Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2009

Þorsteinn Pálsson um Evrópumál í "Í vikulokin"

Hallgrímur Thorsteinsson og Þorsteinn Pálsson, fyrrum forsætisráðherra, formaður Sjálfstæðisflokksins og núverandi ritstjóri Fréttablaðsins, áttu áhugavert spjall um þjóðfélagsmálin í þættinum vikulokin á Rás 1, 21.2.09.

Þar kom þorsteinn meðal annars inn á Evrópumálin og gjaldmiðilsmál og sagði að það væri í raun bara ein leið fær í þeim efnum; upptaka Evru.

Þetta má heyra á: http://dagskra.ruv.is/ras1/4430065/2009/02/21/

Eða: http://www.ruv.is/vikulokin/


Fjörugar umræður um Evrópu

Áhugaverðar og fjörugar umræður um Evrópumál fóru fram á Café Sólon s.l. föstudagskvöld. Þar voru mætti fulltrúar frá norsku Já-samtökunum, sem vila norska ESB-aðild, sem og fulltrúar ungliðahreyfinga stjórnmálaflokkanna. Var afar áhugavert að heyra sjónarmið unga fólksins, enda Evrópumál ekki síst mál unga fólksins. Kappræðurnar stóðu í rúma tvo klukkutíma, eða þangað til salinn þurfti að nota unduir aðra starfsemi. Sjálfsagt hefði verið hægt að halda lengi áfram....

  Jens Sigurðsson frá Félagi ungra Jafnaðarmanna Frá umræðum um Evrópumál á Sólon Fulltrúar Norðmanna á Sólon

 

 


Varar við einangrun

Dr. Gylfi Zoega, hagfræðingur, varar sterklega við tilhneigingu til einangrunar hér á landi í kjölfar efnahagshrunsins. Þetta kom fram í fréttum helstu fjölmiðla í gærkvöldi. Hann benti á að það væri nauðsynlegt fyrir Ísland að efla tenginguna við umheiminn, erlendar bankastofnanir, en ekki síst við EVRÓPU.

Sjá nánar á:

RÚV - Vefsjónvarp: http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4456527/2009/02/19/0/


Ungir og Evrópa

Evrópusamtökin á Íslandi og Félag ungra Evrópusinna í Noregi standa fyrir kappræðum á milli talsmanna ungliðahreyfinga íslensku stjórnmálaflokkanna. Kappræðurnar fara fram á Kaffi Sólon í Bankastræti, föstudaginn 20. febrúar, kl.18.00.
Þeir sem munu tala eru:

Brynja Björg Halldórsdóttir frá ungum Vinstri Grænum
Hlini Melsteð Jóngeirsson frá Félagi ungra Framsóknarmanna
Jens Sigurðsson frá Félagi ungra Jafnaðarmanna
Þórlindur Kjartansson frá Sambandi ungra Sjálfstæðismanna.
Fundarstjóri verður Kim Gabrielli frá Ungum Evrópusinnum í Noregi.
Allir velkomnir

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband