA:

Afborgun 20 milljónir króna.

Vextir 11,7 milljónir króna.

VERÐBÆTUR 22,1 MILLJÓN KRÓNA.

Greiðslugjald 18 þúsund krónur.

SAMTALS GREITT 53,8 MILLJÓNIR KRÓNA.

Meðalgreiðslubyrði á mánuði allan lánstímann 224 þúsund krónur.

Eftirstöðvar byrja að lækka eftir 72. greiðslu, eða sex ár.

Þorsteinn Briem, 14.8.2011 kl. 13:28

4 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Guðmundur Ásgeirsson, 14.8.2011 kl. 17:39

5 Smámynd: Þorsteinn Briem

Guðmundur Ásgeirsson,

Hvorki Sjálfstæðisflokkurinn né Framsóknarflokkurinn hafa lagt til að gjaldmiðill okkar verði áfram íslensk króna en án verðtryggingar.

Hvað þá að Kanadadollar eða Bandaríkjadollar verði gjaldmiðill okkar Íslendinga.

Þorsteinn Briem, 14.8.2011 kl. 22:45

6 Smámynd: Þorsteinn Briem

ÍSLAND OG VERÐTRYGGING.

"Verðtrygging er algengust í löndum sem styðjast við veikan gjaldmiðil og þar sem mikil ÓVISSA er talin um þróun verðlags. Við þau skilyrði er ólíklegt að mikill áhugi sé á að gera langtímasamninga í viðkomandi mynt án verðtryggingar.

Í löndum sem styðjast við sterka gjaldmiðla og hafa langa sögu um nokkuð góðan árangur í baráttu við verðbólgu er hins vegar algengt að gerðir séu langtímasamningar í viðkomandi mynt, jafnvel með föstum vöxtum."

Gylfi Magnússon um verðtryggingu lána

Þorsteinn Briem, 14.8.2011 kl. 22:50

7 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Steini taktu hóflega mark á Gylfa. Verðtrygging húsnæðislána er aðeins stunduð á þremur stöðum í heiminum: Íslandi, Ísrael og Chile.

Það varðar mig engu sem þú nefnir um Sjálfstæðisflokkinn eða Framsókn varðandi gjaldmiðilsmál. Mín tillaga er sú að Ísland haldi fullveldi sínu í gjaldmiðilsmálum. Settar verði heilstæðar leikreglur um útgáfu ríkisgjaldmiðils og samkvæmt þeim sjái ríkið sjálft um útgáfu hans. Með öðrum orðum að einokun bankakerfisins á útgáfu allt að 98% peningamagns í umferð verði afnumin, ferlið allt verði fullkomlega gegnsætt og skuldsetning ríkissjóðs gerð óþörf.

Ríki með slíka stöðu væri öfundsvert.

Guðmundur Ásgeirsson, 15.8.2011 kl. 02:14

8 Smámynd: Þorsteinn Briem

Guðmundur Ásgeirsson,

Ég hef ekkert sagt hér um Gylfa Zoëga eða vísað í eitthvað sem hann hefur sagt eða skrifað.

Og ef þú telur að þjóðin vilji þínar tillögur getur þú að sjálfsögðu boðið þær fram í næstu þingkosningum.

Þorsteinn Briem, 15.8.2011 kl. 03:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband