Bloggfærslur mánaðarins, júní 2012
28.6.2012 | 22:50
Leiðari FRBL í framhaldi af danskri heimsókn
Leiðari FRBL þann 28.6 fjallar um ESB-málið og heimsókn Evrópunefndar danska þingsins hingað til lands. Ólafur Þ. Stephensen ritar:
"Hófsamir íhalds- og hægriflokkar á Norðurlöndum eru undantekningarlítið hlynntir Evrópusambandsaðild og hafa barizt eindregið fyrir henni. Þar kemur ýmislegt til; hagsmunir viðskipta- og athafnalífs sem þessir flokkar hafa löngum haft í fyrirrúmi, tengsl Evrópusamstarfsins og annars vestræns öryggis- og varnarsamstarfs, sem þeir hafa ekki síður staðið vörð um, og sú skoðun að lítil ríki eins og þau norrænu séu sterkari og hafi meiri áhrif við samningaborðið þar sem ákvarðanir eru teknar heldur en á jaðrinum, utan við kjarna Evrópusamstarfsins.
Sjálfstæðisflokkurinn er eina undantekningin í þessum hópi flokka. Hvers vegna hagsmunir Íslands eru svo ólíkir hagsmunum hinna norrænu ríkjanna að við eigum ekki erindi í Evrópusambandið, hafa forystumenn Sjálfstæðisflokksins aldrei útskýrt almennilega fyrir okkur. Þeir geta vissulega bent á sérstöðu Íslands í sjávarútvegsmálum, en ekkert liggur fyrir um að ekki verði hægt að koma til móts við hana í aðildarviðræðunum við ESB. Sjálfstæðisflokkurinn vill hætta þeim viðræðum áður en það kemur í ljós."
Síðar segir Ólafur: "Upp á síðkastið hafa þingmenn Sjálfstæðisflokksins í vaxandi mæli haft í frammi fullveldisrök gegn ESB-aðild, meðal annars þau að til að ná tökum á ríkisfjármálum í ESB neyðist aðildarríkin til að koma á nánara samstarfi, sem Ísland eigi ekki erindi í. Náið, yfirþjóðlegt samstarf þarf hins vegar ekki að vera slæmt. Meiningin er ekki að stofnanir Evrópusambandsins skipti sér af því hvernig skattfé í einstökum ríkjum er varið, heldur að settar verði reglur um að ekki megi reka ríkissjóði með gegndarlausum halla eða safna of miklum skuldum. Af hverju finnst íslenzkum íhaldsmönnum það slæmt? Finnst þeim hallarekstur og skuldasöfnun spennandi?
Athyglisvert var að lesa viðtal við Lene Espersen, þingmann danska Íhaldsflokksins og fyrrverandi dómsmála- og utanríkisráðherra Dana, í Fréttablaðinu í gær. Hún segist vera íhaldskona og þess vegna með sterka, jákvæða þjóðerniskennd eins og margir Íslendingar. Fyrir mér snýst fullveldi, það að taka ákvarðanir um eigin framtíð, einnig um það að sitja við borðið þar sem ákvarðanir eru teknar," segir Espersen."
Allur leiðarinn: http://visir.is/ihald-og-fullveldi/article/2012706289955
28.6.2012 | 17:41
ESB veitir 300 milljóna styrk til Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins
MBL.is segir frá: "Evrópusambandið hefur ákveðið að veita Fræðslumiðstöð atvinnulífsins 1.875 þúsund evrur, tæpar 300 milljónir króna, í styrk til að efla starfshæfni fullorðinna með litla formlega menntun.
Styrkurinn, sem verður greiddur út á þremur árum, er hluti af styrkjakerfi Evrópusambandsins sem kallast Instrument for Pre-Accession Assistance (IPA) og eru veittir þjóðum sem eiga í aðildarviðræðum um inngöngu í ESB. Fræðslusjóður hefur samþykkt að tryggja verkefninu mótframlag.
Snemma árs 2011 fólu stjórnvöld Fræðslumiðstöð atvinnulífsins (FA) það hlutverk að gera verkefnalýsingu vegna IPA styrkja frá Evrópusambandinu. Markmið þessara verkefna er að búa Íslendinga undir þátttöku í ýmsum viðfangsefnum Evrópusambandsins svo sem stuðningsaðgerðum vegna atvinnuuppbyggingar og byggðamála, segir í tilkynningu.
Verkefni FA ber heitið Þróun raunfærnimats til að efla starfshæfni fullorðinna með litla formlega menntun. Með verkefninu verður þróun þeirra sviða sem það nær til miklu hraðari en ella hefði verið mögulegt.
Markmið verkefnisins er að auka starfshæfni fólks á vinnumarkaði, sem ekki hefur lokið námi frá framhaldsskóla...."
Lene Espersen, formaður Evrópunefndar danska þingsins, var í athyglisverðu viðtali í FRBL, þann 27.6 og þar sagði meðal annars:
"Lene Espersen fer fyrir Evrópunefnd danska þingsins sem er í heimsókn hér á landi. Hún er bjartsýn á að viðunandi lausnir finnist á landbúnaðar- og sjávarútvegsmálum Íslendinga í aðildarviðræðum við ESB. Hún segir aðild hafa gefið Dönum ótalmörg tækifæri og telur skynsamlegt fyrir Ísland að ganga í ESB til að taka þátt í ákvörðunum. Nú þurfi Ísland að fylgja ákvörðunum annarra ríkja í gegnum EES.
Evrópunefnd danska þingsins er stödd hér á landi, en hún hefur viðhaft þá venju að heimsækja öll umsóknarríki ESB á meðan á ferlinu stendur. Lene Espersen fer fyrir nefndinni, en hún gegndi eitt sinn embætti utanríkisráðherra Danmerkur. Hún segist bjartsýn á að lausn náist í helstu ágreiningsmálunum varðandi aðild Íslands, til dæmis málum sjávarútvegsins."
Lene er þingmaður fyrir danska Íhaldsflokkinn (Konservative), systurflokk Sjálfstæðisflokksins og var meðal annars dómsmálaráðherra Dana frá 2001-2008.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2012 | 17:24
Staðan í ESB-málinu á RÚV
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.6.2012 | 14:39
Sveppi smellpassar!
...við erum ekki að auglýsa fyrir Stöð tvö, en ritara finnst bara þetta "outfit" (afsakið!) passa mjög vel við Sveppa!
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 17:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.6.2012 | 06:56
Sjávarútvegsráðherrar funda í Reykjavík
Á vef MBL.is segir: ""Að mati Sigurgeirs Þorgeirssonar, skrifstofustjóra sjávarútvegsráðuneytisins, er ólíklegt að ESB beiti fyrirhuguðum refsiheimildum á Íslendinga í makríldeilunni. Skýr ákvæði EES-samningsins komi í veg fyrir að hægt sé að beita heimildunum gegn Íslendingum.
Evrópuþingið og forsætisnefnd Evrópusambandsins náðu í gær samkomulagi um að beita þær þjóðir sem stunda ofveiði á sameiginlegum fiskistofnum refsiaðgerðum, meðal annars í formi löndunarbanns á allar fiskafurðir. ,,Ég tel ólíklegt að ESB muni beita harðari refsingum en alþjóðlegar skuldbindingar þeirra segja til um, segir Sigurgeir.
Sjávarútvegsráðherrar ríkja við Norður-Atlantshaf halda árlegan fund sinn í Reykjavík 3.-4. júlí. Gert er ráð fyrir því að Maria Damanaki, sjávarútvegsstjóri Evrópusambandsins, sæki fundinn, að sögn Sigurgeirs. Aðild að þessum samráðsfundum eiga Kanada, Grænland, Ísland, Færeyjar, Noregur, Rússland og Evrópusambandið."
Sjá: http://mbl.is/frettir/innlent/2012/06/28/ottast_ekki_refsiheimildir/
28.6.2012 | 00:02
Der Spiegel: Draumur þjóðernissinnans - martröð fyrir efnahaginn!
Í ensku útgáfu Der Spiegel er að finna úttekt á mögulegum afleiðingum hruns Evrunnar. Það er ekki falleg sýn, hér er smá dæmi:
"It would be a dream for nationalist politicians, and a nightmare for the economy. Everything that has grown together in two decades of euro history would have to be painstakingly torn apart. Millions of contracts, business relationships and partnerships would have to be reassessed, while thousands of companies would need protection from bankruptcy. All of Europe would plunge into a deep recession. Governments, which would be forced to borrow additional billions to meet their needs, would face the choice between two unattractive options: either to drastically increase taxes or to impose significant financial burdens on their citizens in the form of higher inflation.
A horrific scenario would become a reality, a prospect so frightening that it ought to convince every European leader to seek a consensus as quickly as possible."
Í einu orði sagt yrðu afleiðingarnar skelfilegar - og myndu að sjálfsögðu hafa víðtæk áhrif hér á landi, þar sem Evrópa er mikilvægasti markaður Íslendinga.
Evrópumál | Breytt s.d. kl. 00:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.6.2012 | 18:34
Heimildamynd um Evruna á RÚV
Í kvöld verður sýnd á RÚV þessi breska heimildarmynd um Evruna, sem er mikið rædd þessa dagana.
Megin niðurstaða myndarinnar er e.t.v. sú að hrynji Evran, muni það hafa álíka afleiðingar fyrir efnahag heimsins og Kreppan mikla, sem skall á árið 1929.
Varla vill það nokkur maður!
24.6.2012 | 19:06
Skriður að komast á sjávarútvegsmálin?
Ríkjaráðstefna Íslands og Evrópusambandsins fór fram í gær en þar voru þrír nýjir samningskaflar opnaðir í viðræðunum um inngöngu Íslands í sambandið. Þar með hafa 18 kaflar verið opnaðir af 35 en af þeim hefur tíu verið lokað til bráðabirgða. Þeir kaflar sem talið er að verði erfiðastir, um landbúnaðarmál og sjávarútvegsmál, hafa hins vegar ekki verið opnaðir enn."
Sjávarútvegsmálin eru áhugaverð, bæði í Reykjavík og Brussel!
21.6.2012 | 22:43
Hagfræði Nei-sinna...
Eldri færslur
- Júní 2013
- Maí 2013
- Apríl 2013
- Mars 2013
- Febrúar 2013
- Janúar 2013
- Desember 2012
- Nóvember 2012
- Október 2012
- September 2012
- Ágúst 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Maí 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Desember 2011
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Maí 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Febrúar 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Júlí 2007
- Júní 2007
Tenglar
Áhugaverðir tenglar
- Evrópusamtökin-heimasíða Heimasíða Evrópusamtakanna
- Aðildarviðræður við ESB
- Já-Ísland
- Evrópustofa Upplýsingar um ESB og Evrópumál
- Evrópusambandið-ESB
- Utanríkisráðuneytið
- Sendiráð ESB á Íslandi Sendiráð ESB á Íslandi
- Meirihlutaálit Utanríkismálanefndar Alþingis
- Skýrsla Evrópunefndar
- RÚV:ESB-vefur
- Uppl. fyrir blaðamenn
- Sterkara Ísland
- FRBL-Umræða-Leiðarar
- European Daily Fréttir frá Evrópu
- BBC-Evrópa
- EU-Observer
- EUtube ESB á you tube
- Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB fyrir Ísland og Noreg.
- Evrópuskrifstofan
- EurActiv-Fréttir um ESB
- Euranet (Útvarp)
- Euronews
- Evrópusíða UTN Evrópusíða utanríkisráðuneytisins
- Ungt fólk og ESB Ungt fólk og ESB
- ESB-umfjöllun MBL
Fréttabréfið
Fréttabréf Evrópusamtakanna
Bloggvinir
- Arna Lára Jónsdóttir
- Bryndís Ísfold Hlöðversdóttir
- Daði Einarsson
- Dofri Hermannsson
- Eiríkur Bergmann Einarsson
- Eva Kamilla Einarsdóttir
- Fanney Dóra Sigurjónsdóttir
- Fararstjórinn
- Gunnar Axel Axelsson
- Gunnlaugur B Ólafsson
- Guðlaugur Kristmundsson
- Guðmundur Steingrímsson
- Hinrik Már Ásgeirsson
- Hrannar Björn Arnarsson
- Hreinn Hreinsson
- Jón Gunnar Bjarkan
- Jónas Tryggvi Jóhannsson
- Júlía Margrét Einarsdóttir
- Loopman
- Magnús Már Guðmundsson
- Marta B Helgadóttir
- Sveinn Arnarsson
- Tómas Þóroddsson
- Vefritid
- gudni.is
- Ágúst Hjörtur
- Ágúst Ólafur Ágústsson
- Árni Rúnar Þorvaldsson
- Andri Geir Arinbjarnarson
- Arnar Guðmundsson
- Baldur Kristjánsson
- Barði Bárðarson
- Björn Halldórsson
- Brattur
- Brosveitan - Pétur Reynisson
- Egill Rúnar Sigurðsson
- ESB
- Eva Benjamínsdóttir
- Eva G. S.
- Eyjólfur Sturlaugsson
- Eyþór Laxdal Arnalds
- Friðrik Hansen Guðmundsson
- Guðjón Sigurbjartsson
- Guðlaugur Hermannsson
- Gunnar Ásgeir Gunnarsson
- Heiðar Lind Hansson
- Helgi Jóhann Hauksson
- Helgi Þór Gunnarsson
- Hilmar Gunnlaugsson
- Hjörtur Guðbjartsson
- Hólmfríður Bjarnadóttir
- Ingimundur Bergmann
- Jakob Falur Kristinsson
- Jens Sigurðsson
- Jón Grétar Sigurjónsson
- Jón Ragnar Björnsson
- Kama Sutra
- Kjartan Jónsson
- Konráð Ragnarsson
- Kristján Jón Sveinbjörnsson
- Lúðvík Júlíusson
- Natan Kolbeinsson
- Óðinn Kári Karlsson
- Óskar Þorkelsson
- Ragnar G
- Rögnvaldur Þór Óskarsson
- Sema Erla Serdar
- Sigurður M Grétarsson
- Sigurður Sigurðsson
- Snorri Hrafn Guðmundsson
- Sumarliði Einar Daðason
- Svala Jónsdóttir
- Svanur Gísli Þorkelsson
- Sæmundur Bjarnason
- Sævar Finnbogason
- Ungir evrópusinnar
- Þarfagreinir