20.5.2012 | 21:51
Sveitin komin út - landbúnaður/byggðamál mál málanna
Samtökin Já Ísland, sem berjast fyrir aðild Íslands að Evrópusambandinu, hafa gefið út nýtt blað, SVEITIN, en í því er fjallað um landbúnað og byggðamál. Í tilkynningu segir:
"Nýtt blað hefur litið dagsins ljós, blaðið ber nafnið Sveitin og fjallar um landbúnað og byggðarmál í tengslum við mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu. Blaðinu er dreift á öll lögbýli á landinu en má lesa í heild sinni á pdf skjali með því að smella hér. Greinar og viðtöl munu einnig birtast hér á vef Já Íslands á næstu dögum. Blaðinu er ritstýrt af Pétri Gunnarssyni, blaðamanni.
Í tengslum við umræðuna um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu skiptir máli að reynt sé að meta kosti og galla aðildar og að umræðan sé byggð á staðreyndum og mati þeirra sem gerst þekkja en ekki bábiljum og samsæriskenningum. Aðstandendum þessa blaðs hefur fundist að ekkert skorti á að rætt sé um þau vandamál og þær ógnir sem bíða landbúnaðarins innan Evrópusambandsins, bæði raunverulegar en ekki síður ímyndaðar."
Í frétt á Eyjunni sem snýr að efni blaðsins segir:
"Þau opnunarviðmið sem Evrópusambandið hefur látið Íslendingum í té vegna landbúnaðarmála kveða á um að taka eigi sérstakt tillit til aðstæðna í íslenskum landbúnaði í aðildarviðræðum Íslendinga við ESB, segir Stefán Haukur Jóhannesson, formaður samninganefndar Íslands.
Rætt er við Stefán Hauk í Sveitinni sem er rit um landbúnað og ESB og er gefið út af Já Ísland.
Stefán Haukur segir að í fyrri viðræðum hafi ESB sýnt að sambandið sé tilbúið til að útvíkka sínar reglur og semja um sérlausnir.
Finnar og Svíar eru gott dæmi en þetta á við um aðra, til dæmis Breta og Íra. Þegar Bretar og Írar gengu inn voru reglur sambandsins útvíkkaðar til þess að taka tillit til sérstakra aðstæðna. Sérstök svæði voru skilgreind sem harðbýl svæði og sérstakar reglur búnar til aum þau. Sama á við um Svía og ekki síst Finna."
Hér er SVEITIN
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
ESB er svð blint að það heldur að íslenskir bændur átti sig ekki á því hver það er, sem stendur að baki áróðursritinu.ESB er svo blint, að það heldur að það geti logið því að íslenskum bændum að þeir komi til með að ráða einhverju um lög og reglur ESB í framtíðinni.Gylliboð ESB til íslenskra bænda eru áróður sem runnin eru undan gömlum nýlenduveldum Evrópu sem ekki sætta sig við að geta ekki ráðið yfir smáþjóðinni sem býr á íslandi.Því miður geta íslenskir bændur ekki einu sinni nýtt þennan ESB- áróðursnebil til að skeina sig á honum, því ekki hefur vantað peninga til að kaupa dýrasta pappír sem hægt er að fá og líka hefur verið hugsað um að pappírinn í þessum snepli væri þeirrar gerðar að bændur gætu ekki notað hann sem skeinipappír.Nei við áróðurssnepli ESB.
Sigurgeir Jónsson, 20.5.2012 kl. 22:45
Enterlaust!
Þorsteinn Briem, 20.5.2012 kl. 23:14
Það er ekki að spyrja að forsjár-lausu feigðarflani og ofurkappi ESB-já-sveitarinnar. Einhverjir hefðu nú kallað þessa ESB-þráhyggju já sinna heimóttarskap, eða jafnvel reynsluleysi og raunveruleka-firringu fégráðugra framapotara. Það er mikið á sig lagt fyrir falskan málstað. Og ekki vantar þá ESB-greiðslurnar upp í kosnaðinn, sem er rænt frá fátækum ESB-ríkjum í suður-Evrópu!
Gangi ykkur vel með nýja bændablað ESB-Brussel-aðlagaða.
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.5.2012 kl. 00:14
Mér sýnist Sveitin vera mjög gott og fróðlegt blað.
En það er ekki fyrir íslenska fasista og kommúnista.
Þorsteinn Briem, 21.5.2012 kl. 00:52
Og hverjir eru nú fasistarnir og kommúnistarnir að þínu mati Steini minn?
M.b.kv.
Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 21.5.2012 kl. 01:21
Þýska bændablaðið er komið út í sitt fertugasta og sjöunda sinn. Að þessu sinni er það Íslenskur landbúnaður sem er til umfjöllunar undir styrkri handleiðslu Íslenskra Evrópusambandssinna. Ekki á þýsku, heldur Íslensku, enda þarlendir frekar fúlir að hafa undirritað samnIng um að eitt af hverjum tólf tölublöðum sé gefið út í öðrum löndum, enda "ANDINN SLÍKUR Í ÖLLU EVRULANDI" svo hrikalega svakalega "Sjúkketí bú bedí" fyrir alla kerfismöndlana,( Lesist kerfismöppudýr9. Ekki einu sinni hægt að stafsetja sauðburð rétt, í þessu, höfuðriti evrópskrar hreingerningarstefnu. Bannað að gefa meira en 13 % afslátt í undirgangareglugerðarverkissamhæfingarverðskrártilætluninni OG SO VIDERE............ ER NEMA VON ADÐ HÚN HRÖNN Á SELFOSSI SPYRJI AFGREIÐSLUDÖMUNA Á KASSANUM í bónus , HVORT VANTI APPELSÍNUR EÐA EPPLI Í ÍSSKÁPINN. Hvort henni detti einhverjar sósur, eða annar svona utan (jöst ðe júsúal dei menú) bara vera fínt!
STEINI BRIEM.......?
Halldór Egill Guðnason, 21.5.2012 kl. 04:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.