21.6.2012 | 17:07
Meira IPA....frá AK-72
Það var yfirlit yfir IPA-styrkina umdeildu í Fréttablaði dagsins.
Sem ESB-andstæðingar lögðust gegn af miklum þunga og töluðu um að væru mútur frá ESB.
Gengu meira að segja sumir svo langt að tala um að með viðtöku styrkjanna væri verið að fremja landráð.
Með því að þiggja styrki sem færu í kortagerð, endurbóta á útreikningum Hagstofunnar, tækjakaupum til matvælarannsókna, starfshæfniseflingar fólks með litla menntun o.fl. í þeim dúr.
Semsagt mestallt ósköp venjuleg verkefni sem yfirleitt hefði þurft að sækja um styrki fyrir og berjast fyrir að fá fjármagn í innan kerfis.
Og maður veltir fyrir sér ósjálfrátt hvað ætli þessu fólki sem froðufellir svona yfir þessum styrkjum sem eru veittir án skilyrða um aðild, finnist um allar þær umsóknir Íslendinga í rannsóknasjóði, kvikmyndasjóði, nýsköpunarsjóði og allt það, sem eru sendar á ári hverju.
Ætli þeim finnist það vera landráð?
Eða finnst þeim það allt í lagi?
Það er spurning."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Ef Íslendingar yrðu svo ólánsamir að láta narra sig inn í Evrópusambandið með aðstoð þeirra sem eru á vinstri Euro spenanum hérna heima myndu þeir borga með gríðarlegum verðmætum í formi náttúruauðæfa með sér inn í sambandið það yrði lottovinningur nýlenduvelda Evrópu. Skoðum bara vatnið skortur verður víða á vatni til manneldis í framtíðinni og það má líka klúfja og framleiða vetni til útflutnings. Evrópusambandið stefnir í átt að SovétEvrópu ef Íslendingar verða ekki á verði og undir verndarvæng Bandaríkjanna verður landið hirt af okkur í framtíðinni ekki með hernaðaraðgerðum þó það gæti verið, heldur efnhagslegri yfirtöku.Kína er nú þegar að tilla niður fæti hér.
Evrópuríki hafa alltaf sínt okkur átroðning með togara hér upp í landsteinum áratugum saman. Þurftum að heyja við þá þorskastríð til að koma þeim út úr landhelgini og hefðu Bandaríkin ekki verið bandamaður okkar þar hefðu þeir sagt okkur að halda kjafti og haldið áfram.Bólan sem hér var mynduð og endaði með hruni var ekkert annað en efnahagsárás Evrópusambandsins ætluð til að knýja okkur inn í Evrópusamrunan. Og hér eru nokkrir skammsýnir vitleisingar sem eru á Euro spenanum og vilja ganga þar inn rétt einsog á árum áður voru hér á landi menn sem þáðu styrk frá austur þýskalandi og Kreml og gengu þeirra erinda en nú kemur hann frá Brussel
Örn Ægir Reynisson, 21.6.2012 kl. 18:18
Og styrkurinn er eimitt notaður til að kortlegga tilvonandi hrepp í stórevrópu ef allt gengur eftir hjá þeim í Austur Berlín
Örn Ægir Reynisson, 21.6.2012 kl. 18:22
Ég spyr Evrópusamtökin um skilgreiningu á styrkjum vegna Umsóknarinnar um inngöngu í ESB. Hvað eru þeir. Þessir IPA styrkir eru aðeins fyrir þær þjóðir sem eru í umsóknarferli. Ég spyr líka Evrópusamtökin. Eru þeir sem fá styrki eða gjafir ekki skuldbundnir þeim sem gefur. Nú á ég ekki endilega við ESB.
Valdimar Samúelsson, 21.6.2012 kl. 19:39
Nefndarálit meirihluta utanríkismálanefndar Alþingis um aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu:
"Meiri hlutinn telur rétt að benda á að Ísland greiðir árlega háar fjárhæðir til stofnana EES-samningsins og í þróunarsjóð EFTA-ríkjanna."
"Beinn kostnaður árið 2007 var áætlaður rúmlega 1,3 milljarðar króna. Vegna gengisbreytinga telur meiri hlutinn raunhæft að tvöfalda þá upphæð og því megi segja að rúmlega 2,5 milljarða króna útgjöld falli niður á ári verði af aðild Íslands að Evrópusambandinu."
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 19:39
Það eru sem sagt "LANDRÁÐ" í viðkomandi Evrópuríkjum að þiggja ÁRLEGA 2,5 milljarða króna frá íslenskum skattgreiðendum!!!
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 19:46
Bíddu Steini. Við vorum ekki að tala um Landráð. Ég var að spyrja um IPA styrkina en þeir koma ekki neinu við í sambandi við EES. Það erum við sem færum þeim þessa milljarða vegna EES. Hefðum við ekki geta notað þá í að styrkja aðrar framkvæmdir.? Svo máttu svara þessu sem ég spurði vegna IPA styrkjanna.
Valdimar Samúelsson, 21.6.2012 kl. 20:03
"Á undanförnum 15 árum hafa nærri 14 þúsund Íslendingar farið utan í starfsþjálfun og nám á vegum Menntaáætlunar Evrópusambandsins.
Og mun fleiri hafa tekið þátt í margvíslegum verkefnum.
Samtals eru STYRKIR Menntaáætlunar Evrópusambandsins og forvera hennar um FIMM MILLJARÐAR KRÓNA á þessu tímabili."
Afmælishátíð Menntaáætlunar Evrópusambandsins 2010
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 20:10
Það eru sem sagt "LANDRÁÐ" hjá þúsundum Íslendinga að þiggja alla þessa styrki frá Evrópusambandinu!!!
Og hverjir ætli hafi nú staðið fyrir öllum þessum "LANDRÁÐUM"?!
Ætli það hafi ekki verið Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætisráðherra, og Björn Bjarnason, fyrrverandi dóms- og menntamálaráðherra, sem þegið hefur styrki frá íslenska ríkinu til að skrifa um Evrópusambandið!!!
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 20:23
Nýja varðskipið Þór kostaði um FIMM MILLJARÐA króna, SÖMU UPPHÆÐ og Íslendingar hafa fengið frá Evrópusambandinu vegna Menntaáætlunar sambandsins frá því Ísland fékk aðild að Evrópska efnahagssvæðinu.
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 20:24
Fyrsta ráðuneyti Davíðs Oddssonar 30. apríl 1991 - 23. apríl 1995
12.1.1993:
Evrópskt efnahagssvæði - Frumvarpið samþykkt: 33 sögðu já en 23 nei og 7 greiddu ekki atkvæði.
Af þeim 33 sem samþykktu frumvarpið um Evrópska efnahagssvæðið voru 23 sjálfstæðismenn, eða 70% þeirra sem samþykktu frumvarpið.
Já sögðu:
Árni R. Árnason, Árni Johnsen, Árni M. Mathiesen, Björn Bjarnason, Davíð Oddsson, Egill Jónsson, Eiður Guðnason, Einar K. Guðfinnsson, Geir H. Haarde, Guðjón Guðmundsson, Guðjón A. Kristjánsson, Guðmundur Hallvarðsson, Guðmundur Árni Stefánsson, Hermann Níelsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Jón Baldvin Hannibalsson, Karl Steinar Guðnason, Lára Margrét Ragnarsdóttir, María E. Ingvadóttir, Pálmi Jónsson, Rannveig Guðmundsdóttir, Salome Þorkelsdóttir, Sigbjörn Gunnarsson, Sighvatur Björgvinsson, Sigríður A. Þórðardóttir, Sólveig Pétursdóttir, Sturla Böðvarsson, Svanhildur Árnadóttir, Tómas Ingi Olrich, Vilhjálmur Egilsson, Þorsteinn Pálsson, Þuríður Pálsdóttir og Össur Skarphéðinsson.
Og Ísland undirritaði samning um aðild að Schengen-samstarfinu, ásamt öðrum Norðurlandaþjóðum, 19. desember 1996, þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra.
Schengen-samstarfið
Annað ráðuneyti Davíðs Oddssonar 23. apríl 1995 - 28. maí 1999
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 20:27
Teljið nú upp fyrir mig þá íslensku stjórnmálaflokka sem vilja segja upp aðild Íslands að Evrópska efnahagssvæðinu!!!
Þorsteinn Briem, 21.6.2012 kl. 20:29
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.