Leita í fréttum mbl.is

Ásgeir Jónsson með fróðlega grein í Vísbendingu: Krónan Akkilesarhæll fullveldis?

Ásgeir JónssonÁsgeir Jónsson, hagfræðingur, skrifaði merka grein í tímarítið Vísbendingu fyrir áramót, m.a. um Jón Sigurðsson, hagfræði hans, höft, einangrunar, markaðs og alþjóðahyggju, alþjóðverslun og fleira. Mjög fróðleg grein og við skulum grípa niður í greinina þegar Ásgeir ræðir ástandið hér á landi, fullveldisárið 1918:

"Svo virðist sem landsmenn hafi verið óviðbúnir efnahagslegu sjálfstæði þar sem enginn rammi var fyrir hendi til þess að reka hagstjórn á nýju myntsvæði með eigin gjaldmiðil. Enginn sjálfstæður seðlabanki var til staðar og enginn gjaldeyrisforði og engar samræmdar aðgerðir í því að halda stöðugleika í hagkerfinu. Gríðarleg þensla og verðbólga var á Íslandi í fyrra stríði sem hefndi sín brátt með gengisfalli krónunnar árið 1920 þegar alþjóðleg kreppa reið yfir í stríðslok. Íslenskir ráðamenn hrukku allt í einu upp við vondan draum þegar tékkar Landssjóðs fengust ekki innleystir í Kaupmannahöfn."

Og þegar fram kemur að lokum seinni heimsstyrjaldar lýsir Ásgeir ástandinu svona: "Við lok heimsstyrjaldarinnar síðari var Ísland ein ríkasta þjóð Evrópu en gat þó ekki flutt inn ávexti nema fyrir jólin! Þessi staða hefði verið gott efni í eina rökfasta grein frá Jóni forseta þar sem hann hefði rakið þversagnir haftakerfisins og blindingsleik íslenskra stjórnmála með álíka hætti og hann gekk til verks gegn einokunarstefnu danskra stjórnvalda í verslun á Íslandi á nítjándu öld. Því að um algerlega hliðstæð málsefni var að ræða."  

Lokaorðum greinarinnar eyðir Ásgeir í að ræða íslensku krónuna:

"Íslenska krónan – Akkilesarhæll fullveldis?

Líklega hafa fáar vestrænar þjóðir snúist jafnhratt og afdráttarlaust gegn markaðsbúskap og Íslendingar, með höftum og bönnum eftir að fullveldi var fengið, og átt í jafnmiklum brösum síðan við að reka opið markaðshagkerfi á eigin ábyrgð, þó að slíkt sé vel þekkt í þriðja heiminum. Það hlýtur að teljast umhugsunarefni af hverju hin frjálslynda lína Jóns í efnahagsmálum varð svo endaslepp á sjálfstæðu Íslandi. Sá sem þetta ritar vill rekja það til þeirrar hörðu glímu sem Ísland hefur háð við að varðveita stöðugleika í efnahagslífi samhliða því að halda landinu opnu gagnvart umheiminum. Í þessari glímu hafa landsmenn mjög farið halloka og viðbrögðin hafa gjarnan verið þau að draga sig út úr alþjóðasamfélaginu til þess að tryggja stöðugleika.

Stóran hluta af þessum óstöðugleika má rekja til íslensku krónunnar sem varð að sjálfstæðum gjaldmiðli við stofnun fullveldis árið 1918 og það á sama tíma og alþjóðlegt myntstarf um gullfót steytti á skerjum. Þannig hófst saga gjaldeyrisvandræða og verðbólgu sem staðið hefur óslitið fram á okkar daga. Þessi óstöðugleiki sést vel á þeirri staðreynd að við fullveldi var íslenska krónan jafngild þeirri dönsku en nú þarf 2000 íslenskar krónur (ef myntbreytingin 1980 er tekin með í reikninginn) til þess að kaupa eina danska. Íslendingar voru því aldeilis óviðbúnir að reka eigin mynt og stunda sjálfstæða efnahagsstjórn þegar til átti að taka, nýr grundvöllur að peningamálastjórn í sjálfstæðu myntkerfi var aldrei lagður og árangurinn er eftir því. Sá rauði þráður gengur í gegnum sögu landsins eftir fullveldi að sveiflur í gengi krónunnar hafa truflað utanríkisviðskipti og valdið því að útflutningur er ýmist rekinn með ofsagróða eða miklu tapi. Öllu afdrifaríkara er þó aðvandræði í gjaldeyrismarkaði hafa oftlega kallað fram haftaaðgerðir af ýmsum toga og ýtt undir einangrunarhyggju.

Sú spurning hlýtur að vakna hvort Ísland sé of lítið efnahagssvæði til þess að gefa út sína eigin mynt. Það má sem best sjá Jón forseta fyrir sér þar sem hann tekur það mál fyrir í stíl Nýrra félagsrita og leiða til þeirrar óhrekjanlegu niðurstöðu að alþjóðleg myntsamvinna henti landsmönnum mun betur en sjálfstæð mynt. Í huga hinna klassísku hagfræðinga, sem Jón sótti sína þekkingu til, hafði sjálfstæði í peningamálum takmarkaða þýðingu og átti alls ekki að misnota með því að gengisfella gjaldmiðla. Mestu máli skipti að peningar héldu föstu verðgildi, að þeir trufluðu ekki viðskipti og að verðbólga yrði ekki til að færa peninga úr einum vasa í annan. Ísland tók upp gulltryggingu árið 1873 sem hluti af danska myntkerfinu og varð síðan hluti af Norræna myntbandalaginu tveimur árum síðar. Hvorki Jón Sigurðsson né nokkur annar af leiðtogum sjálfstæðisbaráttunnar leit á sjálfstæða mynt og/eða sjálfstæða peningamálastjórnun sem fullveldismarkmið í sjálfu sér.

Ekki verður annað séð en að landsmenn hafi verið ákaflega sáttir við aðild sína að þessu myntbandalagi og hafi ætlað sér að vera þar áfram sem fullvalda þjóð. Jafnvel má álíta að andvaraleysi þeirra í peningamálum eftir fullveldi megi rekja til þess að þeir hafi tekið myntbandalagið sem gefið. En hið Skandinavíska myntbandalag leystist upp eftir stríðið 1918 og uppbrot þess skildu landsmenn eftir veglausa í myntmálum. Og veglausir eru þeir enn."

Bendum við áhugasömum lesendum að reyna að nálgast eintak af Vísbendingu með grein Ásgeirs (Titill:Fara þjóðfrelsi og viðskiptafrelsi ekki saman hjá Íslendingum?)

(Leturbreyting: ES-bloggið)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband