27.10.2009 | 09:18
Mogginn og fiskarnir...
Það kemur ekki á óvart að með nýjum ritstjórum MBL blása vindar engra breytinga, eins og sést á öðrum leiðara blaðsins í gær, sem allt eins hefði getað verið skrifaður af gamla ritstjóranum, Styrmi Gunnarssyni. Eins og þeir sem sáu "magasín-moggann" um helgina birtist hann þar undir efnisþættinum Af innlendum vettvangi. Styrmir er sem kunnugt er mikill andstæðingur Evrópusambandsins, en hefur hinsvegar ávallt varið íslenska kvótakerfið með kjafti og klóm.
En aftur að leiðaranum, sem fjallar um ESB og fiskveiðimál. Er hér um að ræða viljandi eða óviljandi rangtúlkun MBL á orðum Joe Borg?
Í leiðaranum segir m.a:,, Joe Borg, fiskveiðistjóri framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, viðraði nýlega hugmyndir um að sjávarútvegskerfi sambandsins yrði bylt og tekið yrði upp sóknarmarkskerfi. Í nýlegri ræðu Borg má sjá að hann áttar sig á að innan sambandsins verði ekki allir á eitt sáttir við að bylta kerfinu. Þar kæmu til áhyggjur af því að hinum svokallaða hlutfallslega stöðugleika yrði varpað fyrir róða. Þetta þýðir með öðrum orðum að veiðireynsla hefði ekki lengur þýðingu."
Málið hefur komið til tals hér á landi vegna ummæla spænskra útgerðarmanna þess efnis að þeir vilji breyta kerfinu. MBL birti frétt um málið. Spænskir útgerðarmenn tala hinsvegar ekki fyrir spænsk stjórnvöld og eru ekki fulltrúar þeirra. Rétt eins og LÍÚ hér á landi! Þá er um það einhugur meðal annarra þjóða ESB að halda reglunni um hlutfallslegan stöðugleika.
Sé ræða Borg skoðuð nánar, sést hvað hann hugsar; ,,Some of you may now think But what about relative stability? The fact is that you could take todays relative stability and transform it into effort. In doing so, the rights as apportioned between Member States would not be affected in any way." Veiðiréttindi myndu ekki skerðast samkvæmt Borg!
Það módel sem m.a. hefur verið litið til er kvótaframsals-módelið íslenska og einnig horfir ESB til Nýja-Sjálands.
Í leiðaranum er sagt að þessar hugmyndir hljómi ekki vel í eyrum LÍÚ, en hljóma einhverjar breytingar vel í eyrum LÍÚ?
Hvað með t.d. þá hugmynd að Ísland gæti fengið umtalsverð áhrif á fiskveiðimál innan ESB. Það blasti jú við Norðmönnum á sínum tíma.
Hvað með þá hugmynd að íslenskt hugvit og tækni gæti orðið enn frekari útflutningsvara frá Íslandi til ESB við mögulega aðild?
Í samningaviðræðum við ESB gildir fyrir Íslendinga að setja fram skýrar og afmarkaðar kröfur varðandi fiskveiðimálin og það er mikill misskilningur að Evrópusinnar vilji að Íslendingar missi forræðið yfir fiskveiðilögsögunni.Það er goðsaga!
En fiskveiðimál eru á nokkurs efa málaflokkur þar sem Íslendingar gætu látið mikið til sín taka!
Nú stendur yfir endurskoðun á sjávarútvegsstefnu ESB og á henni að vera lokið árið 2012. Við þá vinnu nýtur ESB aðstoðar Stefáns Ásmundssonar, sérfræðings, en hann hóf störf þar í apríl síðastliðnum
Af hverju skyldi ESB sækjast eftir þekkingu og reynslu okkar?
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir
Athugasemdir
Evrópusambandi mun halda við hinum svokallaða stöðuleika og þá miða við veiðireynslu, sem kemur Íslandi til góða. Auðvitað er LÍÚ á móti þessu, því þá væri allt kvótabrask úr sögunni, en á því lifa margar útgerðir á Íslandi í dag. Við eigum óhrædd að ganga í ESB og komum til að hafa þar mikil áhrif á sjávarútvegsmálin. Afstaða Morgunblaðsins þarf ekki að koma á óvart þar sem margar útgerðir eru í eigendahópi blaðsins.
Jakob Falur Kristinsson, 27.10.2009 kl. 09:49
Það er sjálfsagt að hafa vakandi auga með öllu sem varðar sjávarútveg. Það eru hvorki Mogginn né Styrmir sem setja reglurnar. Og ræða Borg's hefur ekki lagagildi heldur.
En hvað segir ESB um málið?
Í Grænbók ESB um sjávarútveg (frá 22. apríl 2009) er viðruð hugmynd um að þrjá möguleika í stað reglunnar um hlutfallslegan stöðugleika, sem þýðir að hún myndi víkja.
Við þurfum að hafa áhyggjur af þessu, en ekki orðum manns sem trúlega lætur af embætti í næsta mánuði eða Moggaskrifum á Íslandi.
Haraldur Hansson, 27.10.2009 kl. 10:50
Las þetta hjá moggareyinu. Og eg veit ekkert hvert var verið að fara í þessu. Bara ekki neitt.
Vitnað í einhvern Adolf - sá vissi ekkert hvað hann væri að tala um.
Þetta var mjööög furðuleg grein.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.10.2009 kl. 14:05
Ps. það er bara þannig að ef andsinnar skrifa eða fjalla um sjávarútveg og ESB í sögu grein ea sama erindi - þá er hægt að ganga útfrá því sem vissu að um 90% þvælu og um 10% þvaður sé að ræða.
Er bara þannig.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.10.2009 kl. 14:26
Ps ps. í rauninni alveg bráðfyndið hvernig moggin leggur útaf guðspjallinu. Borg segir td.:
"This therefore raises the question as to what could be the best suited management system for our stocks? We have, of course, looked to other countries such as Iceland and New Zealand, where individually tradable rights are used to manage fish stocks with apparently good results. "
Og auðvitað lýst LÍÚ mjög illa á þetta !!
Haha alveg hillaríus bullið í andsinnum stundum. Hillaríus.
Ómar Bjarki Kristjánsson, 27.10.2009 kl. 16:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.