23.11.2011 | 18:17
ESB: Hvalveiðar ekki vandamál við opnun umhverfiskaflans - sérlausn nú þegar í landbúnaði!
ESB setur ekki fram kröfu um að Íslendingar breyti fyrirkomulagi á hvalveiðum, þegar kaflinn um umhverfismál verður opnaður í aðildarviðræðum Íslands og ESB. Þetta kom fram á opnum fundi með Össuri Skarphéðinssyni á Alþingi í dag og RÚV sagði frá í kvöldfréttum.
Einnig var rætt ítarlega við Össur í síðdegisútvarpi Rásar 2 og þar sagði Össur að ESB byði Íslendingum nú þegar sérlausn á sviði landbúnaðarmála, þar eð landið þurfi ekki að vera búið að gera breytingar landbúnaðarkerfi landsins þegar aðildarviðræðum lyki.
Fram hefur komið í fjölmiðlum í dag að stefnt er á að opna alla kafla aðildarviðræðna á næsta ári, en þá verða m.a. Danir í formennsku ESB.
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Ertu með þessu að reyna að segja að áframhaldandi hvalveiðar verði ekki vandamál í aðlögunarferlinu?
Svo er náttúrlega alveg geggjaður díll að það þurfa ekki að vera búinn að breyta kerfinu ÁÐUR en kíkt verður í pakkann.
Haraldur Rafn Ingvason, 23.11.2011 kl. 18:56
Þið eruð ótrúlegir í blekkingariðjunni eða hafið hreinlega misskilið viðtalið við Össur í gær. Ég náði því þó, og þar kom fram, að þeir hafa einungis samþykkt (eflaust Esb. vegna, til að stuða okkur sem minnst, til að fæla okkur síður frá) að gera það ekki að kröfu sinni, að við verðum að banna hvalveiðar, áður en þjóðaratkvæðagreiðsla verður haldin, en ... undirskilið er einmitt þetta: að eftir að hún er afstaðin og ef þeir fengju "aðild" okkar, þá félli þessi fallexi þeirra á hvalveiðigreinina hér á landi. Auðvitað reyna þeir -- og þið -- að láta sem minnst á því bera fyrir fram!!!
Svo stóðu fréttamennirnir (Hallgr. Th. og hinn) sig afar illa í spurningum eða öllu heldur ekkispurningum til Össurar í þessum þætti á síðdegisútvarpinu, og það sama átti við um viðtal þeirra við Vilhjálm Egilsson. Alveg saga til næsta bæjar hvað þeir Ö+V sluppu þar létt með arfalélegan málstað sinn.
Jón Valur Jensson, 24.11.2011 kl. 23:18
Jón Valur Jensson.
Hversu margir Íslendingar lifa á selveiðum og hákarlaveiðum?!
Sjómenn veiða bæði sel og hákarl án þess að ætla sér það sérstaklega og enginn kemur í veg fyrir að það kjöt sé nýtt.
Súrsaðir selshreifar geta því staðið út úr eyrunum á þér nótt sem nýtan dag, enda þótt Ísland verði í Evrópusambandinu.
Hrefnuveiðar hér skapa ENGAR sérstakar tekjur, því hrefnukjötið kemur Í STAÐ kjöts frá íslenskum bændum, sem missa þannig spón úr aski sínum til hrefnuveiðimanna.
Þar að auki eru hvalveiðar hér einungis SUMARVINNA. Íslenskir bændur vinna hins vegar allt árið.
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 02:07
Hundrað og fimmtíu hrefnur eru einungis um 0,3% af hrefnustofninum hér og 150 langreyðar um 0,7% af langreyðarstofninum. Þar að auki er langreyðurin einungis hluta af árinu hér við land og hér voru veiddar einungis 69 hrefnur og 125 langreyðar sumarið 2009.
Langreyðurin heldur sig á djúpslóð og er fardýr, líkt og flestir aðrir hvalir hér við land, og um þessi fardýr gilda alþjóðlegir samningar.
Af fæðu hrefnunnar er ljósáta 35%, loðna 23%, síli 33% og þorskfiskar 6%. Og langreyðar éta svifkrabbadýr (ljósátu), loðnu og sílategundir, samkvæmt rannsóknum Hafrannsóknastofnunar.
Norðmenn hafa einnig étið hrefnukjöt en þeir hafa sjálfir veitt töluvert af hrefnu, þannig að ekki seljum við hrefnukjötið til Noregs.
Og við gætum eingöngu selt langreyðarkjöt til Japans en Japanir veiða sjálfir stórhveli og verð á hvalkjöti þar myndi væntanlega lækka með auknum innflutningi.
Japanskir hvalveiðimenn yrðu nú ekki hrifnir af slíku og Japanir ráða því sjálfir hvort þeir leyfa innflutning á langreyðarkjöti hverju sinni.
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 02:08
16.11.2011:
"Talningar á fjölda landsela við Íslandsstrendur fóru fram í júlí til september síðastliðins á vegum Selaseturs Íslands."
"Að meðaltali sáust um 4.512 landselir en sú tala er mitt á milli talningarniðurstöðu áranna 2003 og 2006.
Þrátt fyrir síminnkandi veiðar landsela benda þessar niðurstöður til að landselsstofninn hafi ekki rétt úr kútnum síðan árið 2003.
Skýringar á því geta verið margvíslegar, meðal annars er líklegt að slysaveiðar á sel í fiskinet hafi neikvæð áhrif á landselsstofninn."
Selasetur Íslands
Þorsteinn Briem, 25.11.2011 kl. 02:10
Steini Briem dirfist ekki að mæla gegn þeirri frekju síns heittelskaða Evrópusambands að stjórna fiskimiðum okkar, hann tekur það þvert á móti sem sitt hlutverk að reyna að undirbúa Íslendinga, gera þá óvissa um nytsemi veiðanna, þæfa málið o.s.frv., þótt selveiðar hafi t.d. frá alda öðli verið meðal réttmætra hlunninda jarða og stuðlað að því að halda niðri hringormi í fiski og þó að hvalveiðar hafi sannarlega verið arðbærar á Íslandi á 20. öld. Bæta má við hákarlinum: á honum bannar Evrópusambandið líka atvinnuveiðar, eins og á sel og hval, og allt hefur samt þetta sína þýðingu í flóru íslenzkra atvinnuvega og fyrir byggðir landsins.
En Steini sýnir hér sitt frumkvæði: vel vaninn er hann til undirgefni við stórveldið, sem hann ætlar að lúta í miklu fleira en þessu á komandi árum.
Jón Valur Jensson, 25.11.2011 kl. 09:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.