4.10.2009 | 17:54
Íslenzkir Nei-sinnar fjúkandi
Íslenzkir Nei-sinnar hafa brugðist ókvæða við samþykkt Lissabon-sáttmálans á Írlandi. Við skulum kíkja á viðbrögð nokkurra þeirra:
,,Evrópusambandið hótaði Írum öllu illu ef þeir samþykktu ekki sáttmálann. Í aðdraganda kosninganna komu peningasekkir frá Brussel til að kaupa velvilja kjósenda á eyjunni grænu. "
,,ESB er afturganga Adolfs nokkurs Hitlers, sem átti sér þennan stóra og göfuga draum.Hann er líka höfundur einkunnarorða sölumanna dýrðarsamfélagsins, sem ranglega hafa verið eignuð samstarfsmanni hans Joseph Goebbels:Make the lie big, make it simple, keep saying it, and eventually they will believe it.
,,Þetta er eins og krabbamein sem gróðrar um sig í þjóðfélögum."
,,Írar áttu ekki annarra kosta völ. Þeir áttu yfir höfði sér að vera reknir úr EUef sáttmálinn yrði ekki samþykktur. Ekta EU, IMF taktik þar á ferð." (undirtstrikun bloggara)
,,Þetta er Djöfuls þjóðernishyggja og ekkert annað. Nú jæja, aðal löndin í ESB fundu upp þjóðernishyggjuna og kölluðu sig hinn siðmentaða heim. Lægri þjóðir voru svona sem maður arðrændi."
,,Vaclav Klaus verður drepinn fyrir áramót."
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Komi það sælt á Evrópusamtökunum.
Það væntanlega góða við þessi ummæli - sem þið gefið okkur lesendum engar heimildir fyrir - er það að þau eru líklega sett fram undir fullu nafni þeirra sem skrifuðu þau. Nema að þessar tilvitnanir séu ykkar eigin uppfinning. En það kæmi mér ekki á óvart.
Þetta er meira en hægt er að segja um hin andlitslausu samtök nafnleysingja og hugleysingja sem framleiða það efni sem hér birtast með reglulegu millibili - á þessum svokallaða vef ykkar hér á Evrópusamtökum nafnleysingja
Í fyrradag skrifuðuð þið hér á Evrópusamtökunum þetta: "Það er almennt talið að írskir bændur hafi hagnast vel að ESB-aðild landsins."
Þá spurði ég: Almennt talið? Hvað þýðir það? Það kom ekkert svar frá ykkur
Þegar þið gerið grín af því sem hugsanlega hefur komið frá þeim sem þið eruð að vitna í þá er það mjög léttvægt í samanburði við það sem raunverulega hefur verið haldið fram af esb-sinnum í háum embættum um hvað myndi gerast ef Írar hefðu fengið leyfi til að láta hin upprunalegu kosningaúrslit sín gilda, eins og gert er í lýðræðisríkjum.
Því var til dæmi haldið fram að þetta myndi hafa áhrif á efnahagslega framtíð Írlands. Þetta kemur fram í máli fyrrum efnahagsráðgjafa fyrrum forsætisráðherra Bertlands, Tony Blair, sem segir þetta vera þvælu: Sannleikurinn um efnahagsmál Írlands
Um kosningamútur Evrópusambandsins á Írlandi
José Manuel Barroso formaður Evrópusambandsins "er spilltur" sagði ESB-þingmaður Dansk Folkeparti, Morten Messerschmidt. Hann sagði að Barroso hafi nýlega heimsótt írska bæinn Limerick þar sem Dell Computer sagði upp 2.400 manns í byrjun þessa árs. Í ferðatöskunni hafði Barroso meðferðis ávísun uppá 110 milljón danskra króna sem hann deildi út til fyrrverandi starfsmanna Dell. Morten Messerschmidt segir að þetta hafi verið gert til þess að kaupa atkvæði í komandi kosningum á Írlandi um hina nýju stjórarskrá Evrópusambandsins. Hann segir þetta í trássi við reglur um ríkisstyrki og því ólöglegt. Messerschmidt ætlar að taka málið upp á þingi.
En Írar voru sem kunnugt þvingaðir til að kjósa aftur um nýju stjórnarskránna á föstudaginn. Samkvæmt mati Evrópusambandsins kom ekki rétt út úr þeim kosningum sem fóru fram á Írlandi síðasta sumar um nákvæmlega sama hlut. Því þurfa Írar að kjósa aftur - um sama hlutinn; dr.dk
Kveðjur
Gunnar Rögnvaldsson, 4.10.2009 kl. 19:33
Kæri Gunnar. Takk fyrir öll skrifin þín hér á vef okkar Evrópusinna. Án þeirra væri vefurinn fátæklegri, EKKERT GRÍN!
Fyrirgefðu að þú fékkst ekki svar við spurningu þinni, en hér kemur það: Flestir telja að írskum bændum hafi farnast vel innan ESB, enda vilja samtök írskra bænda ekki segja sig úr sambandinu og börðust fyrir samþykkt Lissabon-sáttmálans. Er þetta nægjanlegt svar?
Varðandi ,,kommentin": Þú getur ,,gúgglað" þau og þá færðu höfundana.
Evrópusamtökin, www.evropa.is, 4.10.2009 kl. 19:42
Gunnar, bændur er ánægðir, þá geta aðrir haldið kjafti. Þetta hljómar eins og eitthvað hjá gamla biðraða- og baslflokknum - þ.e. Framsókn. En þetta eru kratafasistar, ný stétt sem ekki hefur almannaheill á verkefnalista sínum. Það eina sem fær þetta fólk til að tikka er græðgi. Nú sjá þeir bita í ESB og hoppa áann. Þetta lið hugsar bara um sjálft sig.
Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 4.10.2009 kl. 21:38
Vilhjálmur Örn:
Furðulega árátta hjá þér að halda að allir í Evrópusamtökunum séu Kratar!
Ég er flokksbundinn sjálfstæðismaður til áratuga og ekki eini úr þeim flokki í Evrópusamtökunum!
Ef eitthvað er, þá er ESB frjálshyggjufélag, sbr. fjórfrelsið, og ég hef aldrei skilið hversvegna Kratarnir aðhyllast ESB!
Guðbjörn Guðbjörnsson, 5.10.2009 kl. 07:25
Jamm, tollabandalög eru mjög í anda frjálshyggjunnar ;)
Hjörtur J. Guðmundsson, 5.10.2009 kl. 09:14
Varðandi írsku bændurnar þá var stuðningur samtaka þeirra við Lissabon-sáttmálann pólitísk hrossakaup og hafði ekkert með sáttmálann sem slíkan að gera. Samtökin ákváðu að styðja hann gegn loforði frá írskum stjórnvöldum um að standa vörð um hagsmuni írskra bænda í viðræðum á vettvangi Alþjóðaheimsviðskiptastofnunarinnar.
Þess utan hafði samtökum írskra bænda verið hótað öllu illu ef þeir studdu ekki sáttmálann, m.a. af frönskum ráðamönnum. Og aukinheldur voru írskir bændur klofnir í þessu máli og þannig voru sérstök samtök írskra bænda stofnuð sem börðust gegn Lissabon sáttmálanum í þetta skiptið.
http://en.trend.az/news/world/wnews/1214793.html
http://www.independent.ie/national-news/lisbon-rap-for-farmers-1595183.html
Hjörtur J. Guðmundsson, 5.10.2009 kl. 09:22
En talandi um viðbrögð við þjóðaratvæðinu á Írlandi þá eru mín hér:
"Þau vinnubrögð Evrópusambandsins að láta kjósa aftur og aftur um samrunaskref innan sambandsins unz niðurstaða fæst sem er ráðamönnum þess að skapi (þ.e. ef almenningur fær þá að segja álit sitt á þeim sem allt er reynt til þess að komast hjá) eru hliðstæð og ef kosið yrði árlega til Alþingis þar til Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta á þinginu og þá yrði aldrei kosið aftur. Lýðræðislegt?
Wall Street Journal fjallaði um það fyrr á þessu ári að í ýmsum einræðisríkjum væru stundum haldnar kosningar en niðurstöðurnar væru falsaðar enda ákveðnar fyrirfram. Í Evrópusambandinu væri fólk látið kjósa aftur og aftur um sömu málin þar til fyrirfram ákveðin niðurstaða fengist og þá væri aldrei kosið aftur. Í báðum tilfellum er um að ræða algera fyrirlitningu á lýðræðinu."
Hjörtur J. Guðmundsson, 5.10.2009 kl. 09:25
Rosalega afgerandi niðurstaða. Tæp 70%
Það er alveg ljóst að mikill meirihluti íra vill vera innan ESB og sér hina augljósu kosti fyrir landið. Það er algjörlega ljóst.
Þessvegna hafa sögur sem maður hefur rekist á stundum, um hve írar væru mótfallnir ESB eða þá sérstaklega Umbótasáttmálanum - þær hafa verið stórlega ýktar.
Þetta er svo stór meirihluti að eftirtektanvert er.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.10.2009 kl. 09:45
Valéry Giscard d'Estaing
forseti stjórnarskrárnefndar ESB
27. október 2007
Þetta segir allt sem segja þarf um "lýðræðið" innan ESB. Breytingarnar sem af Lissabon leiðir eru af sama meiði; felld niður veto-ákvæði í 54 málaflokkum og reglum um atkvæðagreiðslu í Ráðherraráðinu breytt stærstu ríkjunum í hag. Bara til að nefna tvö dæmi.
Enn tala margir um ESB eins og það sé efnahagsbandalag en loka augunum fyrir hinum hápólitíska samruna sem skapar Nýja ESB.
Haraldur Hansson, 5.10.2009 kl. 09:47
Umbótasáttmálinn eykur lýðræði innan ESB og var það þó afar mikið fyrir og til fyrirmyndar að mörgu leiti.
Þetta er nú staðreyndin í málinu.
Það að andsinnar geti bara lesið á haus og afturábak ef minnst er á ESB getur aldrei talist relevant í þessari hér umræðu. Er bara þannig.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 5.10.2009 kl. 10:12
Mér finnst þú bara lýsa Evrópusambandinu nokkuð vel í þessum pistli þínum þannig að ég hef engu við þetta að bæta.
Offari, 5.10.2009 kl. 13:03
Það er náttúrulega hrein lýgi að ESB hafi "látið" Íra kjósa aftur um Lissabon sáttmálann. það er Írska ríkisstjórnin sem tók ákvörðun um að kjósa aftur um lítillega breytta útgáfu af sáttmálanum. Enginn hefði getið meinað Írum um að segja skilið við ESB í kjölfar þess að þjóðin hafnaði Lissabon sáttmálanum í fyrstu atrennu.
Þráinn Kristinsson (IP-tala skráð) 7.10.2009 kl. 09:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.