3.9.2012 | 18:07
ANDRÉS PÉTURSSON Í FRBL: AÐ LÆSA DYRUM
Andrés Pétursson, formaður Evróðusamtakanna, skrifaði góða grein í Fréttablaðið, þann 31.ágúst, undir fyrirsögninni AÐ LÆSA DYRUM. Grein Andrésar birtist hér í heild sinni:
AÐ LÆSA DYRUM
Það er sérkennilegt en um leið sorglegt að fylgjast með enn einni tilraun andstæðinga aðildar Íslands að Evrópusambandinu að stoppa ferli viðræðnanna. Þegar Alþingi samþykkti á lýðræðislegan hátt að hefja þessa vegferð þá litu margir á þetta sem einn möguleika af mörgum til að koma okkur út úr þeim vandræðum sem efnahagshrunið haustið 2008 olli okkur. Hvort það tekst á eftir að koma í ljós enda ekki búið að klára þessar viðræður. Síendurteknar fullyrðingar nei-sinna að ekki sé um neitt að semja eiga alls ekki við rök að styðjast enda höfum við Evrópusinnar margoft bent á dæmi um sérlausnir í aðildarsamningum annarra landa.
Hvers vegna má ekki ganga þennan veg til enda og láta síðan þjóðina útkljá málið á lýðræðislegan hátt? Eru andstæðingar aðildar ef til vill hræddir um að eitthvað jákvætt komi út úr ferlinu?
Tímabundnir efnahagsörðugleikar í nokkrum ríkjum Evrópusambandsins eru notaðir sem röksemd fyrir því að draga þurfi umsóknina til baka. Ákveðnir fjölmiðlar reyna markvisst að draga upp dómsdagsmynd af ástandinu í Evrópu og reyna að koma því inn hjá landsmönnum að Evrópusambandið sé að hruni komið. Samt geta þessir sömu aðilar ekki svarað þeirri spurningu af hverju Evrópusambandið semur við Landhelgisgæsluna um eftirlit á Miðjarðarhafi, er á góðri leið með að skipuleggja næstu kynslóð rannsóknar- og menntaáætlana fram til ársins 2020, tekur virkan þátt í aðgerðum gegn gróðurhúsalofttegundum og er á vissan hátt í framvarðasveit þeirra stofnana sem berjast gegn mansali og alþjóðlegri hryðjuverkastarfsemi. Hljómar þetta eins og félagsskapur sem er að fara að leggja upp laupana?
Með þessu er ekki verið að gera lítið úr þeim miklu vandræðum sem nokkur ríki í Evrópu glíma við. En slíkir örðugleikar eru ekki einskorðaðir við ríki Evrópusambandsins. Mörg ríki innan og utan Evrópu eiga við mikla efnahagsörðugleika að etja. Einnig má benda á að ýmis ríki Bandaríkjanna eru á vissan hátt gjaldþrota. Svarið hjá nánast öllum þessum ríkjum er ekki að hlaupa hvert í sína áttina heldur reyna þau að leysa úr sínum vandræðum með samvinnu en ekki sundrung.
Deilum Íslendinga við nokkur nágrannaríki okkar vegna makrílveiða hefur einnig verið beitt sem röksemd í þessari innilokunaráráttu. Vert er þó að benda á að deilan stendur einna mest við Noreg og ekki eru þeir í Evrópusambandinu! Að vísu eru Írar og svo Danir fyrir hönd Færeyinga aðilar að deilunni og þess vegna blandast ESB í málið. Deilan stendur því alls ekki við Evrópusambandið í heild sinni heldur tvö af aðildarlöndum þess.
Samsæriskenningar um að Evrópusambandið sé á einhvern hátt í heilögu stríði við Ísland eiga því ekki nokkra stoð í veruleikanum. Og óháð aðildarviðræðunum þá þyrftum við hvort sem er að útkljá þetta deilumál á ásættanlegan hátt fyrir alla aðila.
Það hentar hins vegar skammtíma þjóðernisöfgapólitíkusum að þyrla upp moldviðri í kringum þetta mál og blása það upp sem allsherjarsamsæri ESB gagnvart Íslandi. Staðreyndin er hins vegar sú að aðildarviðræður Evrópusambandsins við umsóknarríki eru sjaldan línulegt ferli. Nánast alltaf koma upp einhver mál sem hægja á ferlinu og báðir aðilar þurfa að hugsa upp viðeigandi lausnir. Dæmi um slíkar sérlausnir eru til dæmis skilgreiningar á heimskautalandbúnaði" og háfjallalandbúnaði" sem voru útbúnar þegar Finnar, Svíar og Austurríkismenn gengu í ESB árið 1995. Einnig má benda á landamæradeilur Slóvena og Króata sem töfðu aðildarviðræðurnar við Króatíu í næstum því heilt ár.
Í stað þess að reyna að þvælast fyrir aðildarviðræðunum og leggja stein í götu samninganefndar Íslands við nánast hvert einasta skref ættu stjórnmálamenn og flokkar að sameinast um að klára þetta mál með sóma. Allir aðilar eru sammála um að íslenska þjóðin muni eiga síðasta orðið í þessu máli. Af hverju að loka og læsa dyrunum þegar ekki er ljóst hvort þessi leið geti aðstoðað okkur til að komast út úr þeim vandræðum sem hrunið árið 2008 kom okkur í?
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Nei við ESB.
Sigurgeir Jónsson, 4.9.2012 kl. 20:07
Ísland er NÚ ÞEGAR 70% í Evrópusambandinu, án þess að taka nokkurn þátt í að semja lög sambandsins.
Þorsteinn Briem, 5.9.2012 kl. 03:20
Nei við inngöngu Íslands í ESB.
Sigurgeir Jónsson, 5.9.2012 kl. 03:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.